Aðventfréttir - 01.01.2002, Page 9

Aðventfréttir - 01.01.2002, Page 9
Vestmannaeyjaferð unga fólksins Helgina 15. til 17. febrúar fóru rúmlega 20 ungmenni aðventkirkj- unnar, til Vestmannaeyja. Veðrið lof- aði ekki góðu, og ekki var útlit fyrir að yrði flogið. En það er gott að vera í sambandi við þann sem stjórnar veðri og vindum og um kvöldið á föstudeginum voru allir komnir til eyja heilir á húfi með Guðs hjálp. Þegar við sem komum með Herj- ólfi, þessu yndislega skipi, til Vest- mannaeyja var tekið vel á móti okk- ur við bryggjuna eins og ávalt. Þar voru nokkrir heimamenn komnir til að keyra farangur okkar upp í safn- aðarheimilið sem við gistum í um helgina. Þegar við komum þangað var þar gæsla fyrir börn, og hvað er betra en að koma að brosandi barna- hóp eftir rúmlega 3 tíma megrunar siglingu til Vestmannaeyja. Við byrjuðum hvíldardaginn á því að vakna klukkan 9 og borða saman morgunmat. Þar á eftir byrj- uðum við hvíldardagsskólann síðan guðþjónustu þar strax á eftir. Eftir kirkju þá var komið að því að ganga í hús með könnun um aðventkirkj- una í Vestmannaeyjum og 3ABN sjónvarpsstöðina. Við skiptum okk- ur niður í hópa og fórum tvö og tvö saman. Eg og Hlynur fórum saman í tvö hverfi og gekk það ágætleg. í fyrstu var fólk ekki alveg tilbúið í að eyða tíma í okkur þar sem Vest- mannaeyjaliðið í handbolta var að keppa í sjónvarpinu. En þegar á leið þá fór fólk að taka vel í okkur meðal annars vegna þess að Vestmannaeyja liðið vann leikinn. Fólk og þá sér- staklega eldra fólk var sérstaklega tilbúið til að tala við okkur um hvernig þeir mundu eftir aðventist- um þegar þau voru ung og að þau hefðu sótt skóla í aðventkirkjunni. Flest þeirra þekktu aðventistana í bænum og fóru um þá einungis góð orð. Ég man sérstaklega eftir því þegar við vorum komin að síðasta húsinu en þar bjó eldri kona sem bauð okkur Hlyni inn. Og þegar sú spurning kom upp hvort hún vissi um eitthvað sem einkenndi að- ventista þá sagði hún „Já það veit ég, þetta er allt saman gott fólk". Um fjögur leytið fóru nokkur okkar með miða í bæinn til þess að auglýsa samkomuna okkar um kvöldið og á meðan fóru hinir sem eftir voru á sambýli og áttu þar not- arlega stund með þeim sem þar bjuggu. Um kvöldið héldum við svo sam- komuna og höfðu allir gaman af. Síðar um kvöldið héldum við svo okkar vanaföstu keppni í Trivial per- suit og var ég beðin um að þegja um öll úrslit hvað það varðar. Snemma næsta dag fullyrti keppandi stúlkna- liðssins að einn strákanna hafi verið að lesa spurningarnar og læra þær greinilega utan að til að undirbúa sig fyrir næstu keppni sem ég vona að miklu fleiri geti tekið þátt í. Þeir sem ekki gátu séð sér fært um að koma ættu að skella sér með næst því það er ekkert skemmtilegra en að gubba saman í Herjólfi, ja eða fljúgja, en það sem skipti mestu máli er að það er frábært að fá tækifæri til þess að fá að boða og fá fólk til að koma í kirkj- una okkar og líka að fá að kynnast þessu yndislega fólki sem er í Að- ventkirkjunni í Vestmannaeyjum. Ég hef ekki tekið upp úr töskunum mín- um í þeirri von um að við fáum ann- að tækifæri á að fara þangað miklu fleiri saman fljótlega. Mig langar að enda á því að vitna í Jesú sjálfan í Matteus 28; 18 til og með 20 vers. „AHt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið pví og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skíriðþá í nafniföður, son- ar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hefboðið yður. Sjá ég er með yður alla daga allt til enda ver- aldar," Með kveðju og þökk fyrir skemmtilega helgi. Marinó Muggur Þorbjarnarson. Other programmes Oiploma in Islamic Studies Certificate and Diploma in Christian Counselling For further information contact: Neuubotd College, St Marks Rond, Bracknell Berks, RG42 4AN, England Tel:+44 (0)1344 407421 Your ‘Future: reacft for ít at ... Visit our website at www.newbold.ac.uk ‘Fíewfofd CofCegt ‘Enafancf School of English UK Undergraduate Prpgrammes BA/BA(Hons)/Humanities Theological studies) BA/BA(Hons)/Biblical S USA Undergraduate Degrees BS Accounting, BS Management BS Behavioral Sciences (Psychology S BA English and/or History General Education credits available Postqraduate Deqrees Biblical, Pastoral and Theological Studies for English Courses: Summer School in English 27 August to I2 Deccmber 2(KK 20 June to I7)ulv 2<H>2 Degree courses also available Apply to: Dlrector of Admissions, Newbold College, St Marks Road, Bracknell, Berks RG42 4AN. England Tel: +44 (0)1344 407421 Fax: +44 (0)1344 407405 email: admissions@newbold.ac.uk finance@newbold.ac.uk Visit: WWW.newbold.ac.uk • •oo accredited by ÍSSÍSÍI The British Cotmcil Aðventfréttir 9

x

Aðventfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.