Aðventfréttir - 01.01.1995, Blaðsíða 4

Aðventfréttir - 01.01.1995, Blaðsíða 4
Ráðstefna starfsfólks í kristilegu starfi Á vegum Albjóðastarfs kristniboðssamtaka Billy Graham Dagana 16.-18. mars n.k. verður sjónvarpað frá Puerto Rico út um allan heim og hingað til íslands samkomum Billy Graham. Hér á landi verða samkomurnar haldnar í nýju íþróttahúsi Fram, Safamýri 26, Reykjavík kl. 20:00 - 22:00. Samhliða samkomunum standa samtök Billy Graham fyrir ráðstefnu fyrir leiðtoga og starfsmenn í kristi- legu starfi úr hvaða kristnu trúfélagi sem er. Ráðstefnugestir verða einnig tengdir við Puerto Rico með aðstoð gervihnatta. Ráðstefnan fer fram í aðalstöðvum KFUM og K, Holtavegi 28, Reykjavík, 16. - 18. mars. Rástefnugjald er kr. 3.000.- og innifalið í því er matur, kaffi og ráðstefnugögn. Innritun í s. 588 8899 kl. 10:00 -17:00. Þátttakendur taki með sér Biblíu og ritföng. Efni ráðstefnunnar er boðun fagnaðarerindisins og verður áherslan þrískipt: prédikarinn (hvernig eigum við að VERA?), boð- skapurinn (hvað eigum við að VITA?) og aðferðir (hvað eigum við að GERA?) Fyrirlesarar auk Billy Graham sjálfs verða John Gichinga, Luis Palu, Ravi Zakcharias, Ulrich Parzany, Gottfried Osei-Mensah, Billy Kim Michael Baughen og Leighton Ford. Kynningarbæklingur með nánari upplýsin fæst á skrifstofu Sam- takanna. Heimílishjálp í sumar Bresk stúlka, Louise Rowell að nafni, óskar að búa á íslensku aðventheimili í tvær til þrjár vikur í seinni hluta ágúst 1995. Hún óskar þess að fá að taka að sér hvaða vinnu sem er innan heimilisins fyrir uppihaldinu. Hún hefur sérstakt yndi af börnum og dýrum. Fyrir þá sem kynnu að óska þess að fá Louise í heimsókn er heimilisfang hennar: 30 Walkers Green, Marden, Her- eford HR1 3DU, England. BOÐ TIL RAÐSTEFNU AÐALSAMTAKANNA í UTERECHT í SUMAR Frá Robert S. Folkenberg formanní Aðalsamtakanna 29. júní til 8. júlí 1995 munu Sjöunda dags aðventistar hvaðanæva að úr heiminum koma saman í Utrecht í Hollandi og halda ráðstefnu Aðal- samtakanna. Ég óska þess að bjóða sem flestum af okkar fólki að koma og vera viðstatt. Þú þarft ekki að vera fulltrúi til þess að koma. Gestir eru vel- komnir því við höldum opna ráðstefnu. Þessi ráðstefna mun fást við einhverjar þær áhrifaríkustu skipulags- breytingar sem orðið hafa á starfinu síðastliðin 90 ár. Söfnuðurinn mun gefa fulltrúum tækifæri til þess að taka þátt í umræðuhópum og einnig könnun meðal fulltrúa sem munu gefa leiðtogum mikilvægar vís- bendingar varðandi mikilvæg málefni sem söfnuðurinn mun glímavið næsta fimm ára tímabil. Spennandi upplýsingar og framtíðarverkefni munu vera kynnt frá Heims-boðunarátakinu og einnig frá deildum heimsstarfsins varðandi ný tækifæri um boðun. Einnig munu verða skýrslur á hverju kvöldi um árangur starfs safnaðarins í hinum ýmsu heimshlutum. Reynið þess vegna að taka heimsókn til Hollands með í skipulagningu ykkar á þessu ári til þess að þið getið tekið þátt í sögulegum viðburð í lífi safnaðarins. □ Frá G.W. Mandemakar formanni Sambands Sjöunda dags aðventista í Hoiiandi Aðventistar í Hollandi eru hreyknir af því að vera gestgjafar ykkar 1995. Við horfum fram til frábærrar ráðstefnu Aðalsamtakanna í Utrecht með vinum og trúsystkinum frá öllum heimshlutum. Holland eða Niður- lönd er lítið land og fólksfjöldinn er 15 milljónir. Landið umlykur ósa tveggja stórfljóta - Rínarfljótsins og Moselfljótsins - og nágrannarnir eru Þjóðverjar og Belgar. Þó Holland sé lítið land á það sér frækna sögu. Listaverk hollenskra meistara: Rembrandt, Frank Hals og Vincent van Gogh eru sýnd í listasöfnum um allan heim. Húmanistinn Erasmus frá Rotterdam er einnig heimsfrægur. Holland er konungsríki og þjóðhöfðingi landsins er Beatrix drottning. Allir salir Jaarbeurs ráðstefnuhallarinnar þar sem ráðstefna Aðalsam- takanna mun farafram eru nefndir nöfnum konungsfjölskyldunnar. Utrecht er í miðju Hollands og íbúatalan er 180.000. Höfuðstöðvar safnaðarins í Hollandi eru staðsettar 15 km. frá Utrecht í íbúðarhúsi heldri manna fjölskyldu frá 17. öld. Barnaskólinn okkar og elliheimilið eru einnig þar í næsta nágrenni. Söfnuður aðventista í Hollandi telur um 4.500 skírða meðlimi sem skiptast í 50 söfnuði víðsvegar um landið. Þessi litli söfnuður í Hollandi lítur á ráðstefnu Aðalsamtakanna í Utrecht sem einstakt tækifæri til þess að sýna fram á að hann tilheyrir heims- fjölskyldu aðventista. Við vonum öll að þessi viðburður sem mun eiga sér stað í Utrecht 1995 muni verða söfnuðinum hér í Hollandi mikil hvatning. Sjáið þið til - þið munið njóta þess að heimsækja okkur! Ver velkomin til Utrecht 1995. □ 4 AðventFréttir 1,1995

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.