Bæjarblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 8
Frá NFS:
BÆJARBLAÐIÐ — Frjálst og óháð
■ jypi
Kennararnir Borgþór og Sara sýndu nemendum ku
áttu sína í Lambada dansinum kunna og skiluðu
ágætlega frá sér....
í“;e»*/eS; barsí frj
wv)
^söu^;zfð°‘ð
Utskriftarkórinn tók lagið svo undir tók. Sumir tóku
söngnum alvarlega, aðrir ekki....
Hrccringur
Á hvaða bíl...
Eins og mörgum er
kunnugt, hafa dómarar í
íþróttaleikjum hér suður
með sjó kvartað undan
því að bílar þeirra hafi
orðið fyrir barðinu á
skapheitum áhorfend-
um sem hafa látið
óánægju sína í ljós með
dómgæsluna á þann
háttinn að skemma bíla
dómaranna. Og nú er
ekki lengur kallað „Útaf
með dómarann“ frá
áhorfendapöllunum eins
og glögglega kom í ljós á
einum íþróttaleiknum
sem fram fór í íþrótta-
húsi Keflavíkur i síðustu
viku. Þegar leikurinn
stóð sem hæst vildu
sumir ekki una dóm-
gæslunni og heyrðist þá
kallað frá áhorfenda-
pallinum „Á hvaða bíl
ertu dómari“!?
Út á miðnætti..
Samkeppnin á veitinga-
húsamarkaði Suður-
nesjamanna er orðin
geysihörð um þessar
mundir og til að laða að
sem flesta gesti bjóða
veitingahúsin fólki uppá
ýmislegt. Eitt þeirra
auglýsti á dögunum
um frítt inn milli klukk-
an 23 og miðnættis á
föstudagskvöldi. Á
föstudeginum hringir
maður til viðkomandi
veitingahúss og spurði
hvort það yrði frítt inn
frá klukkan 11-12 þá um
kvöldið. Honum var
svarað að það væri rétt.
,,Og hvað“, spurði
maðurinn. „Ámaður þá
að fara út á miðnætti og
borga sig inn“?
Krókódíll á bar.
Sagan hér að ofan er
m0é *
sönn og fyrst við erum
að tala um veitingahús
er ekki úr vegi að láta
eina veitingahúsaskrítlu
flakka.
Maður nokkur kom
inn á barinn í Edenborg
með ansi mikinn og ill-
úðlegan krókódíl í
bandi.
„Hvernig er það“,
spurði hann barþjóninn,
„sörverið þið ekki þing-
menn hérna“?
„Ha, jú jú“, svaraði
barþjónninn í flýti og
leit óttasleginn á krókó-
dílinn.
„Fínt, láttu mig fá
einn tvöfaldan viskí og
komdu með þingmann
handa honum Kalla
hérna“!
Á Guðbjörg Bæj-
arblaðið?
Fyrir nokkrum mánuð-
um skýrðum við frá þvi
að Guðbjörg Guð-
Hinir annáluðu töffarar, hjartaknúsarar og draumaprinsar allra
alvarlega hugsandi kvenna, Einvarður Jóhannsson og Kristinn
Óskarsson.
Munið!
breytt símanúmer
Bæjarblaðsins - 15747
* Nýjar myndir
í hverri viku
* Myndbandstæki
til leigu
* Mikiö úrval
efnis við allra hœfi
Síðasta skóladaginn var haldið pulsupartí hjá henni Möttu í mötu-
neytinu og hér eru nokkrir FS-ingar að gæða sér á veitingunum.
Elínborg er líklega að syngja eitthvað með Billy Idol ef
dæma má af svip hennar og er stólfótur eins góður og
hver annar hljóðnemi. Þóra og Halla fylgjast kankvísar
með tilburðum vinkonu sinnar.
Hafnargötu 34
Sími 13006
mundsdóttir, Ungfrú
Suðurnes 1987, hefði
verið ráðin innheimtu-
stjóri fyrir Stapaprent
og Bæjarblaðið. Fréttin
birtist undir fyrirsögn-
inni Guðbjörg á Bæjar-
blaðið. Eftir að fréttin
birtist var Guðbjörg
spurð að því af fjölda
fólks hvernig það væri
að eiga blað.
Þannig má einnig lesa
úr fyrirsögninni Krókó-
díll á bar í stað þess að
krókódíll hefði verið
staddur á bar, en hingað
til hefur ekki verið vitað
til þess að krókódílar
færu útí veitingahúsa-
rekstur....(hvað þá að
þeir stundi barina).
Barist til þrautar.
Keppnisandi íþrótta-
manna getur oft verið
slíkur að þeir gefast ekki
upp fyrr en í fulla hnef-
an eins og kom í ljós á
hinu árlega jólamóti
Knattborðsstofu Suður-
nesja sem skýrt er frá hér
í blaðinu.
í úrslitaviðureign
þeirra Óskars Kristins-
sonar og Barkar Birgis-
sonar hafði Börkur náð
mjög góðri stöðu í
einum leiknum og hafði
m.a. gert 54 stig í
,,stuði“. Börkur var
kominn með yfirburða-
stöðu þegar aðeins örfá-
ar kúlur voru eftir á
borðinu Og hefði þurft
kraftaverk til að Óskar
ynni leikinn. Börkur
gerði sig tilbúinn til að
tína kúlurnar upp úr
vösum snókerborðsins
og hefja nýjan leik. Þá
leit Óskar á hann með
undrunarsvip og sagði
með sinni alkunnu ró og
yfirvegun: „Hva, held-
urðu að ég fari að gefa
þetta í miðjum leik“?
Er skemmst frá því að
segja að Börkur sigraði
leikinn. En það mátti nú
reyna....
Hefur þú heyrt?
Það er líka útsala
hjá okkur á
&
einnig diskum
og kassettum
25-90% afsláttur
Ennfremur er 10% afsl.
á framköllun út janúar