Aðventfréttir - 01.05.1988, Qupperneq 24
SKÓLAMÁLASKÝRSLA
Þau þrjú ár sem þessi skýrsla nær yfir, 1985-
1988, hafa verið afar viðburðarrík í skólamálum
okkar. Hér á ég við þróun Fossvogsbyggingar-
innar, skóla- og námstefnumiðstöðvarinnar. Þetta
verkefni er eins og planta sem sáð hefur verið
fyrir og fræið búið að vera lengi ofan í moldinni.
Nú eru hinsvegar fyrstu blöðin að sjá dagsins
ljós. En áður en við segjum frá þessu mikla
verkefni munum við gefa skýrslu um þann þátt
skólamálanna sem ekki er síður miklilvægur, en
það er tilvist og starf litla barnaskólans okkar í
Bauganesi sem bíður þess að geta flutt í nýju
húsakynnin og fá að vaxa og dafna við gjörbreytt
skilyrði.
Barnaskóli Aðventista var endurreistur 1976, og
fékk bráðabirgðahúsnæði í Bauganesi 13. Það var
aldrei ætlunin að hann byggi við þann þrönga
kost svo lengi. En þrátt fyrir smæð og erfiðar
aðstæður hefur hann unnið dýrmætt starf fyrir
börnin okkar og annarra.
Nemendafjöldinn hefur verið sem hér:
Ár nemendafj. kennarar
1985- 86 11 Lilja Sveinsdóttir
Jeanette A. Snorrason
1986- 87 11 _
1987- 88 10
Veturinn 1987-88 hefur Jón Karlsson kennt
eðlisfræði í skólanum.
Á síðasta aðalfundi var birt ítarleg greinargerð um
Fossvogsbygginguna með skólamálaskýrslunni.
Byggingarnefndin vann að undirbúningsmálum
árin 1985 og 1986. Sótt var um að fá 13. hvíld-
ardagsskólafórnina 1991, en jafnframt athugað
hvort við ættum ekki möguleika á að fá fórnina
fyrr eða 1989, ef verkefni í Kaupmannahöfn
seinkaði. Það varð svo reyndin að við fengum þessu
flýtt, þannig að við fáum 50% af 13. hvíldar-
dagsskóla fórninni í 3. ársfj. 1989.
Byggingarnefndin athugaði besta kostinn í bygg-
ingarmáta og hönnun, skoðaði skóla og ræddi við
arkitekta. Allan þennan tíma dróst mjög hjá
gatnamáladeild borgarinnar að ganga endanlega
frá lóðarmörkum, vegna svokallaðs "hlíðarfótar" og
tengingar við fyrirhugaða Fossvogsbraut.
Haustið 1986 var ráðinn arkitekt, Knútur
Jeppesen, sami arkitektinn sem gaf okkur góð ráð
varðandi safnaðarheimilið í Reykjavík. Hann hefur
reynst okkur mjög vinsamlega og sýnt okkur
mikinn hlýhug vegna góðra kynna af okkar
safnaðarfólki.
í byrjun árs 1987 var farið að skýrast með
lóðarmörk. Kom þá í ljós skerðing á stærð
lóðarinnar og breyting á lögun sem við gátum
ekki sætt okkur við. Eftir nokkra fundi með for-
stöðumanni Borgarskipulags og borgarstjóra,
náðist afar góð lausn þar sem borgin féllst á að
flytja aðalskolplögnina frá íbúðarhverfinu fyrir
ofan, Suðurhlíðum, út úr lóðinni okkar, en hún lá
í gegnum lóðina miðja og var helsti þrándur í
götu þess að hægt væri að hefjast handa. Borgin
tók á sig kostnaðinn við að flytja lögnina en það
er áætlað að það kosti vel á aðra milljón.
Þar með gat arkitektinn hafist handa með að
teikna án þess að vera takmarkaður af legu
skólplagnarinnar. Án efa var þessi farsæla lausn
handleiðslu Guðs að þakka.
Á haustmánuðum var unnið í teikningum og var
Jón Karlsson fulltrúi byggingarnefndar og vann
mjög náið með arkitektinum að teikningum.
Fjölmargir skólar voru skoðaðir og rætt við
skólastjóra þeirra og fleiri aðila sem hafa með
skólamál, ríkis og bæjar að gera. Einnig var
unnið í að fá lóðina byggingarhæfa.
Upp úr áramótum 1987-88 lágu svo fyrstu
teikningar og kostnaðaráætlanir fyrir. Hafist var
handa um að kynna þetta stjórn Samtakanna og
stjórn Reykjavíkursafnaðar, svo og Stór-Evrópu-
deildinni. Þá var unnið sérstaklega að fjár-
mögnunaráætlun. Ávöxtur þess erfiðis var svo að
stjórn Stór-Evrópudeildarinnar samþykkti fyrir
sitt leyti stærð og frumhönnun hússins svo og
fjármögnun, nú fyrir skömmu. Þegar nákvæmari
teikningar liggja svo fyrir, væntanlega innan
skamms, fara þær fyrir teikninganefnd Aðal-
samtakanna til staðfestingar.
Ráðgert er að húsið muni, fullbúið án lausra
húsgagna og tækja, kosta um 41 milljón króna.
Sá kostnaður deilist niður á hina ýmsu aðila sem
hér segir:
13. hvíldardagsskólafórn 8.000.000
Abventfréttir 5. 1988