Bæjarblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 14
14 BÆJARBLAÐIÐ — Frjálst og óháð
Sjávarsíðan:
íbúð óskast
Bæjarblaðið óskar eftir lítili ein-
stakiingsíbúð eða stóru herbergi með
aðgangi að snyrtingu og eldhúsi á
leigu sem fyrst fyrir starfsmann
blaðsins. Nánari upplýsingar í síma
14388.
Bæjarblaðið - Stapaprent
ER GIGTIN FARIN AÐ SEGJA
TILSÍNEÐA
BARA VÖÐ VABÓLGA ?
Komið í Sólhúsið
Athugið hvort sólarbekkirnir
okkar geti hjálpað ykkur
P.S. Smá brúnka
bœtir útlitið!
Hafnargata 35 - Sími 14227
Vetrarvertíðin byrjar vel
— nema i Grindavík þar sem afli var lítill
á fyrstu viku ársins
etrarvertíðin byrjaði
ágætlega þetta árið, nema
þá helst í Grindavík þar
sem afli var sáralítill í
siðustu viku.
Neta-línu- og dragnóta-
bátar við norðanvert
Reykjanesið hafa flestir
aflað með ágætum, en
langt þarf að leita eftir
jafngóðum línuafla og
verið hefur á þessu hausti.
Einnig hefur tíðarfarið að
undanförnu ekki spillt fyr-
ir þó að vísu hafi verið
nokkuð rysjóttir kaflar
inn á milli.
Rikjandi suðvestanáttir
hafa einnig fært með sér
fisk á mið netabáta sem
róa á Garðsjónum og á
Faxaflóanum, og virðast
menn almennt nokkuð
bjartsýnir vegna komandi
vertíðar.
Og þá eru það afla-
brögðin, vikuna 1.-7.
janúar.
Keflavík
Samtals bárust 205 tonn á
land í síðustu viku. Veð-
urfar var frekar rysjótt í
vikunni, en þó ekki svo að
það hindraði hina harð-
sæknustu frá því að róa.
Dágóður afli var hjá neta-
bátum, t.d. fékk Happa-
sæll 54,7 tonn í fimm róðr-
um og einnig fékk Svanur,
sem er talsvert minni bátur
40,9 tonn í fimm róðrum.
Afli netabáta fékkst að
mestu í norðanveðri
Bugtinni og í Garðsjón-
um. Afli stóru línubát-
anna var einnig þokkaleg-
ur, t.d. fékk Freyja 31,2
tonn í tveimur róðrum og
Búrfellið kom að landi
með 24,6 tonn í tveimur
róðrum.
Smábátar undir 10
tonnum eru um þessar
mundir í þorskveiðibanni
sem stendur yfir til 16.
janúar.
Sandgerði
Ágæt aflabrögð voru hjá
Sandgerðisbátum í flest
veiðarfæri. Samtals bárust
á land 500 tonn af 32 bát-
um. Af netabátum var
Arney með mestan afla, 71
tonn úr fjórum róðrum,
einnig fékk Njáll, sem er
mikið minni bátur en
Arney, 26,4 tonn í fjórum
róðrum.
Hjá dragnótabátum
hefur nánast verið mokafli
síðan fyrir áramót. Arnar
fékk t.d. 29 tonn á laugar-
daginn fyrir gamlársdag,
en í síðustu viku var hann
aflahæstur dragnótabáta
með 49,4 tonn í fjórum
róðrum. Reykjaborgin
kom að landi með 43,3
tonn og komu áðurnefndir
bátar með vænan þorsk að
landi.
Margir línubátanna
fengu þokkalegan afla og
af stærstu línubátunum
fékk Einir mestan afla,
eða 27,4 tonn í tveimur
róðrum. Reynir fékk 25,4
Sjómenn í Grindavík
réru á föstudaginn eftir
að samkomulag hafði
náðst um 20% hækkun á
ufsaverði, en eins og kom-
ið hefur fram í fjölmiðlum
neituðu sjómenn í Grinda-
vík að róa vegna óánægju
þeirra með fiskverð sam-
anborið við það sem gerist
á fiskmörkuðum.
Haft er eftir Sævari
tonn í tveimur róðrum. Af
miðlungsstærð linubáta
var Ósk aflahæst með 12,4
tonn í fimm róðrum og af
þeim minnstu var Bolli
hæstur með 5,4 tonn í
fjórum róðrum.
Handfærabátar fengu
litinn sem engan afla.
Grindavík
Afli Grindavíkurbáta var
sáralítill í vikunni en alls
bárust á land 28,7 tonn frá
níu bátum. Af línubátum
var Sigrún með 7,2 tonn í
tveimur róðrum en af
netabátum var Geirfugl
með skástan afla, eða 7
tonn í einum róðri.
Fyrir áramótin voru lík-
ur á því að einhverjir síld-
arbátar færu aftur til veiða
eftir áramót, en að þessu
sinni mun enginn Grinda-
víkurbátur fara.
Gunnarssyni, formanni
Sjómanna- og vélstjórafé-
lags Grindavíkur í DV um
helgina, að menn séu ekki
sáttir. Sævar segir að hót-
anir um uppsagnir hafi átt
þátt í því að róið var
og að sjómenn muni biða
og sjá hvaða fiskverð verð-
ur ákveðið. Menn munu
þá sjá til hvað gert verður.
ATH. breytt símanúmer
og aðsetur hjá okkur
Hafnargata 90 II hæð
Sími 15747
Grindavík:
Sjómenn fengu
hækkun