Bræðrabandið - 01.10.1974, Blaðsíða 6
Bls. 6 - BRÆÐRABANDIÐ 10. tbl.
Sú hugmynd, að bænin sé ekki nauðsynlega er ein af áhrifaríkustu
brögðum Satans til þess að eyðileggja sálir. Bæn er samfélag við
Guð, lind vizkunnar, uppspretta stjnpks og friðar og hamingju. Jesús
bað til föðurins "með sárum kveinstöfum og táraföllum". Páll hvetur
hina trúuðu til "að biðja án afláts" og gera í öllum hlutum óskir
sínar kunnar Guði í bæn með beiðni og þakkargjörð. "Biðjið hver
fyrir öðrum", segir Jakob. "Kröftug bæn réttláts manns megnar mikið."
(Heb. 5,7; l.Þess. 5,17; Jak. 5, 16.)
Foreldrarnir ættu að gera varnarvegg umhverfis börnin sín með
einlægum og áköfum bænum. Þau ættu að biðja af fullri trú um það,
að Guð muni vera meö þeim og að heilagir englar hans muni vernda
þau og börnin þeirra frá hinu grimmilega valdi Satans.
í hverri fjölskyldu ætti að vera fastur tími fyrir guðsæknis-
stundir kvölds og morgna. En hvað það er viðeigandi fyrir foreldra
að safna börnum sxnum saman áður en matar er neytt til að þakka hinum
himneska föður fyrir vernd hans yfir nóttina og að biðja hann um
hjálp og leiðsögn og umönnun yfir daginn: En hvað það er líka
viðeigandi þegar kvölda tekur, að foreldrar og börn safnist aftur
saman frammi fyrir honum og þakki honum blessanir liðins dags.
Á hverjum morgni skuluð þið helga ykkur og börn ykkar Guði
þann dag. Reiknið ekki með mánuðum eða árum. Þau eru ekki á ykkar
valdi. Einn skammvinnur dagur er ykkur gefinn. Notið stundir hans
til þess að vinna fyrir meistarann eins og það væri ykkar síðasti
dagur á jörðu. Leggið öll áform ykkar fram fyrir Guð og framkvæmið
þau eða hættið við þau eftir því sem forsjón hans gefur til kynna.
Fy^Lgið áformum hans í stað ykkar eigin, jafnvel þótt það kostaði
það, að þið yrðuð að hætta við eftirlætisverkefni. A þann hátt
mundi lífið mótast meira og meira eftir hinu guðlega fordæmi og
"friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu
yðar og hugsanir í samfélaginu við Krist Jesúm". Fil.4,7.
Faðirinn ætti að stjórna tilbeiðslustundunum, eða móðirin í
fjarvist hans, og velja ritningargrein, sem er áhugavekjandi og
auðskilin. Athöfnin skyldi vera stutt. Þegar langur kafli er
lesinn og langar bænir fluttar, verður athöfnin þreytandi og öllum
léttir, þegar henni lýkur. Það er vanheiður fyrir Guð, þegar til-
beiðslustxindin er gerð þurr og leiðinleg, þegar hún er svo óskemmtileg
og laus við að vera áhugavekjandi, að börnin óttast hana.
Feður og mæður, gjörið tilbeiðslustundina feykilega áhugavekjandi.
Það er engin ástæða til að þessi stund sé ekki sú skemmtilegasta
og ánægjulegasta á öllum deginum. Ef þið sýnið svolitla hugsun viö
undirbúning hennar, mun ykkur verða kleift að gera hana áhugavekjandi
og gagnlega. Hafið tilbreytni í athöfninni öðru hverju. Spurningar
má bera fram um þá ritningargrein, sem lesin var, og bera fram fáeinar
einlægar tímabærar athvigasemdir. Lofsöng má syngja. Bænin, sem flutt er
ætti að vera stutt og gagnorð. Sá, sem hefur orð fyrir hinum £ bæninni,
ætti með einföldum og einlægum orðum að lofa Guð fyrir gæzku hans og biðj
hann um hjálp. Börnin ættu eftir því sem aðstæður leyfa aö taka þátt í
lestrinum og bæninni.
Eilífðin ein mun sýna það góða, sem slíkar tilbeiðslustundir
hafa að geyma.