Fréttatíminn - 06.09.2013, Page 24
Andlegt gjaldþrot ekki yfirvofandi
Listamaðurinn Þórarinn Hugleikur Dagsson hefur um árabil notið mikilla vinsælda, á Íslandi og víðar, ekki síst fyrir mini-
malískar, grófar og hárbeittar örsögur sínar sem hann segir með spýtuköllum sem komu fyrst fram í bókum sem kenndar
eru við „okkur“. Hulli, eins og hann er jafnan kallaður, er nú kominn í Sjónvarpið með teiknimyndaþáttum sem skrum-
skæla listamannstilveru hans. Hann er tilbúinn í fleiri þætti ef þessir ganga vel og segist ekki enn stefna í sköpunarlegt
gjaldþrot. Hulli vakti fyrst athygli sem kvikmyndagagnrýnandi í útvarpsþættinum Tvíhöfða og hann segir þann þurs, Jón
Gnarr og Sigurjón Kjartansson, hafa gefið sér sjálfstraustið sem þurfti til þess að gefa spýtukallana út.
Egill Örn Jóhannsson og faðir hans Jóhann Páll
Valdimarsson, hjá JPV, tóku Hulla upp á sína
arma og síðan hefur bókaútgáfa hans verið
blómleg. „Þeir höfðu ekki mikla reynslu af svona
útgáfu þannig að þeir þurftu eiginlega bara að
treysta minni dómgreind. Og ég sagði bara við
þá: „Já, þetta er mjög gott hjá mér.“ Myndir/Hari
24 fréttir Helgin 6.-8. september 2013