Heimilisritið - 01.01.1946, Blaðsíða 39
kaffikorgurinn hafði myndað,
og sagði með draugalegri, tón-
lausri rödd:
„Ég sé ... að þér verzlið. Ég
sé ... blómkál ... gulrætur ...
salat ... Þér hljótið að selja
grænmeti ... Þér eruð í ein-
hverjum fjárhagsvandræðum“.
„Nei, því miður, en ..“
„Takið þér ekki fram í fyrir
mér ... Ég sé mann ... hvik-
lyndan, léttúðugan mann — já!
Það er maðurinn yðar. Hann
hefur farið frá yður!“
„Já, það er alveg rétt“, sagði
konan undrandi. „Ó, bara að
þér gætuð sagt mér ...“
„Hvar hann felur sig? Bíðið
þér við, þér megið ekki tala ...“
Hún tók stækkunargler og
rannsakaði með stígandi athygli
kaffikorginn í undirskálinni.
,-,Mér sýnist eins og ...“
„Er hann einn?“ spurði ....-
konan áköf.
„Nei. En ég sé ekki glöggt,
hvort það er karlmaður eða
kvenmaður ...“
„Það er víst ábyggilega kven-
maður“.
„Það skiptir engu máli, því
að ég sé, að maðurinn yðar
kemur heim aftur“.
„Hvenær? Hvenær?“ spurði
konan og gat varla stillt sig.
„Fljótlega. Á sunnudaginn eða
mánudaginn .. já, nú sé ég það
.. það verður á mánudaginn!
og ég sé þar að auki, klukkan.
hvað hann kemur ... Hann
kemur kortér yfir fimm“.
„Eruð þér viss um það?“
Spákonan reis móðguð á fæt-
ur og sagði:
„Frú Egypte skjátlast aldrei“.
Hún sagði þetta svo ákveð-
inni rödd, að engum andmælum
varð viðkomið.
„Afsakið þér, frú. Og ... er
þetta allt, sem þér getið séð?“
„Hvað segið þér? Allt! Finnst
yður þetta ekki nóg?“
„Jú, sannarlega, frú“, en hún
bætti við með sjálfri sér: „Ef
það er þá bara rétt ..-----“
Sama kvöld og þetta samtai
fór fram, fól frú Bougeard þjón-
ustukonu sinni að fara á fund
hins óstöðuglynda manns og
biðja hann um að tala við sig.
Þegar Pascal kom heim til
hennar, skammaði hún hann
fyrst mynduglega, fyrir að hafa
farið svona frá .heimilinu, og
bauð honum svo tvö hundruð
franka, ef hann færi heim aftur
næstkomandi mánudag klukkan
kortér yfir fimm.
Pascal, sem í marga daga
hafði lifað á smálánum og varla
haft ofan í sig að éta, sam-
þykkti tilboð hennar með á-
nægju.
Næstu þrjá daga notaði frú
Gerbier til þess að segja öllum
viðskiptavinum sínum frá því,
HEIMILISRITIÐ
37