Bæjarblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 10
10 BÆJARBLAÐIÐ — Frjálst og óháð ÍÞRÓTTIR
Nýburar
T ólf nýburar hafa komið í heiminn á meðan Bæjar-
blaðið hefur verið í jólafríi en að þessu sinni birtum við
myndir af sjö þeirra. Hin'ar myndirnar koma í næsta
blaði. Um leið og við bjóðum börnin velkomin í heiminn
og óskum foreldrum þeirra til hamingju, viljum við nota
tækifærið og óska starfsfjólki fæðingardeildar Sjúkra-
húss Keflavíkur árs og friðar, með þökk fyrir samstarfið
á liðnu ári.
X
Strákur fæddur 22. des.
1989. 4270 gr. og 54 cm.
Foreldrar: Stefanía
Guðjónsdóttir og Gunn-
laugur Dan Ólafsson.
í -* -
Strákur fæddur 21. des.
1989. 3960 gr. og 53 cm.
Foreldrar: Hafdís Jó-
hannsdóttir og Bjarni Ást-
valdsson.
Stúlka fædd 20. des. 1989.
4000 gr. og 51 em. For-
eldrar: Bryndís Arnþórs-
dóttir og Bergþór Bald-
vinsson. Stúlkan var skírð
Þorbjörg.
Strákur fæddur 20. des.
1989. 3750 gr. og 52,5 cm.
Foreldrar: Bergþóra
Ólafsdóttir og Arnar
Karlsson.
\
Stúlka fædd 30. des. 1989.
30.50 gr. og 48 cm.
Foreldrar: Þóra Gunnars-
dóttir og Einar Sigurpáls-
son.
m
Þessi stúlka var áramóta-
barnið okkar Suðurnesja-
manna 1990, en hún fædd-
ist 3. janúar kl. 12.27 og
mældist 4000 gr og 50 cm.
Foreldrar: Inga Jóna Ingi-
marsdóttir og Hallgrímur
Arthúrsson.
Þessi drengur kom i heim-
inn skömmu síðar, en
hann fæddist kl. 14.16
þann 3. janúar og mældist
4070 gr og 54 cm. Foreldr-
ar: Sólveig Snorradóttir og
Jón Guðmundsson.
Körfuknattleikur:
Allt gekk upp hjá UMFG
F yrsti leikurinn á Suður-
nesjum eftir jólafrí var í
Grindavík á laugardag. Þá
tóku Grindvíkingar á móti
ÍR-stúlkunum. í byrjun
virtist ÍR-liðið ætla að
hafa betur. Spiluðu góðan
sóknarbolta og hittnin var
góð. Leiddu þær leikinn
alveg fram á síðustu
mínútur fyrri hálfleiks en
þá sigu Grindavíkurstúlk-
urnar fram úr og leiddu í
lékhléi 21-19.
í síðari hálfleik sýndu
Grindvíkingar algjöra
yfirburði og juku muninn
jafnt og þétt og sigruðu
með 12 stiga mun, 53-41.
Grindvíkingar léku
þennan leik vel. Byrjunin
lofaði nú ekki góðu en það
vakti nokkra athygli að
Marta Guðmundsdóttir,
sem verið hefur einn aðal
máttarstólpi liðsins, byrj-
aði ekki leikinn. Hún kom
svo inn á um miðjan fyrri
hálfleik en náði sér aldrei á
strik. Það voru aftur á
móti þær Svanhildur og
Ragnheiður með góðri
aðstoð Stefaniu sem sáu
um að afgreiða ÍR-inga.
Ragnheiður skoraði að
vísu ekki mörg stig en leik-
kerfi Grindvíkinga sem
miðaði að því að Ragn-
heiður fengi boltann út í
hornið og gæfi síðan send-
ingu á Svanhildi sem kæmi
síðan í gegnum vörnina frá
veiku hliðinni gekk oft
skemmtilega upp. Svan-
hildur var lang stigahæst
með 27 stig. Hjá ÍR-ingum
gekk heldur brösulega,
sérstaklega eftir að þær
misstu Hildigunni út af
vegna bakmeiðsla. Bestar
hjá þeim voru þær Hrönn
og Linda.
Eit var það sem setti
svartan blett á þennan
leik. Grindvíkingar geta
(mega) ekki bjóða þessu
ágæta kvennaliði upp á
slíka framkvæmd á leik
eins og þarna átti sér stað.
Ritaraborðið var skipað
eingöngu börnum sem
voru alls ekki starfi sínu
vaxin. Nú er ekki svo að
Grindvíkingar séu einir um
þetta vandamál. Þetta er
meira og minna hjá öllum
félögum og er það miður.
En sérstaklega finnst mér
þetta leiðinlegt fyrir
UMFG, þar sem kven-
þjóðin styður mjög vel við
bakið á Úrvalsdeildarliði
þeirra. Flest allir starfs-
menn kringum leiki þeirra
eru konur að ógleymdum
,,klappstýruhópnum“.
Grindvíkingar, ég skora á
ykkur að kippa þessu í
liðinn. v a
ATVINNA
Starfsstúlku vantar í
tískuverslun í 70% starf.
Skriflegar umsóknir leggist
inn hjá Bæjarblaöinu
Hafnargötu 90 II hæó.
MUNIÐ
ORKUREIKNINGANA
Eindagi orkureikninga er 15. hvers mánaöar.
Athugiö: Lokunargjald er kr. 1.800.-
Látiö orkureikninginn hafa forgang.
Hitaveita
Suðurnesja