Bræðrabandið - 01.10.1974, Side 9
Bls.9 - BRÆÐRABANDIÐ 10. tbl.
okkar og leyfum honum að koma inn3 svo hann geti veitt okkur það,
sem við þörfnumst.
6. Hvenær segir Biblían að Guð hafi fyrst elskað okkur? Rom.5:8-10.
Kærleikur Guðs breytist ekki. Hann er kallaður eilífur kærleikur.
"Já, með ævarandi elsku hefi ég elskað þig; þess vegna hefi
ég dregið þig með kærleiksríkri umhyggju." (Jer.31:3)
7. Hvað getur aðskilið okkur frá kærleika Guðs? Róm.8:38,39.
8. Hvað leyfir kærleiki Guðs honum að kalla okkur þó syndin aðskilji
okkur frá honum? l.Jóh.3:l.
Konungur alheimsins kallar okkur börnin sín vegna hins mikla
kærleika hans til okkar. Hvílík forréttindi og heiður, sem
hann hefur sýnt okkur.
9. Hvað var hámark kærleika Guðs? l.Jóh.4:9,10
Guð hafði á margvíslegan hátt reynt að kenna fólkinu á tíma
Gamla testamentisins um hinn mikla kærleika sinn. En það
virtist ekki skilja það. Svo að Guð sendi eingetinn son sinn
til að lifa meðal mannanna svo hann gæti sýnt kærleika sinn
á stórfenglegastan hátt. Með lífi sínu og dauða átti Kristur
að vera lifandi opinberun á kærleika Guös.
10. Hvernig segir Jóhannes að Guð hafi sýnt hinn mikla kærleika
sinn? Jóh.3:16
11. Hvernig getum við vitað, hvað kærleiki er? l.Jóh.3:16
.Gætir þú tekið þá persónu, sem þú elskar mest og fórnað henni
til að bjarga lífi einhvers, sem kærði sig kollóttan um þig
og fer með þig sem óvin? Þetta var það sem Guð gerði, þegar
hann sendi son sinn til að deyja fyrir þig og mig. Finnst
nokkur meiri sönnun fyrir hinum mikla kærleika hans og um-
hyggju fjrrir þér?
Meðan Kristur starfaði hér á jörð, brá hann upp mjög auðskilinni
mynd af hinum mikla kærleika föðurins til sérhvers syndara.
Biblían hefur að geyma söguna um glataða soninn í því augnamiði.
Lúk.15:10-24. Takktu vel aftir lexíu þessarar sögu.
Ef til vill líður þér eins og þessum syni í dag. ÞÚ hefur
reikað burt frá föðurhúsunum. En mundu; að hann bíður og fylgist
með til að geta boðið þig velkominn heim. Ef þú þráir kærleika,
skilning og fyrirgefningu, getur þú fundið það með því að snús
aftur til hans.