Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.09.2013, Síða 14

Fréttatíminn - 06.09.2013, Síða 14
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@ frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. L Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar, er haldin nú um helgina í fjórtánda sinn. Hátíðin hefur heppnast vel, heimamenn leggja sig fram og þús- undir gesta sækja fjölbreytta menningarvið- burði í bæjarfélaginu. Hátíðin hófst í gær, fimmtudag og stendur fram á sunnudag en hápunkturinn verður á morgun, laugardag. Fjöldi myndlistarmanna sýnir verk sín víðs vegar um bæinn. Vinnustofur listamanna verða opnar og fjölmargar sýningar í boði. Tónlist er að vonum áberandi í bítlabænum. Að auki er boðið upp á fjölbreytta barnadag- skrá, íþrótta- og tómstundavið- burði og margt fleira. Ljósanótt er dæmi um vel heppnaða bæjarhátíð en þær hafa rutt sér til rúms á undan- förnum árum og eru haldnar um land allt. Segja má að há- tíðin um helgina marki enda sumarhátíða bæjarfélaganna. Haust og vetur eru fram undan með rysjóttu veðri en sem betur fer eru þessar hátíðir ekki bundnar við sumarið eitt. Þær eru á öllum árstímum. Bæjarhátíðir hafa lengi verið haldnar og lengsta hefð í þeim efnum eiga Vestmanna- eyingar með sína þjóðhátíð sem haldin hefur verið allt frá árinu 1874. Verslunar- mannahelgin er vinsæl til úti- og bæjarhátíða og má meðal annarra nefna Eina með öllu á Akureyri, Síldarævintýrið á Siglufirði og Mýrarboltann á Ísafirði sem nýtur æ meiri vinsælda og laðar að sér fólk víða að, jafn- vel utanlands frá. Fleiri bæir halda til haga sínum sérkennum en Siglfirðingar síldinni, Berjadagar eru á Ólafsfirði og Blómstrandi dagar í blómabænum Hveragerði. Hvað auknar vinsældir bæjarhátíða varðar má segja að tónninn hafi verið sleginn með Menningarnótt í Reykjavík sem fyrst var haldin árið 1996. Það framtak tengist afmæli höfuðborgarinnar, 18. ágúst, en Menningar- nótt er haldin á afmælisdaginn, beri hann upp á laugardag, annars fyrsta laugardag eftir afmælið. Sjaldan skrýðist miðborg Reykjavíkur litríkari og skemmtilegri búningi en þá. Hún iðar af lífi þar sem list- greinar og skemmtun blandast. Borgarbúar og gestir þeirra hafa ekki látið sitt eftir liggja en í fyrra var talið að um hundrað þúsund manns hefði notið atburða Menningarnætur og í ár um 80 þúsund þegar veður var óhag- stæðara. Landsmenn láta veður þó lítt á sig fá á hátíðisdögum sem þessum enda getur til beggja vona í þeim efnum, jafnvel þótt á sumardegi sé. Önnur hátíð í Reykjavík laðar líka að fjölda gesta, Hinsegin dagar. Hún nær hámarki með mikilli og fjölskrúðugri gleðigöngu. Hátíðin hefur skipt miklu í réttindabaráttu samkynhneigðra en í sumar var hún haldin í fimmtánda sinn. Fiskidagurinn mikli á Dalvík er enn fremur hátíð sem einkar vel hefur lukkast. Þangað koma oft tuttugu til þrjátíu þúsund manns þá daga sem hátíðin stendur. Heima- menn taka vel á móti gestum, fegra sinn bæ og bjóða velgjörðir. Fleiri fegra bæinn og bjóða heim og má meðal hátíða nefna Kópavogsdaga í maí, Vor í Árborg, bæjar- og fjölskylduhátíð á Selfossi, Víkingahátíð í Hafnarfirði, Jazzhátíð á Egilsstöðum sem haldið hefur góðum dampi í aldarfjórðung, Þjóðlagahátíð á Siglufirði, Eistnaflug í Nes- kaupstað, Bræðsluna á Borgarfirði eystra, Sæluhelgi á Suðureyri, Mærudaga á Húsavík og Franska daga á Fáskrúðsfirði. Aðrar bæj- arhátíðir eru þá ótaldar, auk sumarhátíða á biskupsstólunum Hólum og Skálholti. Vetrardagar henta líka til hátíðahalda sveitarfélaganna og má þar meðal annars nefna Myrka músíkdaga í Reykjavík í janúar og febrúar, Vetrarhátíð í Reykjavík í febrúar, Skíðaviku á Ísafirði um páska, auk marg- frægrar Sæluviku í Skagafirði þegar aðeins er farið að vora, í apríl og maí. Síðast en ekki síst ber að nefna Hönnunar- mars, sem haldinn var í fimmta sinn í ár. Yfir hundrað viðburðir voru á dagskrá en á fjórða hundrað hönnuða og arkitekta tóku þátt í dagskrá hátíðarinnar sem um þrjátíu þúsund manns sóttu. Ljósanótt sem nú stendur og allar systur hennar auðga menningarlíf okkar. Aðsóknin sýnir að fólk kann vel að meta. Ljósanótt í Reykjanesbæ á sér margar systur Menningarauki fyrir alla Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Og góður í ensku? Hann er mjög viðkunnalegur, og sérstaklega skipulagður í allri framsetningu og rökfærslum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætis- ráðherra, hitti Obama, Bandaríkjaforseta, og hreifst af kappanum. Styttist í efnahagsbatann Hann er kominn á einhver svakaleg sýklalyf þannig að þetta ætti nú að lagast brátt. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðar- maður forsætisráðherra, útskýrði hvað varð til þess að Sigmundur Davíð fór á fund Obama í ósamstæðum skóm. Ekki stjórnmálamenn heldur Við höfum lítið við menningu að gera þegar allir eru dauðir. Grímur Gíslason, miðstjórnar- maður í Sjálfstæðisflokknum, varpaði sprengju í menningarumræðuna með digurbarkalegu tali um niðurskurð í menningarmálum. Menningarsnautt pakk Restin situr eftir og hefst þar við út- gerðarmannadekur og brekkusöng. Sjón sendi Eyjafólki tóninn eftir að Eyjamaðurinn Grímur Gíslason, formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, lagði til stórkostlegan niðurskurð á opinberu framlagi til lista. Sjóndirarírei Hvað heldurðu að þú sért! Valtar yfir Eyjamenn með svona kjafthætti. Tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson hefur verið frekur til fjörsins í netumræðunni undanfarið og sat ekki þegjandi undir skotum Sjóns. Fórnarlambið Það eru margir að stunda þetta að leggja svona í bílastæðin en svo er ráðist á mig af því að ég er á óvenju- legum Range Rover með einkanúm- erum. Sveinn Elías Sveinsson vakti athygli fyrir tilþrif á bílastæði þar sem hann lagði tvö stæði fyrir fatlaða og gangbraut undir óvenjulegan jeppann sinn. En að senda bara bréf ? Fyrir þetta vil ég biðjast afsökunar og ég mun á næstu dögum leita eftir fundi með Jóni Baldvini. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, fann sig knúna til að biðja Jón Baldvin Hannibalsson afsökunar á að starfskraftar hans hafi verið afþakkaðir. Jón krossfari Jón Gnarr er ekki sá fyrsti og verður ekki sá síðasti sem ákveður að berjast gegn Guði. Það er hans mál. Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður, hefur fengið sig fullan á trúleysisboðskap borgarstjóra.  Vikan sem Var Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Tel: +354 517 4300 | www.geysirbistro.is Bröns. Í hádeginu alla laugardaga og sunnudaga Diskur með beikoni, hrærðum eggjum, pylsum, pönnuköku, djúpsteiktum camembert, ristuðu brauði, skinku, osti, ávöxtum og heimalöguðum skyrdrykk. Kaffi eða te fylgir með. 2.295,- Bröns_2dx30.indd 2 28.5.2013 13:51 Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t KjúKlingamáltíð fyrir 4 Grillaður kjúklingur – heill Franskar kartöflur – 500 g Kjúklingasósa – heit, 150 g Coke – 2 lítrar* *Coca-Cola, Coke Light eða Coke Zero 1990,- Verð aðeins + 1 flaska af 2 L Hvað auknar vinsældir bæjarhátíða varðar má segja að tónninn hafi verið sleginn með Menningarnótt í Reykjavík. 14 viðhorf Helgin 6.-8 september 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.