Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.09.2013, Side 4

Fréttatíminn - 06.09.2013, Side 4
YFIR 20 GERÐIR GASGRILLA Á ÚTSÖLUNNI � Stærð: 149 x 110 x 60 cm ÚTSALA Er frá Þýskalandi Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 VERÐ ÁÐUR 59.900 49.900 www.grillbudin.is veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Skýjað, en úrkomulauSt V-til og Vindbelgingur. bjart eyStra. HöfuðborgarSVæðið: Lengst af Lágskýjað, jafnveL þoka. HVaSSt VeStantil og fer að rigna SíðdegiS. Heiðríkja a-til. Hlýtt. HöfuðborgarSVæðið: skýjað að mestu og þurrt, en rigning um kvöLdið. Skúrir V-til, en rigning n-landS og auStan um morguninn. HöfuðborgarSVæðið: strekkingur og skúraveður. Sumarauki fyrir norðan og austan Hlýtt loft er á leið til landsins úr suðri og fá íbúar á norður- og austurlandi helst notið þess auk þess sem þeir geta baðað sig í septembersólinni í dag og á morgun. skil lægðar fara austur yfir landið frá því seint á laugardag og fram á sunnudag. með þeim rignir um mest allt land, einkum þó s- og v-til. á undan þeim gæti orðið leiðin- lega hvass sa-vindur vestantil lengst af laugardagsins. svalara loft aftur á sunnudag og skúrir. 9 10 14 15 14 12 12 17 18 14 9 9 11 13 10 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is nýr þjónustukjarni fyrir fatlaða þjónustukjarni fyrir fatlað fólk í kópavogi var tekinn í notkun um nýliðin mánaða- mótin. Húsnæðið er á kópavogsbraut og eru í því fjórar nýjar íbúðir ásamt aðstöðu fyrir starfsmenn sem veita eiga íbúum þjónustu allan sólarhringinn. Íbúarnir flytja inn á næstu dögum, að því er fram kemur í tilkynningu kópavogsbæjar. „þegar kópavogsbær tók við málefnum fatlaðs fólks af ríkinu í ársbyrjun 2011 lá fyrir biðlisti 20 einstaklinga eftir húsnæði með sértækri þjónustu. Bæjarfélagið hóf strax vinnu við að tryggja þessu fólki nauðsynlegar úrbætur. nýr þjónustukjarni var tekinn í notkun árið 2011 og til viðbótar þeim sem tekinn var í notkun nú í byrjun mánaðar er hafinn undirbúningur að byggingu tíu nýrra íbúða. auk þess er fyrirhugað að fjölga félagslegum leiguíbúðum til handa fötluðu fólki,“ segir enn fremur. Húsnæðið að kópavogsbraut var að hluta til í eigu bæjarins en keypt að öllu leyti seinni hluta síðasta árs. undan- farna mánuði hefur verið unnið að því að breyta húsnæðinu og var verkið boðið út á vormánuðum. Húsið verður málað að utan á næsta ári og þá lýkur einnig frágangi á lóð. -jh tvær konur í stjórn Íslandsbanka tvær konur, Helga valfells og þóranna jónsdóttir, taka sæti í aðalstjórn Íslands- banka. þóranna jónsdóttir var áður vara- maður í stjórn bankans og gunnar fjalar Helgason tekur hennar sæti í varastjórn. Helga valfells hefur verið framkvæmda- stjóri nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins frá árinu 2010 og áður stýrði hún fjárfest- ingum sjóðsins. Hún var aðstoðarmaður viðskiptaráðherra árið 2009. þóranna jónsdóttir er deildarforseti viðskiptafræði- deildar Háskólans í reykjavík. - jh 120 milljóna hagnaður fyrri hluta ársins rekstur spalar, rekstraraðila Hval- fjarðarganga, skilaði liðlega 120 milljóna króna hagnaði eftir skatta á fyrri hluta árs 2013. um 34 milljóna króna hagnaður varð á rekstrinum á sama tímabili í fyrra. umferð í Hvalfjarðargöngum er ívið meiri í ár en ráð var fyrir gert og tekjur af henni sömuleiðis, að því er fram kemur á síðu félagsins. spölur birti nýverið uppgjör fyrstu sex mánuða ársins en þar kemur fram að veggjaldið hafi skilað félaginu 508 milljóna króna tekjum á tímabilinu en sambærileg tala í fyrra var 483 milljónir króna. - jh Hagnaður spalar af rekstri Hval- fjarðarganga á fyrri hluta ársins nam 120 milljónum króna. Ármann kr. Ólafsson bæjarstjóri flytur opnunarræðu við opnun þjónustukjarn- ans á kópavogsbraut. Þóranna jónsdóttir. t æpur helmingur handknattleiks-manna í efstu deild á Íslandi, eða 43%, neyttu minnst fimm áfengra drykkja einu sinni eða oftar í mánuði á síðasta undirbúningstímabili fyrir Íslands- meistaramót 2012-2013. Öllu færri, eða 19%, neyttu þessa áfengismagns á keppnis- tímabilinu. Þetta kemur fram í niðurstöð- um lokaverkefnis Sunnu Lindar Jónsdóttur til BSc gráðu í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík. „Mig langaði að skoða hvernig þessum hlutum er háttað hjá afreksíþróttamönnum og fannst mér upplagt að taka handknatt- leiksmenn í efstu deild á Íslandi fyrir. Mér finnst merkilega hátt hlutfall neyta áfengis í þessu magni á undirbúningstímabilinu,“ segir Sunna. Tilgangur og markmið rannsóknar var að athuga hvort leikmenn teldu að áfengis- neysla hafi áhrif á frammistöðu sína. Einnig var skoðað hvaða viðhorf hand- knattleiksmenn í efstu deild á Íslandi hafa til áfengisneyslu og hvernig neyslumynstri þeirra er háttað. Svarhlutfall var 68% eða 88 svör í heildina. Þá svöruðu þátttakendur CAGE-spurn- ingalistanum sem er notaður til að meta hvort fólk á við áfengisvandamál að stríða. Tveir þátttakendur sögðust vikulega upplifa sektarkennd eða eftirsjá vegna drykkju en 49 þátttakendur höfðu aldrei upplifað slíkt. Mikill meirihluti, 76%, sagðist aldrei hafa lent í því að geta ekki hætt drykkju. Samkvæmt heildar- svörum CAGE-spurningalist- ans gætu 15,9% átt við áfengis- vandamál að etja en 3,4% eiga við raunverulegt áfengisvandamál að stríða, alls 19,3%. „CAGE- spurningarlistinn er mjög staðlaður og kannski erfitt að alhæfa niður- stöður út frá honum,“ segir Sunna. Tveir þriðju þátttakenda taldi að áfengis- neysla hefði mikil eða frekar mikil áhrif á frammistöðu í íþróttum en einungis 27% taldi á áfengisneysla hefði mikil eða frekar mikil áhrif á íþróttameiðsl. „Ég bjóst við að fleiri teldu áfengisneyslu hafa áhrif á íþróttameiðsl. Ef íþróttamenn mæta á æfingu á undirbúningstímabilinu eftir að hafa drukkið fimm eða fleiri áfenga drykki kvöldið áður er líklegt að taugakerf- ið sé ekki í jafn góðu standi og venjulega og þar afleiðandi er líkaminn ekki í jafn góðu ásigkomulagi til að takast á við átökin sem íþróttin krefst af íþróttamanninum. Í nær- ingarlegu samhengi þá er áfengi ekki álit- legur orkugjafi fyrir líkamann heldur gerir líkaminn allt til að brenna áfenginu burt úr líkamaum þegar þess er neytt og þar með verður álag á lifrina. Á sama tíma verður ekki jafn mikil upptaka af steinefnum og vítamínum sem skiptir máli fyrir íþrótta- menn. Hins vegar er mjög gott hversu margir eru meðvitaðir um áhrif áfengis á frammistöðu,“ segir Sunna. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa vís- bendingu um stöðuna en þar sem rann- sóknin er það smá í sniðum er ekki hægt að fullyrða út frá henni um stærri hóp. Nýjasta rannsókn Lýðheilsustöðvar á áfengis- neyslu er frá árinu 2007 og tekur til stærra aldursbils. Samkvæmt henni drukku 12% karlmanna á öllum aldri fimm drykki eða fleiri vikulega eða oftar, en aðeins 2% handknattleiksmannanna. Þá höfðu 33% þeirra fundið fyrir sektarkennd eða eftirsjá vegna áfengisneyslu sinn- ar, en 30% handknattleiksmanna. erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  Heilsa Handboltamenn meðvitaðir um áHriF áFengis á getu Drekka frekar á undir- búningstímabilinu Mér finnst merkilega hátt hlut- fall neyta áfengis í þessu magni á undirbún- ingstíma- bilinu. áfengisneysla handknattleiks- manna í efstu deild á Íslandi er nokkuð svipuð neyslu almennings. samkvæmt niðurstöðum nýrrar rann- sóknar eiga um þrjú prósent þeirra við áfengisvanda- mál að stríða. tæpur þriðjungur handknattleiksmanna í fyrstu deild telur áfengisneyslu hafa áhrif á íþróttameiðsl. Mynd/Getty/NordicPhotos sunna Lind jónsdóttir íþróttafræðingur. 4 fréttir Helgin 6.-8. september 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.