Aðventfréttir - 01.01.1995, Blaðsíða 13

Aðventfréttir - 01.01.1995, Blaðsíða 13
MINNINGAR í þróun. Þeim mun átakanlegri voru þeir fjötrar sem sjúkdómurinn lagði á þennan andans- og atorkumann sem Sigurður var. En hann barðist hetjulega fyrir því að vera sjálf- bjarga sem lengst. Hann var stöðug- lega eins virkur í starfi eins og honum var framast unnt þessi sjúk- dómsár. Þó kom að því að hann varð að leggjast inn á sjúkrahús og dvaldist hann meira eða minna á sjúkrahúsi frá 27. mars 1992. Lengst af dvaldist hann á deild 32A á Landspítalanum. Nú er hann sofnaður, þessi hetja í ísrael, eftir að hafa barist trúarinnar góðu baráttu og líf hans er falið frelsaranum. Og nú bíður hann upprisunnar þegar Drottinn kallar hann fram úr gröfinni og segir: „Gakk inn til fagnaðar herra þíns." Utför Sigurðar fór fram frá Aðventkirkjunni í Reykjavík 14. desember s.l. að viðstöddu fjölmenni. Undirritaður jarðsetti með David West, safnaðarpresti Reykjavíkursafnaðar. Söfnuðurinn kveður með virðingu og innilegu þakklæti fyrir fórnfúst starf og vottar ástvinum samúð. Blessuð sé minning hans. Eric Guðmundsson t Alúðarþakkir fyrir alla vinsemd og samúð vegna fráfalls eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa Sigurðar Bjarnasonar Guð blessi ykkur öll Aðalheiður Ólafsdóttir Gunnar Sigurðsson Bjarni Sigurðsson Helga Arnþórsdóttir Rakel Ýr Bjarnadóttir Rebekka Bjarnadóttir snillingur til allra hluta og allt lék í höndum hans. Lengst af var hann heilsugóður. En fyrir þrem árum greindist hann með alvarlegan sjúkdóm, sem varð hans aldurtili, er hann lést á Lands- spítalanum hinn 13. janúar s.l. Við mikið fjölmenni var útför hans gerð frá Selfosskirkju, Selfossi. Undirritaður jarðsetti, en naut við athöfnina aðstoðar staðarprestsins, sr. Þóris Jökuls Þorsteinssonar og David West prests Aðventsafnað- arins í Reykjavík. Söfnuðurinn kveður með virðingu og þakklæti og vottar ástvinum innilegustu samúð. Ástvinum öllum votta ég innilegustu samúð Hér er góð drengur genginn, blessuð sé minning hans. Jón Hjörleifur Jónsson MÁLFRÍÐUR LOFTSDÓTTTR Fædd: 3. jún. 1897 Dáin: 20. jan. 1995 Systir Málfríður Loftsdóttir fæddist 3. júní 1897. Hún var næst elst í 12 systkina hóp. Málfríður ólst upp í foreldrahúsum og lauk til- skyldri barnafræðslu í heimabyggð sinni. Árið 1915 lést faðir hennar. Leystist þá heimilið upp. Þá enn ung lagði Málfríður leið sína til ísafjarðar. Þar lærði hún karl- mannafatasaum. Þótti sú iðn vegleg og vænleg og vann Málfríður fyrir sér við saumaskap, auk vist- mennsku. JÓSEF SMÁRI GUÐMUNDSSON Fæddur: 4. nóv. 1928 Dáinn: 13. jan. 1995 Bróðir Smári Guðmundsson fæddist 4. nóvember 1928, yngstur í hóp 12 systkina. Hann ólst upp í foreldra- húsum - frá 13 ára aldri að Hólum í Biskupstungum og vann við almenn sveitastörf fram til 24 ára aldurs. Þann 4. maí 1946 gekk hann í Aðventsöfnuðinn. Hinn 19. maí 1952 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni Guðrúnu ídu Stanleysdóttur. Þeim varð sex barna auðið, sem öll lifa föður sinn. Fyrstu tvö hjúskaparárin bjuggu þau að Hólum, Biskupstungum. Eftir það fékkst Smári lengst af við akstur fólksflutningabifreiða, á áætlanaleiðum, hópferðaakstur inn á öræfi Islands, matfangaflutning til virkjanastöðva sunnanlands, svo og inn á afrétt til gangnamanna við haustsmalanir, auk ýmiss konar annarra flutninga. Einnig brá hann fyrir sig akstri leigubifreiða, stundaði búskap að Arnarbæli, Biskupstungum, var staðarsmiður og verkstjóri að Hliðardalsskóla, Ölfusi og rak eigið fyrirtæki, Sendi- bílastöð Selfoss frá árinu 1974 að telja. Eftir nokkur búsetuskipti í fyrstu og allmargra ára dvöl á Selfossi, keyptu Smári og Ida eignina Rein í Ölfusi og áttu þar heima æ síðan. I áralöngu, umfangsmiklu starfi sínu kom bróðir Smári víða við og átti samskipti við reginfjölda fólks. Alls staðar var hann eftirsóttur fyrir ljúfmennsku og lipurðar sakir, auk þess sem hann var hinn mesti verk- AðventFréttir 1,1995 13

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.