Aðventfréttir - 01.01.1995, Blaðsíða 11

Aðventfréttir - 01.01.1995, Blaðsíða 11
einstakling sem verðugan okkar innilegasta kærleika og umhyggju. Kristur dó nú einu sinni fyrir okkur öll! Fá orð lýsa hlutverki hins kristna betur en orðið „mannasættir." Slík persóna - sú sem leiðir fólk saman, leysir deilur og starfar sem meðal- göngumaður milli þeirra sem gerst hafa fráhverfir hverjir öðrum - eru ómetanlegir í hvaða samfélagi sem vera skal. A sama hátt og storminn lægði jafnskjótt og Jesús steig um borð (Mt 14.32), þannig á fólk að verða vart við hann bæði á ákveðnum stöðum, á þjóðlegum grundvelli og jafnvel á alþjóðlegu stigi. Við vanrækjum eina af höfuð- skyldum okkar sem kristinna manna ef við höldum okkur frá fólki, stöðum eða aðstæðum sem þurfa á þjónustu sáttargjörðarinnar að halda. Það starf er kjarni Elía boð- skaparins, síðustu viðvöruninni sem söfnuðurinn veitir heiminum á síðustu dögum. „Hann mun snúa hjörtum feðra til barna sinna og hjörtum barna til feðra sinna" (Mal 4.6). Hvaða lýsing á sáttagjörðinni tekur þessari fram? Þegar lærisveinarnir komu saman í loftstofunni á hvítasunnunni, voru þeir allir sem „eitt hjarta og ein sál" P 2.1. Ellen White greinir frá því, að þegar „þeir hafi lagt til hliðar alla misklíð hafi þeir gerst nánir í kristi- legu samfélagi ... Byrðin af frelsun sálna lá þungt á þeim" (The Acts of the Apostles, bls. 37). Þeir voru sameinaðir, þeir höfðu hitt hinn upprunalega frelsara og þeir höfðu boðskap að flytja. En það var samt einn þýðingar- mikill þáttur, sem vantaði - Heilagur andi. Það er Andinn, sem gefur söfnuðinum líf. Lærisveinarnir höfðu fundið kraft Andans í fjöl- mörgum tilvikum og Jesús hafði heitið því áður en hann hvarf á brott héðan, að huggarinn (Andinn) yrði með þeim að eilífu. En Heilagur andi er hæstráðandi. Andinn á okkur - við eigum ekki Andann. Andinn kaus að koma yfir lærisveinana á hvítasunnudaginn og búa í þeim því að það var rétti tíminn og staðurinn samkvæmt hinum guðlega vilja. Enginn mann- legur máttur getur þvingað Andann, engin mannleg viðleitni. Ekki megna slíkar áætlanir að koma neinu til vegar, sem hefur varanlegt gildi, án Andans. Andinn veitir gjafir náðar Guðs til að gera söfnuðinn hæfan til að sinna hlut- verki sínu og þjónustu. A fjórum stöðum í bréfum sínum setur Páll fram lista yfir hinar ýmsu gjafir Andans og útskýrir tilgang þeirra. Ef hægt er að tala um að sumar gjafir séu fremri en aðrar, þá mættí benda á að þær gjafir sem varða boðun fagnaðarerindisins eru ávallt nefndar fyrst, síðan gjafir til þjónustu og sérhæfðar gjafir síðast. En allar þessar gjafir gera mönnum kleift að gegna vissu hlutverki fyrir söfnuðinn, fremur en að veita vald og umboð til að gegna einhverju sér- stöku embætti. Einn þýðingarmikill lærdómur, sem má lesa út úr þessum listum er sá að gjafir Andans eru ætlaðar öllum söfnuðinum, ekki bara einhverju broti af honum eða prestum eingöngu. Sennilega setur Páll þetta skýrast fram í Efesusbréfi 4.8-12. Það er aðeins einn líkami og einn Andi, segir Páll (4. vers), og hverjum lim þessa líkama hefur Kristur gefið gjafir - postula, spá- menn, trúboða, hirða og kennara - tíl að undirbúa lýð Guðs tíl að sinna þjónustu. Eigi söfnuðurinn að gegna hlut- verki sínu, er það alger nauðsyn að skilningur sé á þessari hugsun og henni hrint í framkvæmd. Hafir þú meðtekið Krist sem frelsara þinn og verið skírður í hans nafni og inn í líkama hans (söfnuðinn), þá ert þú prestur. Málið snýst ekki um það, hvort kristínn maður verður prestur eða ekki heldur til hvers konar þjónustu hann eða hún hafi verið kölluð. Þeir sem þjóna sem hirðar og útbreiðsluprédikarar þurfa að gera sér grein fyrir því, að þeirra þjónustu er best lýst sem hjálpar- þjónustu. Fyrir blessun Heilags anda er hlutverk þeirra fólgið í því að skapa farveg hinum miklu mögu- leikum sem í söfnuðinum búa. Þörf fyrir alla Hvenær sem Páll skrifar um and- legar gjafir, þá gerir hann það með þeim skilningi að þær eigi við söfnuðinn sem líkama Krists. Þetta er sennilega sú líking varðandi söfnuðinn, sem mest ber á og notuð er í Biblíunni. Sú staðreynd að Páli fannst nauðsynlegt að nota líkinga- mál til að lýsa söfnuðinum, segir okkur að engin mannleg orð eða hugtök nægja tíl að lýsa hinum guð- lega og mannlega veruleika, sem í söfnuðinum býr. Auðvitað er hægt að öðlast djúpan andlegan skilning með því að kynna sér það, sem Páll hefur að segja um söfnuðinn sem líkama Krists. í Rm 12.4-8 er aðallær- dómurinn eining í margbreyti- leikanum. Guð hefur gefið safnaðar- fólkinu margvíslegar gjafir. Sérhver gjöf og hver limur er nauðsynlegur til að starf safnaðarins geti gengið hnökralaust. Líkami sem misst hefur einn lima sinna er fatlaður. Það er brýnt að við nærum hvert annað af því að við erum „hver um sig annars limir" (5. vers). Þetta leiðir okkur að öðru atriði Páls: Hvert öðru háð. Rétt eins og handleggur eða fótleggur geta ekki lifað ef þeir hafa verið teknir af líkamanum, þannig getur kristinn maður ekki lifað af kjósi hann að einangra sig frá trúsystkinum sínum. I lKor 12. setur hann fram sömu tvö atriðin og hér hafa verið rakin að framan en bætir við því þriðja -jafn- ræði. Við eigum ekki að líta á okkur sem öðrum æðri eða að gjafir okkar séu þýðingarmeiri en annarra. „En nú hefur Guð sett hvern einstakan lim á líkamann eins og honum þóknaðist" (18. vers). Ennfremur segir Páll í Efesusbréfi 4. kapítula, ef líkami fær næringu hlýtur hann að vaxa. Á sama hátt hlýtur sá söfnuður að vaxa tíl fulls þroska, sem nærist á orði Guðs og nær "vaxtartakmarki Krists fyllingar" (13. vers). Safnaðaraðild er miklu meira en að hafa nafn sitt á kirkjubókunum. Við erum öll þýðingarmiklir þættir í hinu mikla áformi Guðs að frelsa mannkynið. Pétur skrifaði að við hefðum verið kölluð út úr þessum heimi til að „víðfrægja dáðir hans," sem kallaði yður frá myrkrinu til síns undur- samlega ljóss." (lPt 2.9). Til hvers er söfnuðurinn eigin- lega? Hann er tíl í því augnamiði að vinna verk foringja hans, Jesú Krists. Eins og hann kom til að lifa lífi þjónustu og opinbera kærleika Guðs, þannig á söfnuðurinn að bera vitnisburð um líf hans, dauða og upprisu. Fyrir tilstilli safnaðar síns, sem fylltur er Andanum, á Kristur að vera holdi klæddur í heiminum. Þýðandi: Sigurður Bjarnason 'Eða: kirkja 2Eða: kirkjan 3Eða: Þeir sem safnað hefur verið saman. 4Eða: kirkjunnar 5Eöa: kirkjunni AðventFréttir 1,1995 11

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.