Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.09.2013, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 06.09.2013, Blaðsíða 32
Hann má – hún ekki B Börn eru á talsverðu flandri á starfsdögum kennara eða öðrum dögum er kennsla fellur niður. Þá er fátt annað til ráða hjá foreldrum en að annað taki sér frí í vinnu eða ómegðina með sér í vinnuna. Ömmur eru vinsælar í svona ástandi, en flestar þeirra eru í vinnu, líkt og foreldrarnir. Þær þurfa því annað hvort að taka sér frí eða hafa ungviðið hjá sér í vinnu. Afar eru svo þrautalendingin, ágætir svo sem, þótt þeir standist ekki vinsældasamanburð á við ömmur. Svo vel vildi til á nýliðnum skólafrídegi að ég var á síðasta degi sumarfrís. Sá var heldur kaldranalegur, eins og margir bræður hans á liðnu óþurrkasumri. Því var lítið við að vera og ég gat sótt barnabarn mitt í vinnuna til móður þess um hádegisbil, sjö ára stúlku. Hún veit hvað hún vill og bauð afa sínum upp á tvo kosti þetta hráslagalega síðdegi, annað hvort heimsókn í Húsdýragarðinn eða yfirlits- og eftir atvikum innkaupaferð í leikfangaverslunina Toys „R“ Us. Glöggt kom fram hjá stúlkunni að hún vildi heldur fara í Húsdýragarðinn og taldi hryss- ingslegt veður enga fyrirstöðu. Þangað nennti afinn hins vegar ekki í því veðri sem boðið var upp á og beitti því fortölum. Ég sagði barninu að í dýra- garðinn færum við bara í góðu veðri, auk þess sem lömbin væru orðin svo stór að þau væru fráleitt eins krúttleg og í vor. Þá væru grísirnir orðnir að feitum svínum og kálfarnir farnir að líkjast foreldrum sínum óþægilega mikið. Þessi málflutningur hafði lítil áhrif á stúlkuna enda er hitt ömmu- og afasettið bændur norður í landi og hún því vön búfénaði af öllum stærðum og gerðum. Auk þess taldi hún sig geta skoðað refi, seli og önnur þau dýr sem héldu æskufegurð sinni lengur en sauðfé, svín og kýr. Ég ákvað hins vegar að tala hana frekar inn á hinn kostinn, heimsókn í leikfangabúðina, þótt ég sé lítið fyrir búðaráp. Miðað við veður var skárra að vafra þar, rekka á milli, en láta snemmbúna haust- rigninguna lemja á sér. „Þú verður þá að kaupa eitt- hvað handa mér,“ sagði stelpan sem áttaði síg á því, af kvenlegu innsæi, að hún væri komin í ákjósan- lega samningsstöðu gagnvart afa sínum. „Við skulum bara skoða hvað fæst í búðinni,“ sagði ég en þó í þeim tóni að barnið gat hugsan- lega gert sér vonir um einhverja umbun færum við frekar í leikfangaverslunina en Húsdýragarðinn. Þó mætti hún ekki suða. Megintilgangur heimsóknar- innar væri að skoða dýrðina, ekki kaupa. Ég segi ekki að sonardóttir mín hafi suðað, ekki beinlínis, en ansi oft horfði hún bænaraugum á afa sinn þegar við gengum rekka á milli og horfðum á hverja freistinguna á fætur annarri. Ég hef nokkurn skilning á því og get vel séð sjálfan mig við sömu aðstæður á sama aldri – nema þá voru svona fínirís- búðir ekki til. Við skoðuðum hljómborð og trommu- sett sem óvíst er að hefðu vakið gleði foreldranna, skemmtileg apparöt að sönnu við réttar að- stæður en afar hávaðasöm fyrir þreytta og vinnulúna foreldra. Þau komu því ekki til greina. Þá staðnæmdist stúlkan aftur og aftur við gormhoppara, sem sjálfsagt heita eitthvað annað í sölu- bæklingum, en virtust frá sjónarhóli afans hannaðir til að brjóta útlimi. Þeir voru því afskrifaðir. Mjúkar kanínur og hvolpar vöktu að vonum athygli en ég minnti hana á að amma hefði gefið henni svona kanínu í fyrra. Einhvers staðar hlyti hún að vera, innan um hin tuskukvikindin í barnaherberginu. Fyrst amman er nefnd get ég ekki annað en hælt sonardóttur okkar fyrir vinnubrögð í leikfangaversluninni. Þar minnti hún mig á ömmu sína sem man hvar hlutir fást en ég elti villuráfandi og leita helst eftir stól, sófa eða öðru afdrepi þegar við förum saman í búðir, einkum ytra. Stelpan skannaði með undraverðum hætti það sem í boði var í stórri versluninni og gekk aftur og aftur að þeim hlutum sem freistuðu mest – þótt afinn ruglaðist og týndi áttum. Þegar leið á heimsóknina lá leiðin æ oftar að hillum þar sem í boði voru heldur ógnvekjandi tól, að mati afans að minnsta kosti. „Kaupum svona,“ sagði sú dálitla og teygði sig í pakka með útlendu löggudóti, svartri skambyssu og handjárnum. „Nei,“ sagði afinn ákveðið, „þetta er ekki fallegt dót, hvað í ósköpunum ætlar þú að gera við þetta?“ Stelpan horfði sínum stóru barnsaugum á afa sinn og sagði, eins og ekkert væri sjálfsagðara, „nú, handjárna dúkkurnar mínar.“ Með lagi leiddi ég sonardóttur mína frá þessum ógnarrekka í heldur friðsamari deild verslunarinnar þar sem við keyptum vatns- liti. Hún var í sjálfu sér ánægð með þá enda hefur hún gaman af að lita og föndra. Þó tók ég eftir því að á útleiðinni skotraði hún augunum að hinum forboðna varningi, hefði eflaust frekar viljað hand- járna leggjalangar barbí- dúkkur og jafnvel óþekkan Ken en vatnslita blóm og bláan himin. Á heimleiðinni með litina góðu komst afinn því ekki hjá því að líta í eigin barm. Hvernig hefði ég brugðist við ef ég hefði verið í sömu erinda- gerðum í leikfangaversluninni með sjö ára strák í stað stelpu. Hefði ég ekki slegið til og splæst í byssuna og handjárnin? Sennilega. Á þeim aldri hefði ég að minnsta kosti vel getað hugsað mér að eiga handjárn og skambyssu – og hef að öllum líkindum átt. Afinn þarf því að fara í endurhæf- ingu. Strákurinn má, stelpan ekki. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL A ÚT SALA ÚTSA TSALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A TSALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SA SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT ÚTSAL A ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA Ú SAL A ÚT SALA Ú Faxafeni 8, 108 Reykjavík • sími 534 2727 • netfang alparnir@alparnir.is • www.alparnir.is EKKI MISSA AF ÞESSU, FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ! lÍs en ku LPARNIR s Karrimor bakpokar 50% afsl. Zajo Flíspeysur nú 3.995.- Nord Blanc Flíspeysa W nú 2.995.- Göngubuxur 20-50% afsl. Bolir fljótþornandi 30-50% afsl. Softshellbuxur nú á 9.995 Úlpur 30-60% afsl. Öll smávara 20% afsl. HAD klútar aðeins 995 Fataslár: 2.995.-, 3.995.-, 4.995.- ATH. eingöngu í Faxafeni 8, Reykjavík Ú SÖLULOK 20% til 70% afsl. Teikning/Hari 32 viðhorf Helgin 6.-8 september 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.