Aðventfréttir - 01.05.1988, Page 29
um fjárhag Samtakanna á aðalfundi þeirra.
Fjármálastjóri sendi regluleg fjárhags-
yfirlit til Stór-Evrópudeildarinnar.
d) Deildarstjóri skal vinna að framgangi
þeirra mála er heyra undir þá deild er
hann veitir forstöðu, tala fyrir þeim og
leggja fram nauðsynlegar yfirlitsskýrslur
varðandi þau. Hann skal vera stjórninni
ráðgefandi varðandi málefni þeirrar deildar
er hann ber ábyrgð á og starfa undir stjórn
formannsins og stjórnarinnar.
VI. kafli - STJÓRN SAMTAKANNA.
13. grein - Skipan og verksvið
a) Stjórn samtakanna skal kosin á aðalfundi
þeirra og vera skipuð 7 manns. í henni
skulu eiga sæti formaður, ritari og fjár-
málastjóri Samtakanna og skólastjóri Hlíð-
ardalsskóla. Mælt er með að einn af deild-
arstjórum Samtakanna eigi sæti í stjórn
þeirra en að öðru leyti skal stjórnin skip-
uð leikmönnum safnaðarins.
b) Stjórnin fer með málefni Samtakanna milli
aðalfunda í samræmi við lög þeirra o g
ákvarðanir aðalfundar og fer með umboð
aðalfundarins milli aðalfunda þ.m.t. umboð
til að ráða starfsmenn og segja þeim upp
störfum ef ástæða þykir til, til að til-
nefna stjórnarmenn ef nauðsyn krefur og
veita eða afnema starfsréttindi. Til að af-
nema starfsréttindi þarf samþykki tveggja
þriðju (2/3) hluta stjórnarinnar.
14. grein - Skuldbindingar
Samþykki stjórnarinnar þarf til að skuldbinda
Samtökin og fara formaður og fjármálastjóri
sameiginlega með umboð stjórnarinnar í slíkum
tilvikum.
15. grein - Boðun stjórnarfunda
a) Formaðurinn eða ritari í fjarveru hans,
getur boðað til stjórnarfundar hvenær sem
er.
b) Stjórnin telst ályktunarhæf ef minnst 5
stjórnarmenn að formanni meðtöldum sækja
stjórnarfund að því þó tilskyldu að allir
stjórnarmenn sem hægt var að ná til hafi
fengið fundarboð.
c) Kalla má til fundar í stjórn Samtakanna til
að fjalla um knýjandi mál jafnvel þó að
færri en 5 séu viðstaddir. Ályktanir slíkra
funda eru eigi fullgildar fyrr en álykt-
unarhæf stjórn hefur fjallað um þær.
VII. kafli - FJÁRMÁL
16. grein - Fjármunir
Fjármunir Samtakanna eru þessir:
a) Tíund frá hinum ýmsu söfnuðum, sem eru á
starfssvæði Samtakanna.
b) Allir sérstakir fjármunir, sem fram koma
við samskot, arf, dánargjafir eða aðrar
gjafir innan starfssvæðis Samtakanna.
c) Þeir fjármunir sem veittir eru af Stór-
Evrópudeildinni eða öðrum aðilum til stuðn-
ings einhverri stofnun eða verkefni Sam-
takanna.
Ráðstöfun fjármuna skal vera í samræmi við
reglur Stór-Evrópudeildarinnar. Gjöfum skal
ráðstafað í samræmi við vilja gefenda og í
samræmi við gildandi landslög.
Fjármunir skulu varðveittir á tryggan hátt í
nafni Samtakanna svo sem nánar er kveðið á um í
reglugerðum Stór-Evrópudeildarinnar um meðferð
fjármuna.
17. grein - Gjafir
Samtökin taka við gjöfum frá söfnuðum,
hvíldardagsskólum, félögum og einstaklingum
til starfsemi Sjöunda dags aðventista utan
starfssvæðis Samtakanna og senda þær til
fjármálastjóra Stór-Evrópudeildarinnar.
18. grein - Tfund
a) Samtökin greiða tíund af tíundartekjum
sínum til Stór-Evrópudeildarinnar.
19. grein - Launamál/Starfsmannamál
a) Launanefnd, sem skipuð er fulltrúa frá
Stór-Evrópudeildinni, formanni Samtakanna,
fjármálastjóra Samtakanna ásamt leikmönnum
Aðventfréttir 5. 1988