Aðventfréttir - 01.07.1988, Qupperneq 3
AKUREYRI - ÆSKULÝÐSKÓRINN
Föstudaginn 13. maí lagði æskulýðskórinn af stað til Akureyrar ásamt
fylgdarliði og prestum. Tekin var rúta á Ieigu og á Ieiðinni voru
raddböndin æfð. Þegar komið var til Akureyrar var hópnum skipt
niður í tvo hópa. Annar hópurinn lagði íbúð Ómars undir sig en hinn
hópurinn fékk svefnpláss hjá Ellu og Skúla.
Á hvíldardagsmorguninn vöknuðu
allir hressir því úti var sól og
gott veður. í nýja samkomu-
salnum, Sunnuhlíð 12, var hald-
inn hvíldardagsskóli og guðs-
þjónusta þar sem mikið var um
tónlist bæði frá gestum og
heimamönnum. Eftir guðsþjón-
ustu var öllum boðið í mat hjá
Ellu og Skúla. Eftir að hafa
matast var farið að Dvalarheimil-
inu Hlíð þar í bæ og sungið og
spilað fyrir gamla fólkið. En úti
beið okkar sól og gott veður, var
því fundinn garður þar sem allir
gátu notið veðurbliðunnar.
Eftir að hafa snætt kvöldmat hjá
gestgjöfum okkar var haldið af
stað í áttina að Svalbarðskirkju,
en sóknarpresturinn þar, sr.
Bolli Gústafsson, Laufási hafði
góðfúslega boðið okkur að halda
tónleika þar. Er þetta mjög sér-
stæð kirkja. Hljómburðurinn þar
var alveg sérstaklega góður. Það
var svo gott að syngja þar að
kórinn hætti ekki fyrr en hann
hafði sungið flest lögin sem hann
kunni! Þar á eftir bauð kvenfélag
kirkjunnar öllum í kaffi.
Þótt komið væri kvöld voru
margir hressir og ekkert á því
að fara að sofa. Þessu liði var
keyrt niður í miðbæ Akureyrar
og var farið í smá skoðunarferð
um bæinn en síðan masserað
heim.
Morguninn eftir var svo ákveðið
að fara í sund. Annar hópurinn
vaknaði eldsnemma, gerði morg-
unleikfimina, mataðist og pakkaði
niður, þaut síðan út á stétt með
allt dótið og beið svo eftir hinum
hópnum. En ekkert bólaði á hon-
Smári bílstjóri í góöum félags-
skap - Kristínar og Gyðu Skúla-
dœtra
Karen söngstjóri, Bjössi og
dóttirin Rebekka og Ester
undirleikari
Sungið í Akureyrarkirkju
Sungið á dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri
Aðventfrétlir 6-7. 1988