Bræðrabandið - 01.10.1974, Síða 2
Bls 2 - BRÆÐRABANDIÐ 10. tbl.
BÍE NflVIHflN
2.-9. NÓVEMBER 1974
Bænavikan er hin mikla hátíð í safnaðarlífi okkar aðventista.
Margir eiga dásamlegar endurminningar frá henni. Áhrifin frá
henni hafeleitt til stórra og mikilla ákvarðana hjá mörgum. Slíkt
getur gerst í bænavikunni í ár, ef við leitum Guðs af öllu hjarta.
Bænavikan fer nú í hönd. Hún mun flytja aukið andlegt líf til
allra, sem gefa sér tóm til að njóta hennar, þeirra, sem vilja í
einlægni og af þörf ákalla Guð og vera hljóð til að hlýða á raustu
hans. Bænavikan kallar okkur til endurnýjaðs samfélags við
Drottin.
Árangur hennar fyrir okkur hvert um sig fer að miklu leyti
eftir því, hvaða viðbúnað við höfum. Það er áríðandi fyrir okkur
að gera okkur ljóst að í bænavikunni kallar Drottinn öll börn sín
um víða veröld til fundar við sig. Þarfir okkar eru margvíslegar.
Mörg vandamálin ofviða mannlegri getu. En við getum í fullu
trausti lagt öll mál okkar fram fyrir Guð. Bænin er lykillinn
í hendi trúarinnar, sem getur lokið upp nægtabúri himinsins.
Þess vegna segir postulinn, að bæn réttláts manns megni mikið.
Hvers eigum við að biðja? Við eigum að biðja fyrir okkur
sjálfum, að við mættum gera köllun okkar og útvalning vissa.
Við þurfum að biðja á sama hátt fyrir okkar nánustu. Við þurfum
að biðja fjrrir trúsystkinum okkar og fyrir starfi Guðs meðal
manna. Svo þurfum við að biðja þess af áhuga, að verki Guðs mætti
ljúka sem fyrst og Kristur komi aftur. En til þess að geta beðið
.þannig þurfum við að vera fús til að vinna þau verk sem gera þarf
í víngarði Drottins. Heimurinn bíður eftir því að börn Guðs boði
boðskap Krists, hvert á sínum staö. Komum með þetta og margt
fleira að hásæti náðarinnar í komandi bænaviku. Einhuga samstilling
margra í bæn skapar marga möguleika. Skipuleggjum svo tíma okkar,
að okkvir gefist tóm til einlægrar bænar og íhugunar í návist
Drottins. Reynum á þennan hátt, hvort hann opnar okkur ekki flóð-
gáttir himinsins og úthelli yfir okkur yfirgnæfanlegri blessun.
í lok vikunnar verður færð fórnargjöf til að efla verk Guðs.
Það er þakkar- og helgunarfórn ársins. Margir hafa það fyrir fasta
venju, að gefa sem svarar vikukaupi í þessari aöalfórn ársins.
Bæn er það að opna hjarta sitt fyrir Guði eins og fyrir
sÖnnum vini.
Sigurður Bjamason.