Heimilisritið - 01.01.1946, Qupperneq 56
hversu mikið og vandasamt verk
mér er fengið í hendur með því að
leysa úr þeirri spurningu.
Ekki heldur gera menn sér það
ljóst, að rithandarskoðun (grapho-
logie) er viðurkennt fag, byggt á
sálarvísindum, sem notað er með
mikilvægum árangri víðsvegar um
heim af margs konar stofnunum,
verzlunarfyrirtækjum, vinnumiðl-
unarskrifstofum og — ekki sízt —
lögreglunni.
Aldalöng rannsókn á rithöndum
manna hefur smátt og smátt byggt
upp þessa fræðigrein og slegið því
föstu, svo að óhyggjandi er, að hin
ýmsu einkenni á rithöndum benda
ótvírætt á ákveðna eiginleika 'í fari
■skrifandans. Rithandarskoðandinn
athugar vandlega, ekki aðeins stafa-
gerðina, heldur áferð lesmálsins á
pappírnum, línuskil, línuhalla,
pennafarið sjálft o. fl. o. fl., auk
þess sem hann les úr hinum minnstu
stafkrókum. Þar hefur allt sína á-
kveðnu þýðingu, og þegar búið er að
rýna í eitt rithandarsýnishom, má
segja, að ekki sé sá blettur á papp-
írsörkinni, sem ekki hefur verið
vandlega athugaður.
Af þessu er það ljóst, að erfitt og
seinlegt er að lesa úr rithöndum og
það krefst mikillar nákvæmni, æf-
ingar og þekkingar, ef vel er gert.
Hin fjölmörgu bréf, sem mér hafa
borizt, þar sem spurt er, „hvað sé
hægt að lesa úr skriftinni“, benda á
mikinn og almennan áhuga á þessú,
og þess vegna hef ég gert mér far
um að hafa upp á einhverjum, sem
gæti tekið rithandarskoðun að sér
fyrir mig. Nú hefur mér tekizt þetta,
eiginlega af tilviljun. Er það maður,
sem er ágætlega menntaður í rit-
handarskoðun, og hefur hann lofað
að lesa úr rithönd manna, er þess
óska, gegn ákveðnu gjaldi. Gjaldið
er lágt, miðað við fyrirhöfn — að-
eins fjörutíu krónur. Og ég get mælt
með rithandarskoðandanum við
hvem sem er, þótt hann vilji ekki að
svo stöddu láta nafn síns getið.
Þeir, sem framvegis óska eftir að
láta lesa úr rithandarsýnishomi sínu
eða annarra, skulu því se'nda það í
ábyrgðarbréfi stiluðu til mín og láta
gjaldið (kr. 40.00) fylgja í umslag-
inu. Skrifa skal 50—80 orð á óstrik-
aða pappirsörk með því ritfangi, sem
sendandinn er vanur að nota. Auð-
vitað á rithöndin að vera sem eðli-
legust, rétt éins og þegar skrifað er
eitthvað upp sér til minnis.
Tekin verða til skoðunar og úr-
lestrar sýnishorn, þótt þau uppfylli
ekki þessi skilyrði, t. d. póstkort,
sendibréf, minnismiðar eða því um
líkt, en að sjálfsögðu verður árang-
urinn í samræmi við það — færri
eiginleikar koma þá í ljós, jafn-
framt því sem þeir em óljósari. Eigi
að síður getur jafnvel eitt handskrif-
að orð leitt allskýrt í ljós ákveðna
eiginleika, þótt oft sé því vart treyst-
andi.
Fullt nafn og heimilisfang þarf að
fylgja sýnishominu, en ekki er nauð-
synlegt, að það sé sendandans sjálfs.
Verður þá niðurstaða rithandarsér-
fræðingsins send þangað sem um er
beðið, en aldrei birt hér í ritinu.
Að sjálfsögðu verður farið með
þetta sem algert einkamál.
Utanáskrift mín er:
Heimilsritið
%
Eva Adams
Garðastræti 17
Reykjavík
54