Aðventfréttir - 01.05.1988, Page 10

Aðventfréttir - 01.05.1988, Page 10
Guð er þess megnugur að láta alla náð hlotnast yður ríkulega, til þess að þér í öllu og ávallt hafið allt sem þér þarfnist, og hafið gnægð til sérhvers góðs verks." 2. Kor. 9,8. Þegar við lítum til baka yfir síðustu þrjú ár sést vel að þrátt fyrir mjög erfiða tíma hjá starfinu á íslandi höfum við vissulega fengið að reyna þessi loforð. Þær tölur og upplýsingar sem hér fara á eftir eru uppörvandi og bera vott um framfarir, en verða svo innihaldslausar ef við komum ekki auga á það sem að baki býr. Fyrir mig er þetta opinberun á þeim fyrirheitum sem Guð hefur lofað okkur. En þær bera einnig vott um trúmennsku, fórnarlund og kærleika ykkar og allra safnaðarsystkinanna. TÍMAR ERFIÐLEIKA Síðastliðin þrjú ár hafa verið erfið fyrir rekstur starfsins á íslandi í heild. Hér hafa ýmsir þættir spilað inn í. Mikil mannaskipti hafa orðið hjá starfinu á tímabilinu og mannaskipti á ýmsum stöðum. Hjá Samtökunum létu Eygló Guðsteinsdóttir, skrifstofustúlka, Guðni Kristjánsson, gjaldkeri og Henrik Jörgensen, prestur og kennari af störfum og fluttu ásamt fjölskyldum sínum af landi brott. Við starfi Eyglóar tók Jónheiður Theódórsdóttir og síðar Sigríður Kristjánsdóttir. í þessari skýrslu er einungis minnst á áföll í starfsmannahaldi Samtakanna en ekki Hlíðardalsskóla. Enginn var ráðinn í stað Henriks Jörgensen og við það að missa hann þyngdist mjög starf annarra starfs- manna við prédikanir og önnur störf. Við það að missa Guðna hófst tímabil mikilla erfiðleika við rekstur starfsins þar eð ekki tókst, þrátt fyrir mikla leit, að finna annan í hans stað. Ýmsir aðilar komu þó inn í myndina til aðstoðar á tímabilinu og tókst að halda starfinu meira eða minna gangandi. Er í raun ótrúlegt hve mikið vannst á þessum tíma þrátt fyrir mikið álag og erfiði fyrir starfsmennina og ekki síst fyrir Erling B. Snorrason sem þurfti að ganga inn í mörg störf og vera undir miklu álagi. Kann ég öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum við aðstoð í bókhalds- og gjaldkerastörfum bestu þakkir fyrir framlag þeirra. Enginn gjaldkeri var því starfandi í rúmt ár, frá 1. febrúar 1986, þar til ég tók við störfum gjaldkera, eftir rúmlega þriggja ára námsleyfi, 1. apríl, 1987. Var þá mikið ófært af bókhaldi Samtakanna, Hlíðardalsskóla og Bókaforlagsins. Eftir mjög annasamt ár hefur nú tekist að færa allt bókhald og hefur það allt verið endurskoðað af endurskoðendum Stór-Evrópudeildarinnar, en þeir voru hér í þrjár vikur í lok árs 1987 og aftur þrjár vikur í mars 1988. Miklir erfiðleikar í rekstri Hlíðardalsskóla hafa einnig sett svip sinn á þetta tímabil. Örar breytingar í starfsmannahaldi, sveiflur I nem- endafjölda, viðhaldsframkvæmdir umfram efni og ytri aðstæður hafa ráðið því að skólinn hefur farið í gegnum sitt erfiðasta skeið og verður vikið að því nánar síðar. Bókaforlagið hefur einnig átt misgóð ár þótt rekstur þess hafi yfirleitt gengið vel. Það má nú segja að eftir erfið ár séum við loksins að komast á beinu brautina og að fyrir framan okkur séu bjartir tímar. TÍUND "Tigna Drottin með eigum þínum og með frumgróða allrar uppskeru þinnar, þá munu hlöður þínar verða nægtafullar og vínberja- lögurinn flóa út af vínlagarþróm þínum." Ok 3,9,10. "Færið alla tíundina í forðabúrið til þess að fæðsla sé til í húsi mínu og reynið mig einu sinni á þennan hátt - segir Drottinn allherjar- hvort ég lýk ekki upp fyrir yður flóðgáttum himinsins og úthelli yfir yður yfirgnæfandi blessun." Mk. 3.10. Þegar við lítum um öxl yfir síðastliðin 3 ár erum við þakklát fyrir hvernig Drottinn hefur leitt og blessað okkur þrátt fyrir þá erfiðleika sem þrengdu að starfinu á þessum 3 árum. Guð hefur enn einu sinni sannað okkur hve hátt hann er hafinn yfir þann stakk mannlegra takmarkana sem við í vanvisku okkar og trúarskorti erum svo gjörn á að sníða honum. Tíundin síðastliðin þrjú ár var alls kr. 20,188,410.24. Hækkun milli tímabilanna 1982- 1984 og 1985-1987 var 129.66%. Verðbólgu- hækkun á sama tíma var 113.61%. Samkvæmt þessu hefur hefur hækkun á tíund verið heldur meiri en verðbólga í landinu. Hækkun sú á tíund sem orðið hefur umfram eðlilegt verðlag er vegna aukinnar atvinnu, aukins kaupmáttar, fjölgunar safnaðarmeðlima og/eða aukinnar hollustu okkar við Guð. Það er ánægjulegt að sjá þá hækkun sem hefur orðið í tíund sérstaklega á árinu 1987 (sjá skýringarmynd nr. 1). Það er uppörvandi að sjá hvernig trúmennska ykkar og safnaðarmeðlima í heild birtist í reynd þegar tíundinni er skilað í forðabúrið. Það er ánægjulegt að sjá trúmennsku barnanna og unga fólksins, þeirra sem eru á miðjum aldri og síðast en ekki síst þeirra sem Aðventfréttir 5. 1988

x

Aðventfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.