Aðventfréttir - 01.01.1995, Blaðsíða 8
Hola ! Qué Tai ?
Jóna Björg Hjálmarsdóttir skrifar frá Guatemala
trausti og að vera opinskár. Þessir
foreldrar sýna lífi barna sinna
áhuga, en gera sér líka grein fyrir
eigin veikleika og eigin þörf á að
vaxa. Þeir ala í brjósti sér elsku til
raunverulegs Guðs, sem elskar þau
og lætur sér annt um þau. Þau
hvetja börnin til að spyrja og þreifa
fyrir sér. I lífi sínu hafa þau rúm fyrir
Guð, sem er meiri en þau sjálf og
sem mannkynið þekkir ekki enn til
hlítar. Slíkir foreldrar geta sagt við
lítið barn: „Þú hafðir á réttu að
standa, en ég á röngu. Fyrirgefðu
mér! Hjálpaðu pabba að gera betur."
Unga fólk, getið þið fyrirgefið
okkur? Foreldrar, getið þið fyrirgefið
ykkur sjálfum? Getið þið fyrirgefið
foreldrum ykkar?
Þessi áhyggjuefni snerta ekki
aðeins ættmenn. I hinu kristna sam-
félagi, þeirri stóru fjölskyldu, erum
við öll börn og erum hvert öðru
bræður og systur og foreldrar. Þetta
er staðurinn fyrir hina særðu, veik-
byggðu og smáu. Hér verður að vera
öruggt skjól fyrir börnin. Við
verðum að láta okkur annt hvert um
annað. Leiðbeiningar Jesú eiga
erindi til okkar allra. Þið getið ekki
sagt að þau séu ekki ykkar börn því
Jesús sagði ykkur: „Það sem þið
gerið einum af þessum smælingjum,
hafið þið gert mér."
Við börnin og unglingana vil ég
segja þetta: Gefist ekki upp á að
þjóna Guði, jafnvel þótt ykkur
finnist jþið séuð að gefast upp á
okkur. Eg bið ykkur að hjálpa okkur
að læra, hvernig við getum verið
eins og börn, hvernig getum verið
ykkur lík.
Ron Hyrchuch er
æskulýðsprestur
við Sligo kirkju
Sjöunda dags
aðventista í
Takoma Park í
Maryland í
Bandaríkjunum.
Grein þessi birtist í 17. júní 1993 í
safnaðarblaðinu Adventist Review.
Þýðandi: Sigurður Bjarnason
Ný og breytt símanúmer
Ný símanúmer tóku gildi 01.02.95
Samtökin: 588 7800
Símbréf: 588 7808
Frækornið: 588 7100
Guatemala 21. nóvember 1994.
Þá er ég loks sest niður til að
skrifaykkur nokkrar línur. Já hingað
til Guatemala er ég þá loks komin
og reyndar búin að dvelja hér
síðustu 12-13 vikurnar, þ.e. síðan 2.
september. Ég hef það bara mjög
gott!
Hér starfa ég sem sjálfboðaliði á
Hogar Los Pinos, Receiving Center.
Heimili fyrir börn sem eru
foreldralaus eða þá að foreldrarnir
eiga í einhverjum vandræðum svo
þau gefa börnin hingað. Hér eru
börn sem hafa fundist í
ruslagámum, verið seld fyrir 1500-
2000 kr. o.s.frv.
Sögurnar eru margar og ekki í
hávegum hafðar. Börnin eru á
aldrinum 1 mánaða til 7 ára og mitt
starf felst í því að hugsa um þeirra
andlegu og líkamlegu þarfir.
Samtökin sem reka þetta
heimili heita International
Childrens Care, ICC og
voru stofnuð fyrir um 16-
17 árum fyrir tilstilli
Folkenbergs, þessi
samtök reka heimili víða
um veröld.
Hér í Guatemala eru tvö
heimili, annað er í
höfuðborginni en hitt í
þorpi sem heitir Peteng
Poptun eða Los Pinos í
Poptun. Þar eru um 150
börn frá 4 ára aldri.
Krakkarnir dvelja á þessu
heimili fyrir foreldralaus
börn þangað til þau eru uppkomin
eðaallttil 25 áraaldurs eðajafnvel
lengur. En þau eru líka löngu farin
að vinna hin ýmsu störf þarna í
þorpinu. í Poptún er skóli frá
barnaskóla alveg upp í háskóla. Þar
er líka kirkja, o.fl. Mér skilst nú samt
að lífið þarna sé mjög frumstætt, en
þau framleiða sitt eigið rafmagn
o.s.frv. og svo er ICC að reyna að
koma nútíma menningu að á
þessum stað.
Hér í Los Pinos er alltaf nóg að
gera. Þó eru matmálstímar alveg
sérlega annasamir og
hávaðasamir! Þá vilja allir borða á
sama tíma og það gengur alveg upp
með eldri krakkana en þau yngri 0-2
ára þurfa miklu meiri athygli og eru
flest mötuð, það vill svo til að 0-2 ára
börnin eru „börnin mín“ þ.e. þau
sem ég sé um. En einhvern veginn
reddast þetta alltaf! Hér er ýmislegt
gert til að stytta börnunum stundir, á
morgnana kemur kennari og sér
þeim eldri fyrir ýmsum
afþreyingarefnum svo fá þau að
leika sér.
Á hvíldardögum er farið með 10-
12 krakka í kirkju og þá er
eftirvæntingin orðin svo mikil hjá
þeim að allt er á suðupunkti rétt áður
en lagt er af stað. Einnig eru nokkur
af þeim elstu í skátum og tóku þau
þátt í skrúðgöngu niður
„Laugarveginn" hér. Þessi
skrúðganga átti sér stað 4. sept. og
var í tilefni afmælis SDA
skátastarfsins hér. Voru þarna
saman komnir hátt í 1000 skátar og
þótti það vera fámennt.! SDA
safnaðarlífið er blómlegt hér. í
október stóðu yfir
útbreiðslusamkomur í 18-20 skipti
Skátar í skrúðgöngu
8
AðventFréttir 1,1995