Bræðrabandið


Bræðrabandið - 01.10.1974, Qupperneq 5

Bræðrabandið - 01.10.1974, Qupperneq 5
Bls. 5 - BRÆÐRABANDIÐ lO.tbl. flNDLEG- 'HHRIF 'R HEIMILINU Ör bókinni Boðskapur til safnaðarins. Feður og mæður, safnið börnum ykkar umhverfis ykkur kvölda og morgna og lyftið hjartanu upp til Guðs í auðmjúkri bænu um hjálp. Astvinir ykkar eru undirorpnir freistingum. Daglega verða ungir sem eldri fyrir því, sem vekur leiðindi. Þeir sem vilja vera þolinmóðir, kærleiksríkir og glað*/ærir, verða að biðja. Við getum því aðeins öölazt sigur yfir sjálfinu, að við hljótum stöðugt hjálp frá Guði. Ef einhvern tíma hefur verið sú tíð, að hvert hús ætti að vera bænahús, þá er það núna. Vantrú og efasemdir ráða ríkjum. Mikið er um óheiðarleika. Spillingin flæðir í lífsstraumi sálarinnar og uppreisn gegn Guði brýzt út x lífinu. Siðferðiskraftarnir, sem eru þrælbundnir af syndinni, eru undir ógnarstjórn Satens. Sálin verður leiksoppur freistinganna. Og maðurinn fer hvert sem erkióvinurinn leiðir hann, nema einhver sterkur armur teygi sig út til þess að bjarga honum. Og samt er það svo á þessu hræðilega hættuskeiði, að sumir, sem segjast vera kristnir, hafa engar tilbeiðslustundir með fjölskyldunni. Þeir heiðra ekki Guð á heimilinu. Þeir kenna ekki börnum sínum að elska og óttast hann. Margir hafa aðskilið sig svo langt frá honum, að þeim finnst þeir vera undir fyrirdæmingu, er þeir nálgast hann. Þeir geta ekki '’komið með djörfung að hásæti náðarinnar", "upplyftandi heilögum höncum, án reiði og þrætu".(Heb.4,16: l.Tim.2,8.) Þeir hafa ekki lifandi samband við Guð. Þeir hafa á sér yfirskin guðhræðslunnar, en afneita krafti hennar. , . (frh. a næstu siðu) PÖNTUNARSEÐILL öska eftir 1 eintaki af bókinni Boðskapur til safnaðarins eftir E.G.White Nafn._______________________ Heimili.

x

Bræðrabandið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.