Aðventfréttir - 01.05.1988, Page 27

Aðventfréttir - 01.05.1988, Page 27
FRÁLAGANEFND LÖG SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA Á ÍSLANDI I. kafli - NAFN 1 grein. Söfnuðir Sjöunda dags aðventista á íslandi mynda með sér landssamtök sem heita: Sjöunda dags að- ventistar á íslandi. II. kafli - MARKMIÐ 2. grein. Aðalmarkmið Samtakanna er að boða eilífan fagn- aðarboðskap Drottins vors og fresara, Jesú Krists og boðorð Guðs eins og táknað er með englunum þremur í Opinberunarbókinni 14. kafla og að leiða fólk á kærleiksríkan hátt til að verða lærisveinar hans og ábyrgir meðlimir safnaðarins. Almennt markmið Samtakanna er að samræma kristilegt starf á þeirra vegum m.a. prests- þjónustu, kennslu, útgáfustarfsemi og heil- brigðisstarf. 3. grein. Aðild að Samtökunum eiga allir söfnuðir Sjöunda dags aðventista á íslandi, sem réttilega eru stofnsettir. Aðalfundur veitir nýjum söfnuðum að- ild að Samtökunum. Samtökin eru aðili að "Stór-Evrópudeild Aðal- samtaka Sjöunda dags aðventista" og skulu mark- mið, stefnumið og starfsaðferðir þessara Samtaka vera í samræmi við lög og reglur þeirrar deildar. Samtökin skulu vinna að markmiði safnaðarins í samræmi við þau grundvallartrúaratriði sem sam- þykkt eru og staðfest af aðalfundum Aðalsamtaka Sjöunda dags aðventista, sem þeir halda á 5 ára fresti. IV. kafli - UM AÐALFUND 4. grein - Boðun aðalfundar Samtökin halda reglulegan aðalfund á þriggja ára fresti á þeim stað og tíma, sem stjórn þeirra kann að ákveða. Tilkynning um það skal birt í málgagni Samtakanna með minnst fjögurra vikna fyrirvara. Ef ástæða þykir er hægt að fresta reglulegum aðalfundi í allt að eitt ár ef tveir þriðju hlutar stjórnar samtakanna eru því samþykkir. Stjórnin getur boðað til auka- aðalfundar hvenær sem ástæða þykir til og skal boða til hans á sama hátt og um reglulegan aðalfund væri að ræða eða þá bréflega. Ákvarð- anir, sem teknar eru á slíkum fundi, hafa sama gildi og um reglulegan aðalfund væri að ræða. 5. grein - Fulltrúar Fulltrúar á aðalfundi eru: 1) Sjálfkjörnir fulltrúar a) Allir meðlimir stjórnar Samtaka Sjö- unda dags aðventista á íslandi. b) Sérhver viðstaddur stjórnarmeðlimur Stór-Evrópudeildarinnar. Sérhver viðstaddur stjórnarmeðlimur Aðalsamtaka Sjöunda dags aðventista. d) Vígðir prédikarar sem starfa í þjón- ustu Samtakanna. e) Deildarstjórar, sem starfa í þágu Sam- takanna. f) Aðrir prédikarar og kristniboðs- starfs-menn sem starfa í þágu Sam- takanna. 2) Kjörnir fulltrúar: a) Þeir, sem kjörnir eru til þess, af þeim söfnuðum, sem aðild eiga að Sam- tökunum. Sérhver söfnuður hefur rétt á einum fulltrúa fyrir söfnuðinn og auk þess einum fyrir hverja tíu (og hluta úr tíu) safnaðarmeðlimi. b) Aðrir, sem viðstaddir kunna að vera og til þess kjörnir af aðalfundinum. Fjöldi slíkra fulltrúa skal þó aldrei vera umfram 20% af fjölda annarra fulltrúa. III. kafli - UM AÐILD c) Adventfréttir 5. 1988

x

Aðventfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.