Fréttatíminn - 06.09.2013, Blaðsíða 16
16 viðhorf Helgin 6.-8 september 2013
Staðgöngumæður eiga börn fyrir því annars fá þær ekki að gerast staðgöngumæður
Staðgöngumæður og börnin þeirra
V ið erum löngu hætt að skilgreina fjölskyldu sem gagnkynhneigð hjón með barn eða börn. Fjölskyldur
geta verið tvær mæður og barn, fósturfor-
eldrar og barn, tveir feður og barn eða jafn-
vel einstæð móðir og barn. Það sem
gerir fjölskylduna að fjölskyldu eru
börnin. Þannig hugsum við þetta
flest. Það er samt langt frá því að
allir geti eignast börn. Fjöldi fólks
á við ófrjósemisvandamál að etja,
reynir árum saman að eignast barn
en það tekst aldrei. Suma langar
ekkert að eignast börn og þá er það
bara þannig en það leggst mjög á
sálina á fólki sem vill eignast börn
en getur það ekki. Það er ekki að-
eins tilfinningaleg löngun að eign-
ast barn heldur einnig félagsleg.
Fólk horfir á vini sína og systkini
eignast börn og taka að sér nýtt
hlutverk í lífinu: að vera foreldrar. Börnin
eignast síðan börn og fólk horfir á vini sína
og systkini verða afa og ömmur. Stundum
er talað eins og það séu mannréttindi að
eiga börn en auðvitað er það ekki þannig.
Löngunin í barn er hins vegar stundum svo
sterk að fólk er tilbúið til að leita til fátækra
staðgöngumæðra í fjarlægum löndum sem
beinlínis starfa við að ganga með börn fyrir
aðra. Þær leigja leg sitt í níu mánuði eða
svo, taka á sig allar þær hormónasveiflur
og breytingar á líkamanum sem meðgöngu
fylgja og kveðja barnið að níu mánuðunum
liðnum.
Á Íslandi bendir allt til að hér verði leyfð
staðgöngumæðrun, ekki í ábataskyni held-
ur í velgjörðarskyni. Konurnar fá því ekki
greiðslu fyrir meðgönguna, nema þá vænt-
anlega sem nemur lækniskostnaði og slíku,
heldur ganga þær með barn annarra af
góðsemi og fórnfýsi. Ástríður Stefánsdóttir,
læknir og siðfræðingur, sat í fyrsta vinnu-
hópnum sem heilbrigðisráðherra skipaði
til að skoða siðfræðileg, læknisfræðileg og
lögfræðileg álitaefni varðandi staðgöngu-
mæðrun og skilaði áliti fyrir þremur árum.
Ástríður sagði í Fréttatímanum í liðinni
viku að hún sé alls ekki hlynnt því að Ís-
lendingar eigi að leyfa staðgöngumæðrum
í velgjörðarskyni en fyrst að sú ákvörðun
hafi verið tekin að fara í þessa vegferð,
enda er nú verið að undirbúa frumvarp þess
efnis, þurfi að skoða vel alla þætti. Ástríður
hefur áður bent á að staðgöngumæðrun
breyti skilningi okkar á fjölskyldutengslum
og móti menningu okkar til framtíðar. Hún
leggur áherslu á að staðgöngumóðirin verði
sjálf að fá að ráða líkama sínum á meðgöng-
unni og enginn annar en hún ákveði hvort
hún fari í fóstureyðingu ef álitamál komi
upp. Þá væri það brot á mannréttindum
hennar að gera við hana bindandi samning
um að hægt væri að stefna henni ef konunni
snýst hugur í ferlinu.
Í umfjöllunum staðgöngumæðrun hefur
umræðan einskorðast nokkuð við parið
sem óskar eftir barni svo og konuna sem
gengur með barnið. Ástríður hefur bent
á að málið sé öllu flóknara því staðgöngu-
móðirin á yfirleitt sína eigin fjölskyldu, hún
á börn því aðeins konur sem hafa eignast
börn geta orðið staðgöngumæður, og þau
börn geta upplifað sorg eða missi þegar
móðir þeirra gefur frá sér barnið sem
hún gekk með og þau jafnvel upplifa sem
systkini sitt.
Enn eitt álitamálið sem Ástríður hefur
bent á er að þar sem við erum um opinn
aðgang að heilbrigðisþjónustu á Evrópska
efnahagsvæðinu og ef staðgöngumæðrun
er leyfileg hér væri erfitt að meina fólki
þaðan aðgang að íslenskum staðgöngu-
mæðrum en eftir því sem aðgengið væri
opnara væri erfiðara að koma í veg fyrir
markaðsvæðingu á staðgöngumæðrun. Að
mörgu þar að huga, það er ljóst.
Erla
Hlynsdóttir
erla@
frettatiminn.is
17,7
milljónir kostuðu fram-
kvæmdir Reykjavíkurborgar
við Hofsvallagötu.
Vikan í tölum
13.039
flugvélar flugu samtals 18,6 milljónir kílómetra innan íslenska flugstjórnar-
svæðisins í ágúst sem er nýtt met. Vegalengdin jafngildir 48 ferðum til tunglsins.
130
hommar gera sér glaðan dag á
hátíðinni Bears on Ice hér á landi
um helgina. Hátíðin er fyrir „birni“
sem eru skilgreindir yfir meðallagi í
þyngd, oft loðnir og skeggjaðir.
PRÓTEINRÍKT OG FITULAUST
Suðræni Skyr.is drykkurinn
er kominn aftur
Kolvetnaskertur
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
ENGINN
HVÍTUR SYKUR
NÝTT
MANGÓ &
ÁSTARALDIN
30
prósent hækkun
hefur orðið á
meðallaunum í
viðskiptabönk-
unum síðustu þrjú
ár. Á sama tíma
hefur launavísi-
talan hækkað um sjö
prósent.
808.000
krónur eru meðallaun
starfsmanna í Íslands-
banka.
500
fasteignir um allt land í eigu Íbúða-
lánasjóðs fara á sölu nú í haust.