Heimilisritið - 01.01.1946, Blaðsíða 44
borginni og réð öllu á Grand
Terrace, sem laut að hljómlist.
í þau 12 ár, sem hann var
þar, lék hann inn á ótal plötur
fyrir Brunswick, Decca og
Bluebird. Sumar þeirra eru frá-
bærar, aðrar sæmilegar. Nokkr-
ar þeirra eru enn fáanlegar frá
Columbia, sem hefur gefið út
sérstakt albúm með honum, og
sem hann spilar ennþá fyrir.
En Deccaplöturnar eru allar ó-
fáanlegar.
Hljóðfæraleikarar eins og
Walter Fuller á trumpet, Dorn-
ell Howard á klarinett og fiðlu,
Bud Johnson á tenórsaxófón,
Jimmy Mundy á tenór og út-
setjari (arranger), Trummy
Gong á básúnu, Wallace Bishop
á trommur, trumpetleikarnarir:
Freddy Webster, Pee Wee Jack-
son, Shorty McConuell, Charlie
Allen og Diggy Gillespie hafa
allir leikið með hljómsveit Earl
Hines. Ef Hines hefur ekki upp-
götvað þá alla, þá virtust hljóð-
færaleikarar a. m. k. uppgötva
sjálfa sig, er þeir komu til,,Föð-
urins“.
Meðal söngvara.sem Earl hef-
ur uppgötvað og hafið til vegs
og virðingar, má hefna: Herb
Jeffries, sem Earl sótti til De-
troit og fekk með sér á Grand
Terrace. Hines uppgötvaði ,.Ge-
orgia Boy“ (Arthur Lee Sim-
kins), Ida James, Walida Snow
og Ivie Anderson, sem hann lét
Duke Ellington eftir, en hún
var aðalstjarnan hjá Duke um
langt skeið. Svo má og nefna
Billy Eckstein, Sara Vaugn og
hina frægu Palmer Brothers. —
Árum saman hefur Earl sagt:
„Ég hef alltaf haft þá skrítnu
metorðagirnd að gera eitthvað
á sviði jazzins svipað og Waring
og Paul Whiteman. Ég vil fá
hóp söngvara, stórar hljóm-
sveitir og allar tegundir hljóð-
færa“.
Þetta þýðir ekki að hann vilji
hætta við núverandi hljómsveit
sína. Hann hefur það blátt á-
fram á tilfinningunni, að svið
jazzins sé að færast geipilega
út, og að í framtíðinni muni
þessar hugmyndir hans reynast
framkvæmanlegar. „Eftirhverja
styrjöld breytist tónlistin mjög“,
segir Hines. „Skeði siðast og svo
mun verða nú. Hermennirnir
sjá og heyra ósköpin öll af ó-
líkri tónlist, sem þeir munu
flytja með sér heim. Munið, að
hljóðfæraleikararnir í herþjón-
ustu erlendis hafa spilað heil-
mikið, alls konar tónlist, og þeir
eru á uppleið. Við, sem heima
höfum setið og verðum að herða
okkur að ná þeim, sem hafa
spilað erlendis, heyrt og hlust-
að“.
Hines heldur mest upp á i
plötur, og þær hefur hann allar
42
HEIMILISRITIÐ