Aðventfréttir - 01.05.1988, Page 25

Aðventfréttir - 01.05.1988, Page 25
Frá SED Frá Samtökunum og safnað- aðmeðlimum Frestun frágangs í kjallara (síðari fjármögnun) Frá allsherjarsjóði Samtakanna Sjálboðavinna í 5 ár Umsókn til borgaryfirvalda 7.345.000 13.500.000 3.000.000 5.000.000 1.500.000 3.000.000 var hér á ferð í síðasta mánuði. Þá hefur Jón Karlsson kennari verið ráðinn skólastjóri hins nýja skóla og fram að því að skólinn taki til starfa, sem byggingar- og verkefnastjóri. Hann hefur unnið mjög náið með arkitektinum um alla tilhögun i byggingunni og verið í stöðugu sambandi við borgaryfirvöld varðandi lóðarmál. 41.345.000 Það er trú mín að þetta verkefni muni marka þáttaskil í starfi safnaðarins á höfuðborgarsvæðinu og áhrifa þess muni gæta miklu víðar. Jafnframt byggingar- og lóðamálum og fjármögnun er einnig verið að huga að kennslu- og uppeldis- málum og markmiðum skólans. Nutum við þar aðstoðar br. O. Woolford yfirmanns menntamála okkar safnaðar í Stór-Evrópudeildinni en hann Það er greinilegt að Guð hefur vakað yfir þessu verkefni og mun hann ekki sleppa af því hendinni fyrr en það er komið í höfn. Erling B. Snorrason SKÝRSLA SÖNGMÁLADEILDAR Af söngmálum starfsins er það helst að segja, að venjulegu sönglífi hefur verið haldið uppi í söfnuðunum, ungmennafélögunum og skátafélög- unum við samkomur, mannamót og félagsstörf. Kirkjukór Reykjavíkur og blandaður kvartett þar hafa starfað. Ungmennakórinn hefur starfað, og voru Þröstur B. Steinþórsson, Jónína Guðmunds- dóttir og Ester Ólafsdóttir aðaldriffjaðrir hans. En hann tók nýjan fjörkipp til aukins sönglífs, er Karen Sturlaugsson tók við stjórn hans. En eins og við vitum öll eru Björn og Karen Sturlaugsson nýlega flutt heim með börnum sínum. Það er mér mjög hugþekkt að bjóða þau velkomin inn á tónlistarvettvang starfs okkar. Syngjandi fólk okkar og hljóðfæraleikarar allir hafa stöðugt sungið og leikið á mannamótum okkar og hátíðum, en einnig alloft í útvarpið við guðsþjónustuhald á vegum okkar og sameiginlega með öðrum kirkjudeildum. Fyrir hönd starfsins þakka ég öllu þessu syngj- andi fólki, undirleikurum og einleikurum fyrir að stíga jafnan á svið og þjóna svo sem það hefur gert hverju sinni, er á þurfti að halda. Þetta er mikið og mikilvægt starf. Ég óska söfnuðinum til hamingju með það, að stöðugt vex tónmennta áhuginn. Stöðugt verða þeir fleiri og fleiri, sem leika á hljóðfæri ýmis konar og stunda nám á því sviði. Til eru þeir einnig, sem eru við söngnám, þessum þarf að fjölga. Einnig ættu kórarnir að fá til raddþjálfara til að þjálfa söngfólkið okkar, svo að þau raddgæði, sem fyrir hendi eru fullnýtist og frá okkur hljómi söngur og hljóðfæraleikur af allra besta hugsanlegu tagi og gæðum. Sálmabókin Það er öllum áreiðanlega mikið ánægjuefni, að nú er sálmabókarmálið að komast í höfn. Þegar átti að fara að prenta eftir síðasta aðalfund reyndist verkið ekki prenthæft. Útskýringin er þessi: Aðferðin sem notuð hefur verið við þessa fram- kvæmd er sú, að textinn er klipptur niður í atkvæði, sem límd eru undir hlutaðeigandi nótur. Við þessa límingu er notað sérstakt vax. Þetta vax er það mjúkt að textinn hreyfist og skekkist, þegar arkirnar eru hreyfðar og sveigðar. Þetta atriði gerðum við okkur sem leikmenn ekki ljóst né vöktu sérfræðingar athygli okkar á því. Af þessum sökum varð að yfirfara allt verkið og rétta textann af. Að líma þannig upp nótur og texta er afar tímafrekt, erfitt og þrautþreytandi starf. Þetta vita þeir best sem hafa unnið verkið. Meðan þessi endurvinna fór fram var tíminn notaður til að taka upp ýmis sálmalög úr nýju bandarísku bókinni, sem nýlega kom út, sálma- lög sem ekki voru til í sálmabókarformi annars staðar. Með þessu hefur unnist nokkuð, sem annars hefði ekki orðið í bók okkar. Hér orðlengi ég ekki útskýringar frekar, en þegar bókin er komin og verður kynnt í söfnuðunum, mun trúlega gefast tækifæri til að sjá betur inn í það sem liggur að baki þessu verki. Jón Hj. Jónsson. * <£ * Aðventfréttir 5. 1988

x

Aðventfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.