Aðventfréttir - 01.05.1988, Qupperneq 28
6. grein - Skýrslugerð
Á reglulegum aðalfundi Samtakanna skal stjórn
þeirra leggja fram skýrslu um starfssemi þeirra
ásamt fjárhagsyfirliti fyrir síðast liðið kjör-
tímabil.
7. grein - Fundarstjórn
Aðalfundi samtakanna skal stjórnað af formanni
þeirra eða þeim, er hann kann að tilnefna í
sinn stað.
8. grein - Nefndir
Um leið og aðalfundur er settur skal kjósa
eftirtaldar nefndir:
a) AUsherjarnefnd. Fulltrúar hvers safn-
aðar skulu tilnefna einn fulltrúa í
þessa nefnd en formaður hennar er
fulltrúi Stór-Evrópudeildarinnar.
Fulltrúar safnaðar með yfir 100 með-
limi skulu ennfremur tilnefna einn
fulltrúa fyrir hverja viðbótar 100
meðlimi eða hluta þar af. Nefnd þessi
ber fram tillögu um aðrar nefndir, sem
starfa á fundinum.
b) Stjórnarnefnd. Formaður þessarar
nefndar skal vera fulltrúi Stór-
Evrópudeildarinnar og skal hún vera
skipuð sjö til níu fulltrúum. Hlutverk
stjórnarnefndar er að bera fram til-
lögu um formann, ritara, fjármála-
stjóra, stjórn Samtakanna, deildar-
stjóra og skólanefnd Hlíðardalsskóla.
Yið kjör nefndarinnar skal, eftir því
sem kostur er, gæta jafnræðis milli
fastra starfsmanna og leikmanna safn-
aðarins, svo og starfssviða og
starfssvæða.
c) Tillögunefnd, sem skipuð skal sjö til
níu fulltrúum og skal hlutverk hennar
vera að bera fram tillögur til
samþykktar á aðalfundinum.
Allar óskir viðvíkjandi tillögum, skipun stjór-
na og fleiru, skulu leggjast fyrir viðkomandi
nefndir til athugunar áður en þær eru lagðar
fyrir aðalfundinn.
9. grein - Atkvæðisréttur
Þeir einir, sem eru fulltrúar, hafa atkvæðis-
rétt á aðalfundi Samtakanna og hefur hver
þeirra aðeins eitt atkvæði. Allar ákvarðanir
aðalfundar eru gerðar með einföldum meirihluta
atkvæða þeirra fulltrúa, sem viðstaddir eru á
auglýstum fundartíma og atkvæði greiða. (Sbr.
þó 21. og 22. grein). Atkvæðagreiðsla er þó
aðeins gild ef við-staddur fjöldi fulltrúa
jafngildir helmingi kjörinna fulltrúa sem aðal-
fund sækja.
10. grein - Ákvörðunarvald
Aðalfundur skal hafa ákvörðunarvald varðandi
allt er varðar skipulag og stjórn Samtakanna,
sbr. þó 3. grein.
11. grein - Stjórnarkjör
Aðalfundur kýs formann, ritara, fjármálastjóra,
deildarstjóra, stjórn Samtakanna og skólanefnd
Hlíðardalsskóla.
V. kafli - UM EMBÆTTISMENN SAMTAK-
ANNA OG STÖRF ÞEIRRA
12. grein - Embættismenn
a) Formaður Samtakanna skal hafa yfirumsjón
með starfsemi þeirra, vera fundarstjóri á
aðal- og stjórnarfundum og vinna að öðru
leyti að hagsmunum Samtakanna í samráði
við stjórn þeirra. Störf sín skal for-
maðurinn rækja í samræmi við markmið Stór-
Evrópudeildarinnar og í nánu samráði við
stjórn hennar.
b) Ritari skal annast fundargerðir fyrir aðal-
og stjórnarfundi Samtakannna og framkvæma
aðrar skyldur sem starfi hans tilheyrir.
Ritari starfar undir yfirumsjón stjórnar
Samtakanna og er varaformaður hennar.
c) Fjármálastjóri skal veita viðtöku þeim
fjármunum sem tilheyra Samtökunum, ver-
ja þeim í samráði við stjórnina og greiða
þá fjármuni til Deildarinnar sem henni til-
heyra í samræmi við starfsreglur hennar.
Fjármálastjóri annast bókhald fyrir fjármál
Samtakanna. Einnig skal hann gera allar
fjárhagsáætlanir og skýrslur með reglulegu
millibili, sem formaðurinn eða stjórnin
kann að óska eftir og leggja fram skýrslur
Aðventfréttir 5. 1988