Aðventfréttir - 01.05.1988, Qupperneq 20
SKÝRSLA
BIBLÍUBRÉFASKÓLANS
SKÝRSLA HEILSU, OG
BINDINDISDEILDAR
Síðastliðin þrjú ár hefur Biblíubréfaskólinn ekki
leikið stórt hlutverk í útbreiðslustarfi okkar. l>ó
hafa ávallt verið nemendur í honum og ýmsir
komist í kynni við Guð í gegnum hann.
Heilsubréfaskólinn hefur enn ekki komið út á
íslensku. Kemur þar helst til, að við höfum verið
að bíða eftir útkomu hans í Danmörku. Áður en
við leggjum tíma og kostnað í útgáfu hans tel ég
að við ættum að athuga árangur hans í Danmörku.
Fyrri heilsubréfaskólar virðast ekki hafa náð
tilætluðum árangri í nágrannalöndum okkar, jú,
fólk innritaðist í þá, en mjög fáir einstaklingar
hafa síðan innritast í biblíunámsflokkana eða í
námskeið safnaðarins. Á hinn bóginn hafa t.d.
námsflokkar um fornleifafræði skilað mörgum
nemendum í biblíunám.
Biblíubréfaskólinn er öflugt útbreiðslutæki. í
framtíðinni er ég viss um að hann á eftir að vera
þýðingarmikill hlekkur í því að ná til lands-
manna með okkar boðskap. Til þess að hann nýtist
sem best þarf þrennt til:
1. Tími er kominn til þess að endurnýja
námsflokkinn Biblían talar. Okkur vantar
námsflokk sem fjallar um höfuðkenningar
Biblíunnar sem lítur vel út og höfðar vel til
landsmanna í dag.
2. Töluvert fjármagn þarf í auglýsingar ef fólk
almennt á að vita af Biblíubréfaskólanum og
vilja nýta sér þjónustu hans. Það er beint
samband milli fjölda auglýsinga og umsókna í
Biblíubréfaskólann.
3. Safnaðarmeðlimirnir þurfa almennt að starfa
með Biblíubréfaskólanum. Þá aðallega við að
dreifa auglýsingarmiðum reglulega í ákveðin
hverfi og síðan jafnvel að bjóða persónulega
upp á þennan skóla í því sama hverfi. En
árangur næst best með skipulögðu og vel
mörkuðu starfi.
Aftur legg ég áherslu á að Biblíubréfaskólinn
getur verið áhrifamikið útbreiðslutæki. En það er
undir safnaðarmeðlimum komið hvernig hann
nýtist.
Þröstur B. Steinþórsson
*
Þegar sú breyting kom til eftir síðasta aðalfund,
að ég hvarf frá heilsu og bindindisstörfum með
því að stjórnin bað mig að takast á hendur
skólastjórn við Hlíðardalsskóla, hefur verið harla
takmarkaður tími til bindindismálanna þar eð
skólastjórastarfið er fullt starf. Auk þess hef ég
sinnt prestsstörfum á staðnum og sótt aðra
söfnuði heim, þegar tækifæri hefur boðist og aðrir
komið í minn stað á skólanum.
Á liðnu tímabili hefur 5-daga námskeið gegn
reykingum verið haldið fimm sinnum. Auk undir-
ritaðs hefur bróðir Brynjar Halldórsson, Keflavík
verið þar að verki. Óskandi væri að fleiri
safnaðarþegnar kæmu til starfa á slíkan hátt.
Nálega tvö hundruð manns hafa notið þeirrar
þjónustu, og árangur verið góður eins og jafnan
áður með því að milli 85 og 100% þátttakenda
hafa verið hættir í lok námsskeiðsins og allir
fengið jákvæða mynd af og afstöðu til sjónarmiða
okkar. Svo sem fyrr hefur hvorki verið starfs-
kraftur né tími til að fylgjast með þessu fólki
sem skyldi, en vitað er um marga, sem ekki hafa
reykt síðan.
Þá hefur undirritaður setið sem ritari í stjórn
Landssambandsins gegn áfengisbölinu. Aðild að
þessu sambandi eiga um 30 bindindisfélög landsins
og ýmis önnur áhugasamtök, sem berjast gegn
böli áfengisins. Siðast liðið sumar var norrænt
bindindisþing haldið á vegum Landsambandsins.
Þingið fór fram á Akureyri. Þar voru mættir um
þrjú hundruð fulltrúar frá Norðurlöndunum, með-
al annarra ýmsir bindindisritarar aðventista.
Undirritaður starfaði í undirbúningsnefnd þingsins
og var falið að stjórna "íslandskvöldvökunni". Á
þingum sem þessum sér hver þjóð um kvöldvöku.
Auk Landssambandsins eru tvenn samtök, sem
láta til sín taka á sviði bindindismálanna. Þau
eru: "Átak gegn áfengi" og "RÍS". RÍS er
skammstöfun fyrir reyklaust ísland. Markmið
þessara samtaka er: REYKLAUST ÍSLAND ÁRIÐ
2000 og berst við reykingavandamálið. Með
störfum þessara samtaka hefur undirritaður fylgst
náið, sótt fundi þeirra og kynnt heilsu- og
bindindiskenningar okkar og þannig látið nafn
okkar hljóma.
Til viðbótar því, sem að framan segir, hefur
undirrituðum verið boðið að flytja ávörp í ýmsum
félögum. Augljóst er, að enn er svið heilsu- og
bindindismálanna opið og mikil þörf sterkra
aðgerða gegn því voðaböli, sem þar er um að
ræða.
Jón Hj. Jónsson •
Adventfréttir 5. 1988