Aðventfréttir - 01.01.2002, Side 11
Linda Porter Carlyle: ___ Ksssaa-,. t \ r~* II ' i
Orin hennar g — f f \ ( y' \ l
mommu i \ f
u
Jóh. 15:13 „Enginn á meiri kærleik
en pann að leggja lífsitt í sölurnar fyrir
vini sína."
amma og Sara sátu í stóra
stólnum hans pabba sem var
uppáhalds staðurinn þeirra.
Þar gátu þær setið saman og
spjallað. Mamma ætlaði að fara að
lesa fyrir Söru söguna um það þegar
Jesús var krossfestur. Hún byrjaði á
því að lesa versið sem fylgdi sög-
unni: „Enginn á meiri kærleik en
þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir
vini sína." „Veistu hvað þetta vers er
að segja okkur"? spyr mamma.
Sara hristi höfuðið, nei!
„Það er að segja okkur að þegar
við elskum einhvern mjög mikið þá
erum við tilbúin að gera hvað sem er
til að koma í veg fyrir að hann lendi
í vandræðum eða hættu. Ég get sagt
þér sögu um dálítið sem kom fyrir
mig þegar ég var lítil stelpa sem út-
skýrir hvað ég á við."
„Oh, gott!" sagði Sara og kom sér
vel fyrir í fanginu á mömmu. „Ég
elska sögur!"
„Ég man ekki alveg hvað ég var
gömul „ byrjaði mamma. „Líklega
hef ég verið um það bil ellefu ára."
„Þá varstu nú ekki lítil!" greyp
Sara inní.
Þetta er einfaldur órói
saman settur úr krossum
með orðin úr
Jóh. 15.13 í miðjunni.
„Kannski ekki," sagði mamma og
hló. „Þegar ég hugsa um það núna
þá finnst mér ég hafa verið lítil. En
allavega, mamma hafði verið að
kenna mér að elda mat. Mér fannst
gaman að elda og eitt kvöldið ætlaði
ég að sjá um kvöldmatinn alveg sjálf.
Ég kveikti á fremsta brennaranum á
eldavélinni svo hann myndi hitna.
Síðan setti ég pönnuna innar á elda-
vélina. Ég fylgdist með brennaran-
um verða heitur og eldrauður. Þá
teygði ég mig yfir hann til að ná í
pönnuna en peysan mín kom við
heita brennarann. Veistu hvað gerð-
ist?"
„Hvað?" spurði Sara.
„Peysan mín var logandi," sagði
mamma. „Ég leit niður og sá að ég
var að brenna!"
„Hvað gerðist svo?" spurði Sara.
Augu hennar voru orðin mjög stór af
spenningi.
„Ég vissi ekki hvað ég ætti að
gera," útskýrði mamma. „Ég stóð
bara þarna og öskraði. Pabbi minn
var úti í bílskúr og heyrði í mér.
Hann kom hlaupandi inn í eldhúsið
til að athuga hvað væri að. Hann sá
mig logandi, hljóp til mín og henti
mér niður á gólf og slökkti eldinn
með lófunum."
Efni:
1. Pappír, (best er að nota karton-
pappír)
2. liti (málningu, tússpenna eða tré-
liti)
3. skæri
4. sogrör eða grönn prik
5. snæri eða garn.
6. límmiða
Leiðbeiningar:
Búðu til 4 krossa eins og myndin
sýnir og skrifið KÆRLEIKUR í miðju
krossanna. Gaman er að nota skraut-
lega liti og jafnvel glimmerlím til að
skreyta krossana.
Skreytið bæði að framan og aftan.
Búðu til göt efst í krossana og settu
band í götin. Prikunum eða sogrör-
„Fékkst þú brunasár?" spurði
Sara.
„Það fékk ég svo sannarlega,"
svaraði mamma. „Ég er enn með ör
eftir brunann. Viltu sjá þau?" Hún
hneppti frá blússunni og sýndi Söru
örin.
Sara leit á mömmu sína og það
fór hrollur um hana.
„Pabbi minn, afi þinn, stoppaði
ekki til að hugsa um það að hann
gæti meitt sig. Hann sá að ég var í
mikilli hættu og bjargaði mér og
hann brenndi sig líka á höndunum.
En honum var alveg sama um það
hann hafði bjargað litlu stelpunni
sinni.
„Það er alveg eins með Jesú þeg-
ar hann kom til þess að frelsa okkur
úr þessum synduga heimi, „ hélt
mamma áfram. „ Hann var særður
mjög, mjög illa þegar hann dó á
krossinum fyrir okkur. En hann var
að frelsa börnin sín."
„Jesús hefur líka ör, er það ekki
mamma?" spurði Sara. Ég man eftir
að þú sagðir mér það einhvern
tíman."
„Það er alveg rétt hjá þér, „ sagði
mamma. „Jesús er enn með sín ör á
höndum og fótum frá því að hann
var negldur á krossinn. Þú getur séð
þessi ör þegar þú kemur í himininn.
Jesús er með þessi ör því hann frels-
aði þig.
„Þegar þú sérð örin þín, þá getur
þú munað eftir því hvað afi elskar
þig mikið, er það ekki mamma!"
„Jú, það er alveg rétt!" sagði
mamma.
Sara leit á mömmu sína og sagði
„ég er glöð yfir því að Jesús dó til að
frelsa mig. Ég er líka glöð yfir því að
afi bjargaði þér úr eldinum."
Mamma faðmaði Söru að sér.
unum er komið fyrir í kross og
bundið um miðjuna.
Festið krossana við enda prikan-
na.
Utbúið spjald fyrir miðju óróans
og skrifið á það versið úr Jóhannes
15:13 „Enginn á meiri kærleik en
þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir
vini sína."
Klipptu út hring úr Cherrios- eða
haframjölskassa eða notaðu pappa-
disk.
Settu gat í miðju hringsins og
komdu honum fyrir ofan á prikun-
um.
Hringurinn hjálpar til við að óró-
inn haldi jafnvægi.
Skemmtilegt er að skreyta hring-
inn með málningu og/eða límmið-
um.
Aðventfréttir
11