Bæjarblaðið


Bæjarblaðið - 10.01.1990, Qupperneq 16

Bæjarblaðið - 10.01.1990, Qupperneq 16
ngmynD Hafnargölu 90 Sími 11016 spmmsm KEFLAVlK - NJARÐVÍK - GARDUR - GRINDAVlK Húsbréfakerfið: Gengið frá sölu í fyrsta skipti á Suðurnesjum — á fasteign innan nýja húsbréfakerfisins • Óli Þór Kjartansson fasteignasali (t.v.) og Jón Ragnar Magnússon seljandi, ganga frá sölu fyrsta hússins sem selt er hér á Suðurnesjum innan nýja húsbréfakerfisins. Síðastliðið mánudags- kvöld urðu tímamót í sölu fasteigna hér á Suður- nesjum en þá var i fyrsta skipti gengið frá sölu húss á svæðinu innan nýja hús- bréfakerfisins og fór salan fram á skrifstofu Fast- eignaþjónustu Suður- nesja. Nýja húsbréfakerfið gekk í gildi um miðjan nóvember á liðnu ári og að sögn Óla Þórs Kjartans- sonar hjá Fasteignaþjón- ustu Suðurnesja virðist kerfið koma betur út en menn töldu í fyrstu. í dag mega allir þeir sem sóttu um lán hjá Húsnæðis- stofnun ríkisins fyrir 15. mars 1989, kaupa fasteign samkvæmt þessu kerfi en aðrir eftir 15. maí næst- komandi. Óli Þór sagði í samtali við Bæjarblaðið að hús- bréfakerfið ætti eftir að auðvelda fólki að eignast þak yfir höfuðið og leitaði fólk mikið eftir upplýsing- um um möguleika sína í kerfinu og getur fólk leitað til fasteignasala vegna þessa. Bæjarstjórn mótmælir skattlanginarhugmyndum ríkisins Vonin KE seld r til Isafjarðar fundi bæjarstjórnar Keflavíkur fyrir skömmu lagði Hannes Einarsson fram tillögu þess efnis að bæjarstjórnin mótmælti harðlega framkomnum hugmyndum um skatt- lagningu ríkisins á orku- fyrirtæki þar sem það muni leiða til hækkunar orkuverðs til fyrirtækja og almennings. í tillögunni kom m.a. fram að með þessum hug- myndum sé ljóst að Ríkis- sjóður íslands hyggst breyta samningum og lög- um, þar sem skattleysi Hitaveitunnar gagnvart öllum eignaraðilum er tryggt, þ.e.a.s. að Rikis- sjóður sé að breyta lögun- um sér í hag. Þrír bæjarfulltrúar, þeir Magnús Haraldsson, Ingólfur Falsson og Þor- steinn Árnason sátu hjá og gerðu eftirfarandi bókun: ,,Okkur. er ljóst að sam- þykkt bæjarráðs felur í sér stórfellda hækkun gjalda á bæjarbúa og atvinnu- rekstur í versnandi árferði og minnkandi gjaldþroti einstaklinga og fyrirtækja. Hinsvegar teljum við fjár- hagsstöðu bæjarsjóðs komna á það alvarlegt stig að við sjáum okkur knúna til að sitja hjá“. Anæstuni mun enn eitt skipið hverfa burtu héðan af svæðinu og að þessu sinni er það Von- in KE-2, samkvæmt frétt sem Fiskifréttir birti á föstudaginn. Hrönn hf. á ísafirði hef- ur gert kauptilboð í Von- ina og mun hafa verið gengið frá kaupsamningi til bráðabirgða.. Vonin KE er meo ^uucm kvuiu. j síldarkvóta hefur skipið 329 tonna þorskkvóta, 56 tonna ýsukvóta, 65 tonna ufsakvóta, 5 tonna karfa- kvóta og 1 tonn af grá- lúðu. Að auki er Vonin með 108 tonna rækju- kvóta. Þrjú rúðu- brot Samkvæmt upplýsing- um frá lögreglunni i Keflavík hefur verið óvenjurólegt um þessar mundir og fátt borið til tíðinda yfir hátíðarnar. Síðasta helgi var róleg, sem kom nokkuð á óvænt þar sem þrettánd- ann bar upp á laugar- dag. Á nýjársmorgun þurfti að sinna nokkrum útköllum vegna missætt- is ölvaðs fólks í heima- húsum. Skemmdarvargar létu til sín taka á Hafnargöt- unni og urðu þrjár rúður fyrir barðinu á þeim. í tveimur tilfellum voru rúðurnar sprengdar með heimatilbúnum sprengj- um. Tvö þessara afbrota eru að fullu upplýst. Bæjar- félögin taka við höfninni Þ ann 28. desember fengu bæjarstjórar Keflavíkur og Njarðvík- ur afhent formlega afsal fyrir höfninni en eins og kunnugt er áttu bæjarfé- lögin að taka við rekstri hafnarmannvirkja frá áramótum. Við þetta sama tækifæri var komu nýja hafnsögubátsins fagnað. Skömmu fyrir áramót var kosið í hafnarstjórn og fulltrúar Keflavíkur verða þeir Hafsteinn Guðnason og Þorsteinn Árnason. Varamenn verða þeir Jón B. Vil- hjálmsson og Hálldór Ibsen. Ekki er vitað hverjir verða fulltrúar Njarðvíkurbæjar.

x

Bæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/975

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.