Aðventfréttir - 01.01.2002, Page 12

Aðventfréttir - 01.01.2002, Page 12
Undraverð bænheyrsla Umferðasali einn frá St.Louis segir yfirmanni sínum frá því að hann hafði selt mikið af vörum kaup- manni einum sem, hann þekkti fyrir að vera áreiðanlegur í viðskiptum og sannkristinn maður. Sex mánuðum síðar gerði verslunin sem hann vann fyrir, honum aðvart um að reikning- urinn hefði ekki enn verið borgaður og bað hann svo fljótt sem unnt væri, að grennslast eftir ástæðunni fyrir drættinu. Þegar hann heimsótti verslun viðskiptamanns síns, fann hann að annar maður var þar til að annast um verslunina. Fékk hann fréttir af því þar, að vinur hans hefði verið veikur af bólunni og hann verið ein- angraður í fleiri mánuði. Veikin hafði verið svo þung að hann gat enn ekki farið út, svo að umferðar- salinn gat ekki séð hann, en hann skrifaði honum og fékk bréf aftur þess efnis að reikningurinn yrði borgaður svo fjótt sem unnt væri. Aðrir sex mánuðir liðu. Kaup- maðurinn fann að verslunin hafði tapað stórkostlega meðan hann var veikur en hann endurnýjaði loforð sitt við umferðasalann um að hann skyldi ábyrgjast greiðslu á skuldinni. Umferðasalinn bar svo fullkomið traust til kaupmannsins að hann bað verslunarhúsið að bíða eftir greiðsl- unni frekar en að afhenda lögmönn- um innheimtu á skuldinni. Þeir gerðu það. Ennþá liðu sex mánuðir og nú kom bréf frá versluninni sem seldi vörurnar, um að innkalla skuldina eða að öðrum kosti höfða mál á móti kaupmanninum. Nóttina áður en umferðasalinn átti að mæta við- skiptamanni sínum, svaf hann mjög órólega og dreymdi að hann væri staddur á heimili þessa vinar síns, sem skuldina átti að lúka. Þar var fjölskyldan rétt að því komin að hafa morgunguðsþjónustu, og þótti hon- um að sér væri boðið að taka þátt í henni. Faðirinn opnaði Biblíuna og kvaðst ætla að lesa 23. sálm Davíðs. En þetta voru orðin sem hinn undr- andi umferðasali heyrði: „Drottinn er minn bankastjóri. Eg verð ekki gjaldþrota, í gullnámum lætur hann mig hvílast; hann gefur mér lykilinn að fjárhirslu sinni. Hann lætur mig njóta trausts annarra og sýnir mér hvernig á að komast hjá málaferlum fyrir síns nafns sakir. Þó að ég gangi í myrkri skuldanna, skal ég samt enga ógæfu hræðast því þú ert með mér og þitt silfur og gull mun bjarga mér. Þú greiðir veg minn í augsýn skuldheimtumanna minna. Þú fyllir ílát mín með olíu og út af mínum bikar rennur. Sannarlega fylgja mér þín góðgirni og miskunn alla daga lífs míns og ég held áfram verslun í nafni Drottins." „Strax á eftir fylgdi slík bæn sem ég aldrei fyrr á ævi minni hafði heyrt," sagði umferðasalinn. Traust hans til Guðs var óbifanlegt og að endingu bað hann Guð um að blessa mig, vin sinn. Morguninn eftir fór umferðasal- inn til heimilis kaupmannsins í út- jaðri borgarinnar og barði að dyrum. Hann var boðinn hjartanlega vel- kominn og draumur hans um nótt- ina var alveg endurtekinn, nema hvað 23. sálmurinn var lesinn orðrétt eins og hann stóð í Biblíunni. Þegar kropið var til bænar, þá var bænin sama efnis og hafði verið í draumn- um. Hann sagði Guði frá að hann skuldaði peninga sem væru fyrir löngu fallnir í gjalddaga og bað hann að opna sér veg til að borga þá, þennann dag. Svo bað hann fyrir umferðasalanum sem nú hafði ásett sér að fylgja skipun verslunarhúss þess er hann vann fyrir. Að lokinni guðsþjónustu, fóru þeir báðir inn í bæinn. Þeir stað- næmdust fyrst við dymar á lyfsölu- búð sem var rétt við hliðina á búð kaupmannsins. Þar mætti þeim ung- ur maður sem sagði kaupmanninum að faðir sinn hefði ásett sér að kaupa eign sem hann hafði auglýst til sölu. Hann sagði að faðir sinn hefði sent sig með peninga til að borga niður í eigninni og afhenti honum bunka af seðlum. Afganginn fengi hann þegar eignarbréfið yrði afhent föður sín- um. Skuld kaupmannsins var borg- uð samstundis. Umferðasalinn var sannfærður um að kaupmaðurinn muni hafa verið á hnjánum í bæn til Guðs einmitt meðan hann var að dreyma og velta sér í rúminu. Hversu áþreifanlega var ekki bæn kaupmannsins svarað! Hversu miklu oftar ættum við ekki að færa okkar áhyggjur og byrðar yfir á Guð og treysta því að hann leiði okkur í gegnum þær. Hann hefur lofað að hugsa um okkur og sjá fyrir okkur á þann hátt sem engin annar getur. Látum reyna á það næst þegar vandamálin og erfiðin banka uppá. L.E. Clement. Arthur S. Maxvell Nýkomin er út bókin Biblían og þú - Ljós yfir líðandi stund eftir Arthur S. Maxweli. Bókin er 228 blaðsíður og fagurlega prýdd mörgum litmyndum. Hentar öllum aldurshópum fjölskyldunnar. Tilvalin tækifærisgjöf. Fæst ó skrifstofunni og í flestum bókabúðum. ÍÆblían og \ Ljós yíir líðandi si itund 12 Aðventfréttir

x

Aðventfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.