Fréttatíminn - 06.09.2013, Page 34
hefjast 9. og 10. september
4 vikna námskeið
Ný námskeið
N
ý
ná
m
sk
ei
ð
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík
Sími 560 1010 • www.heilsuborg.is
60 ára og eldri:
Pilates
Þri. og fim. kl. 17:30 eða 18:30.
12 vikur.
Jóga
Þri. og fim. kl. 12:00.
Zumba og Zumba toning
Dansaðu þig í form!
Þri. og fim. kl. 16:30.
Kvennaleikfimi
Gamla góða leikfimin fyrir konur
Mán., mið. og föst. kl. 16:30.
Þri. og fim. kl. 10:00.
Morgunþrek
Fjölbreyttir púl tímar fyrir karla og konur
Mán., mið. og föst. kl. 7:45 eða 09:00
Start 16-25 ára
Fyrir ungt fólk sem vill koma sér í form
Mán., mið. og föst. kl. 15:30 eða 18:30
Leikfimi 60+
Mán. og mið. kl. 11:00.
Mán. og mið. kl. 15:00.
Þri. og fim. kl. 10:00.
Zumba Gold 60+
Fyrir þá sem hafa gaman af að dansa.
Þri. og fim. kl. 11:00.
34 heilsa Helgin 6.-8 september 2013
Íþróttir frjálsar
Skráning
hafin
Upplýsingar í síma 561 5620
www.schballett.is
Hjá Frjálsíþróttadeild Ármanns æfa börn frá sex ára aldri og njóta þau þess að hlaupa um frjálsíþróttahöllina. Frístundarúta
ekur börnum frá Laugarnes-, Langholts- og Vogaskóla í Laugardal á æfingar. Ljósmynd/Hari.
Enginn á bekknum í frjálsum
Hauststarfið er hafið hjá frjálsíþróttadeild Ármanns og er nýjum iðkendum tekið fagnandi. Á
undanförnum árum hefur iðkendum í öllum aldursflokkum fjölgað mikið og þakkar formaður
deildarinnar það fyrst og fremst góðu og faglegu starfi þjálfara deildarinnar.
Í vikunni hófst vetrarstarfið hjá Frjálsíþróttadeild Ár-manns og er Freyr Ólafs-
son, formaður deildarinnar,
ánægður með góða mætingu.
„Fyrstu viku er að ljúka hjá
okkur og við erum mjög þakk-
lát fyrir góða mætingu.“ Freyr
telur að góður árangur
íslensks afreksfólks
hafi vakið athygli á
íþróttinni og kveikt
áhuga hjá mörgu ungu
fólki. „Frábær frammi-
staða frjálsíþrótta-
manna hvetur krakka
til að kíkja á æfingu
en það er bara fyrsta
skrefið. Góðir þjálfarar
eru alltaf lykillinn að
því að íþróttastarfið
dafni og iðkendur
endist. Ekki má gleyma
heldur aðstöðunni.
Okkar fólk æfir við frá-
bærar aðstæður í frjáls-
íþróttahöllinni í Laug-
ardalnum. Við gætum
ekki boðið upp á okkar
starf án hennar. Ég
hef séð marga missa
höku niður í bringu að
stíga inn í salinn,“ segir
hann.
Hjá Ármanni er
boðið upp á æfingar
fyrir börn frá sex
ára aldri og stendur
börnum í hverfunum
í Laugardal (Laugar-
nes-, Langholts- og Vogaskóla)
til boða að taka frístundarútu
á æfingar. „Frístundarútan
hefur verið gríðarlega vinsæl.
Börnunum er ekið í höllina og
þangað sækja foreldrarnir þau
síðan að lokinni æfingu,“ segir
Freyr. Yngstu iðkendurnir
þurfa ekki á neinum búnaði
að halda til að mæta á frjáls-
íþróttaæfingu, aðeins stutt-
buxum og bol og eru flestir á
tásunum. „Yngstu iðkendurnir
njóta þess að vera fyrst í þessa
stóru höll á daginn og hafa
hana út af fyrir sig.
Börnin njóta þess að
hlaupa um skríkjandi
og kát.“
Unglingsaldurinn
er góður tími til að
byrja að æfa frjálsar
og segir Freyr þær
henta vel til að æfa
með öðrum íþróttum,
til dæmis boltaíþrótt-
um. „Margir vilja
auka hlaupahrað-
ann sinn og koma
þá í frjálsar og nýta
sér kunnáttu þess-
arra frábæru þjálfara
sem við erum með.“
Í september verður
tekið sérstaklega vel
á móti unglingum
sem vilja byrja að
æfa frjálsar með
Ármanni. „Það er
enginn á bekknum
í frjálsum, segi ég
stundum. Þetta er
einstaklingsíþrótt
þar sem hver og einn
keppist við að bæta
sjálfan sig.“
Nánari upplýsingar
um æfingar hjá Frjálsíþrótta-
deild Ármanns má nálgast
á vef deildarinnar armann-
frjalsar.com
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Margir vilja
auka hlaupa-
hraðann sinn
og koma
þá í frjálsar
og nýta sér
kunnáttu
þessarra
frábæru
þjálfara sem
við erum
með.