Bræðrabandið - 01.10.1974, Blaðsíða 11
Bls. 11 - BRÆÐRABANDIÐ 10. tbl.
Préttir frh.
Innsöfnunin. Þegar við starfsmennirnir héldum út á landsbyggðina
í ágústmánuði í hina árlegu innsöfnunarferð okkar, kom strax í
ljós, að eitthvað óvenjulegt var að gerast. Aukning þess fjár,
sem safnaðist á hinum ýmsu stöðiim varð svo mikil að þess munu
engin dæmi fyrr. Algengt var að ýmsir staðir gæfu 100% meira en
á s.l. ári. Á Dalvík varð aukningin 250%. Það voru glaðir
safnarar, sem sneru heim frá Snæfellsnesi, norðvesturlandi og
norðausturlandi.
En hér syðra virðist sagan ætla að endurtaka sig. Reykjavíkur-
söfnuður er um það bil að tvöfalda árangur sinn frá því í fyrra,
en þá söfnuðust Kr. 611 þúsund. í Grindavík varð aukningin 300%
á einu ári. Það hefur verið mér mikið ánægjuefni að sjá áhuga
þeirra, sem safnað hafa í ár, en þeir mættu vera fleiri, sem
leggðu hönd á plóginn. Enn er því tækifæri til þess á ýmsum
stöðum hér suðvestanlands.
Söfnunin á landinu öllu er þegar komin einni milljón yfir
síðastliðið ár, en þá varð lokatalan 2,4 milljónir. Það eru
góðar líkur á að okkur takist að safna inn 4 milljónum að
þessu sinni. Þótt innsöfnunarstarfinu sé enn ekki lokið, vil ég
nota tækifærið hér til að þakka öllum þátttakendum í innsöfnuninni
hjartanlega fjrrir vel unnin störf.
Steinþór Þórðarson.
MINNING:
Frá fyrstu kynnum okkar, Helga mín minnist ég þín í
sambandi við nýþvegin þvott og brosandi blóm í gluggum.
ÞÚ varst svo mikil húsmóðir. En síðar þegar söfnuður hér í
Keflavík hafði verið stofnaður og Alfa félagið tók til starfa,
undir þinni stjórn, og við fórum að vinna að basarnum okkar
þá kemur urmull af litlum vettlingum inní myndina. Hve oft
sátum við ekki saman með prjónana okkar og töluðum um okkar hugðar-
mál, hina eilífu von Guðs barna, svo báðum við fyrir börnunum okkar
og öllu öðru sem við elskum á þessari jörð. Þökk fyrir samveruna
Helga mín.
í Guðs friði.
Þú varst kona sem eftir lastur blessaða minningu.
Ó.J.