Aðventfréttir - 01.05.1988, Side 16
BÓKAFORLAG AÐVENTISTA - FRÆKORNIÐ
Rekstur Bókaforlagsins hefur gengið fremur vel
á tímabilinu þótt árin hafi rekstrarlega séð verið
misjöfn. Árið 1985 var halli kr. 225,251, hagnaður
árið 1986 kr. 347,104 en halli ársins 1987 var kr.
846,059. Ástæðan fyrir hallarekstri á árinu 1987
var sú að tekin var ákvörðun í samráði við
endurskoðanda Stór-Evrópudeildar- um að
afskrifa stóran hluta bókalagers forlagsins,
bækur sem seljast mjög hægt eða alls ekki. Þetta
innifelur m.a. biblíulexíuflokkinn fyrir unglinga.
Útgáfa á þessum lexíuflokki, þó mjög tímabær
væri, reyndist mjög kostnaðarsöm. Lítið hefur
selst af þessum lexíum og er ljóst að
bókaforlagið mun aldrei ná inn þeim útlagða
kostnaði sem þetta fól í sér. En nú hefur þetta
verið gert og framundan eru bjartir tímar fyrir
Bókaforlagið.
Verslunin Frækornið er á stöðugri uppleið.
Rekstur verslunarinnar hefur gengið vel og er
hagnaður af rekstrinum. Salan hefur aukist ár
frá ári og á árinu 1987 var sala verslunarinnar
hærri í krónutölu en forlagsins (sjá skýringar-
mynd 7).
Forlagið stendur fyrir útgáfu á Biblíulexíunum
sem nú eru gefnar út í nýju og breyttu formi.
Nokkur misbrestur hefur verið á að safnaðar-
meðlimir greiði gíróseðla sína fyrir lexíurnar.
Stór-Evrópudeildin og Samtökin niðurgreiða verð
lexíanna, en ég vil hvetja alla til að gera skil
reglulega og þannig styðja við bakið á þessari
mikilvægu útgáfu.
Bókaforlagið og Frækornið standa nú fjárhags-
lega á eigin fótum án aðstoðar frá Samtökunum
og greiðir auk þess húsaleigu til Samtakanna
fyrir afnot af húsnæðinu.
ÞAKKIR TIL STÓR-EVRÓPUDEILDARINNAR
Ég vil nota tækifærið og þakka embættismönnum
Stór-Evrópudeildarinnar fyrir vináttu og hlýhug
í garð starfsins á íslandi og hvernig þeir hafa
stutt við bakið á starfinu hér með aðstoð og
fjárveitingum. Sérstakar þakkir til gjaldkera
deildarinnar John Muderspachs og endur-
skoðanda deildarinnar Graham Barhams sem
veittu ómetanlega aðstoð við að koma málum í
samt lag.
EFNAHAGS- OG REKSTRARYFIRLIT
Meðfylgjandi þessari skýrslu eru töluleg yfirlit
yfir rekstur Samtakanna, Hlíðardalsskóla og
Bókaforlagsins á síðastliðnum 3 árum sem í
aðalatriðum skýra sig sjálf.
NIÐURLAG
Eins og fram kom í máli mínu í upphafi var
SKIPTING REKSTRARTEKNA BÓKAFORLAGS
Skýringarmynd 7
Aðventfréttir 5. 1988