Aðventfréttir - 01.05.1988, Qupperneq 30
stjórnarinnar og skólanefndar Hlíðardals-
skóla, skal árlega en oftar ef þurfa þykir
endurskoða laun fastráðins starfsfólks Sam-
takanna og leggja fram tillögu til hugsan-
legra breytinga á launum fyrir stjórn Sam-
takanna, sem ásamt stjórn Stór-Evrópu-
deildarinnar hefur ákvörðunarrétt í þeim
málum.
b) Laun lausráðins fólks skulu ákveðin af
stjórn Samtakanna.
c) Ef ekki er um að ræða sérstakan skriflegan
samning milli Samtakanna eða stofnana
þeirra og starfsmannsins er uppsagnar-
frestur þrír mánuðir, eða eins og landslög
gera ráð fyrir.
20. grein - Endurskoðun
a) Reikningar Samtakanna og stofnana þeirra
skulu endurskoðaðir árlega af endurskoð-
anda Stór-Evrópudeildarinnar, sem skal hafa
óhindraðan aðgang að bókhaldi Samtakanna.
b) Fjármálastjóri Samtakanna skal endurskoða
reikninga safnaðanna að minnsta kosti
einu sinni á ári og skal hafa óhindraðan
aðgang að bókhaldi safnaðanna.
VIII. kafli - SÉRÁKVÆÐI
21. grein - Lagabreytingar
Viðbætur eða breytingar á lögum þessum er því
aðeins hægt að gera, að tveir þriðju hlutar
(2/3) viðstaddra fulltrúa á löglegum aðalfundi
samþykki þær. Slíkar tillögur skal bera fram
fyrir fulltrúana með að minnsta kosti eins dags
fyrirvara. Ef nauðsynlegt reynist að boða til
aukafundar vegna tillögu um breytingu á lögum
þessum skal gera grein fyrir henni við boðun
fundarins.
22. grein - Slit
Slíta má Samtökunum ef þrír fjórðu (3/4)
viðstaddra fulltrúa á löglegum aðalfundi eru
því samþykkir. Eignir Samtakanna að frádregnum
skuldum skulu þá ganga til Stór-Evrópudeildar-
innar.
Lög þessi fyrir söfnuð Sjöunda dags aðventista
á íslandi, sem er löggilt trúfélag skv. lögum
nr. 18/1975, um trúfélög, og nýtur réttinda
skv. ákvæðum þeirra laga, voru þannig staðfest
á 30. aðalfundi Samtaka Sjöunda dags aðventista
á íslandi í apríl 1988.
FRÁ # STJÓRNARNEFND
Samþykkt var eftirfarandi tillaga frá stjórn-
arnefnd um stjórnir og starfsfólk Samtakanna
fyrir næsta kjörtímabil:
Formaður: Eric Guðmundsson
Ritari/fiármálastióri: Jóhann E. Jóhannsson
Deildarstiórar:
Almenningstengsladeild: Jón Hj. Jónsson
Heilsu- og bindindisdeild: Jón Hj. Jónsson
Hvíldardagsskóladeild: Þröstur B. Steinþórsson
Leikmannadeild: Steinþór Þórðarson
Menntamáladeild: Erling B. Snorrason
Prestadeild: Eric Guðmundsson
Ráðsmennskudeild: Jóhann E. Jóhannsson
Trúfrelsisdeild: Óráðstafað
Útgáfudeild: Trausti Sveinsson
Æskulýðsdeild: Þröstur B. Steinþórsson
STJÓRN SAMTAKANNA:
Formaður samtakanna
Aðventfréttir 5. 1988