Bræðrabandið - 01.11.1974, Qupperneq 5
Bls. 5 - BRÆÐRABANDIÐ 11.tbl.
REYNSLAN VERÐUR AÐ VERA PERSÓNULEG
Ef á að innsigla okkur verðun við að kynnast hinvun helgandi
krafti Heilags anda með tilstilli orðsins. Hvert okkar verður
að nærast á brauði lífsins daglega rétt eins og við hljótum að
veita líkama okkar næringu á hverjum degi. Það er ekki nóg
að náungi okkar, hvort sem hann er prestur, rithöfundur eða
Biblíukennari, kenni okkur orðið. Sjöunda dags aðventisti sem
takmarkar magn andlegrar fæðu sinnar við hina vikulegu guðs-
þjónustu, eða hvíldardagsskóladeild, mun aldrei vaxa til "Krists-
fyllingarinnar."
"Það er ekki nóg að vita hvað aðrir hafa lært um Biblíuna.
Hver og einn verður í dóminum að gera reikniigskil fyrir sjálfan
sig fyrir Guði og hver um sig ætti að læra fyrir sjálfan sig,
hvað er sannleikur." ( Ed. bls.188)
Rannsókn Biblíunnar er ekki einhver venja sem við verðum að
halda til þess að öðlast samþykki Guðs. Það er eina leiðin til
þess að kynnast Kristi og læra að þekkja hinn ummyndandi kraft
kærleika hans í lífi okkar.
Hin köldu og eigingjörnu hjörtu okkar geta ekki gefið frá
sér hinn hreina og óeigingjarna kærleika sem Kristur þráir að
sjá sém svar við sinn eigin óviðjafnanlega kærleika. En "með
því að sjá eins og í skuggsjá" hinn fórnandi kærleika Drottins
"ummyndust við til sömu myndar frá dýrð til dýrðar með því að
það kemur frá Drottni andanun".
Vitsmunalegur skilningur á sannleikanum mun ekki vera nægur
gegn þeirri holskeflu villunnar sem hvolfist nú yfir okkur með
tilstilli Satans. Það er aðeins fyrir kærleikssamband við
Drottin og persónulega reynslu í sannleikanum eins og hann er í
Jesú sem megnar að varðveita okkur í hlýðni við hann þrátt fyrir
ofsóknir og dauða.
Þegar við leitum til Biblíunnar ekki aðeins til þess að
verja kenningalega afstöðu okkar heldur til þess að leita hins
nána samfélags við Jesú er hann kallar sjálfan sig brúðgumann og
söfnuðinn brúðina, þá munum við finna í rannsókn hennar fögnuð
og kraft.
Við skulum hverfa aftur til setningarinnar sem vitnað var
í áður, úr Deilunni miklu:"Þeir einir sem hafa rannsakað Ritninguna
af kostgæfni og hafa meðtekið kærleika til sannleikans munu ððlast
vernd gegn hinum voldugu blekkingum sem hertaka heiminn."
Getum við nú séð að "kærleikur til sannleikans" er ekki
helgun gagnvart óhlutstæðum meginreglum heldur kærleikur til
sannleikans um Jesúm - já kærleikur til Jesú? öll Biblían
opinberar Jesúm í yndisleik hans, hans ótæmandi þolinmæði, hans
ljúfa kallitil fólks síns.
Okkur er boðið að "sjá og smakka hvað Guð er góður," en
margir kristnir menn hafa verið skemmdir með innantómum sætindum
heimsins þar til lyst þeirra er svo afvegaleidd að hún kann ekki