Heimilisritið - 01.01.1946, Síða 33
ingar handa þeim, sem eiga erf-
itt með að sofna.
Borðaðu ekki þungmeltan mat
rétt áður en þú ætlar fara að
sofa. Drekktu heldur glas af
heitri mjólk. '
Stattu nokkur andartök við
opinn glugga og sogaðu hreint
loftið ofan í lungun. Strax og
þú finnur til kulda, skaltu flýta
þér upp í. Það kemur værð á
þig, þegar þú finnur yl sængur-
innar.
Liggðu eins og bezt fer um
þig og einblíndu lengi á ein-
hvern ljósan blett, stjörnu, götu-
ljósker, geisla sem fellur á
vegginn eða eitthvað því um
líkt. Einblíndu á blettinn, án
þess að depla augunum.
Hvíldu hvern vöðva. Teygðu
úr þér og geispaðu! Já, þú get-
ur geispað, ef þú reynir — og
fljótlega án nokkurrar uppgerð-
ar.
Hugsaðu þér, að þú sért kom-
in á dásamlegasta staðinn, sem
þú þekkir, Þórsmörk, Ásbyrgi
eða einhvern annan stað. En
hvert sem þú óskar þér að vera
komin, þá hugsar þú þér einnig,
að þar sé hlýtt og notalegt,
kyrrð og friður.
Segðu við sjálfa(n) þig, að
þú getir ekki sofnað, en liggur
samt kyrr. Hugsaðu þér svo,
að þú farið fram úr, lokir glugg-
um og dyrum, kveikir ljós og
farir í morgunslopp. Aðeins um-
hugsunin um þessi verkefni
mun gera þig syfjaða(n).
Hugsaðu með þér, að þó að
þú getir ekki sofið, þá hvílistu
samt; þú standir ekki í fætuma,
augun hvílist og þú sleppir við
óþægindin af að vera í fötum.
Þú gerir þér grein fyrir því, að
þú átt fram undan þér átta
langar og friðsælar klukku-
stundir, sem þú getur notað til
að hugsa um svo margt fallegt
og þarflegt, sem þú hefur aldrei
tíma til að hugsa um á daginn.
Þú færð að liggja út af, láta
fara vel um þig og færð tæki-
færi til að rifja upp fagrar
minningar. — Brátt ertu kom-
in í heim draumanna.
Þú ert andvaka, en hvað um
það, þú getur farið með gömul
og góð kvæði, sem þú hefur
lært, eða raulað falleg lög í
huganum.
Ef þú vilt hljóta verulega
heilnæman og langan svefn, þá
skaltu blátt áfram kveikja þér
í sígarettu í rúminu! — Það er
langbezta svefnmeðalið. — Mikl-
ar líkur eru nefnilega fyrir því,
að þú munir þá sofna „svefnin-
um langa“. Og eftir sl'íkan svefn
verður þá 'sennilega ekki einu
sinni þörf á að greftra þig, því
að húsið og allt, sem í því er,
verður að — ösku! —•
E N D I R
HEIMILISRITIÐ
31