Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.09.2013, Side 38

Fréttatíminn - 06.09.2013, Side 38
Galieve Cool Mint mixtúra, dreifa /skammtapoki / Galieve Peppermint tuggutöflur.. Innihaldslýsing: Hver 10 ml skammtur af Galieve Cool Mint inniheldur 500 mg af natríumalgínati, 267 mg af natríumhýdrógenkarbónati og 160 mg af kalsíumkarbónati. Hver tafla Galieve Peppermint inniheldur: 250 mg af natríumalgínati, 133,5 mg af natríumhýdrógenkarbónati og 80 mg af kalsíumkarbónati. Ábendingar: Meðferð við einkennum maga- og vélindabakflæðis, svo sem nábít (sýrubakflæði), brjóstsviða og meltingartruflunum (tengdum bakflæði), t.d. eftir máltíðir eða á meðgöngu. Skammtar og lyfjagjöf: Galieve Cool Mint mixtúra: Til inntöku. Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: 10-20 ml (eða 1-2 skammtapokar) eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að fjórum sinnum á dag). Galieve Peppermint tuggutöflur: Til inntöku, eftir að hafa verið tuggin vandlega. Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: Tvær til fjórar töflur eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að fjórum sinnum á sólarhring). Frábendingar: Ekki má nota lyfið hjá sjúklingum með þekkt ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna, eða ef grunur er um slíkt. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: Galieve inniheldur natríum. Þetta þarf að hafa í huga þegar þörf er á mjög saltsnauðu fæði, t.d. í sumum tilvikum hjartabilunar og skerðingar á nýrnastarfsemi. Galieve inniheldur kalsíumkarbónat. Gæta þarf varúðar við meðferð sjúklinga með blóðkalsíumhækkun, nýrnakölkun og endurtekna nýrnasteina sem innihalda kalsíum. Verkun er hugsanlega skert hjá sjúklingum með mjög lága þéttni magasýru. Ef einkenni batna ekki eftir sjö daga, skal endurmeta klínískt ástand. Yfirleitt er ekki mælt með meðferð hjá börnum yngri en 12 ára, nema samkvæmt læknisráði. Galieve Cool Mint mixtúra/skammtapokar inniheldur metýlparahýdroxýbenzóat (E218) og própýlparahýdroxýbenzóat (E216) sem geta valdið ofnæmisviðbrögðum (hugsanlega síðbúnum). Galieve Peppermint tuggutöflur má ekki gefa sjúklingum með fenýlketónmigu, þar sem þær innihalda aspartam.. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. 1. V Strugala er. Al. The journal of international medical research, vol 38 (2010) A randomized, Controlled, Crossover trial to Investigae Times of onset of the perception of soothing and cooling by Over-the-Counter Heartburn Treatments. 2. B.Chevrel, MD. Journal of International Medical Research, vol 8 (1980) A comparative Cross-over Study on the Treatment of heartburn and Epigastric Pain; Liquid Gaviscone and Magnesium- Aluminum Antacid Gel. Ert þú með brjóstsviða? • Dregur úr brjóstsviða á 3 mínútum 1 • Virkar í allt að 4 tíma 2 Mixtúra Cool Mint 300 ml Mixtúra með Cool Mint bragði og lykt. Galieve Peppermint Tuggutöflur með piparmintu bragði 38 matur og vín Helgin 6.-8 september 2013  Veitingastaðir Micro Bar í austurstræti selur 150 Bjórtegundir Þ að er mikið af ferða-mönnum sem sækja staðinn og þeir eru í meirihluta á rólegu dögun- um, sunnudögum, mánudög- um og þriðjudögum. En Ís- lendingar eru klárlega farnir að kunna betur að meta góðan bjór og eru duglegir að koma hingað. Þeir eru meira að segja farnir að fara fyrr á fætur og læra að við opnum snemma og lokum snemma,“ segir Árni Ingólfur Halldórs- son Hafstað, eigandi Micro Bars í Austurstræti. Árni opnaði Micro Bar fyrir rúmu ári til að kynna eigin bjór. Hann er eigandi brugghússins Gæðings og var ósáttur við að koma ekki bjórnum sínum að á börunum í Reykjavík vegna þess sem hann kallar yfirgang stóru framleiðendanna. Fyrir vikið eru vörur þeirra ekki til sölu á Micro Bar. „Alla jafna erum við með átta krana og á þeim eru bjórar frá íslensku örbrugg- húsunum; Steðja, Ölvisholti, Kalda og Gæðingi,“ segir hann. Er ekki freistandi að bjóða bara upp á þinn bjór og skilja aðra útundan? „Við erum yfirleitt með þrjá bjóra frá Gæðingi á krana. Ég reyni að leika tvö hlutverk í þessu. Þegar ég er norður í brugghúsi vil ég helst hafa átta bjóra á krana en þegar ég er hér vil ég alls ekki fleiri en fjóra.“ En úrvalið á krana er fátæklegt í samanburði við þann fjölda af bjórum sem hægt er að kaupa á flöskum. Árni segir að alls séu um 150 bjórtegundir í boði á Micro Bar og má ólíklegt telja að finna megi bar með viðlíka úrval hér á landi. „Við erum sennilega með mest frá dönskum brugg- urum, svo koma Belgar, þá Skotar og svo er svolítið frá Ameríku, Bretlandi og Hol- landi.“ Heimili bjóráhugafólks Micro Bar í Austurstræti var opnaður fyrir rúmu ári. Upphaflega hugmyndin var sú að kynna bjórinn Gæðing en hún hefur síðan undið upp á sig. Nú er barinn athvarf fyrir fólk sem vill kynn- ast nýjum bjórtegundum og getur það valið úr 150 slíkum. Árni Ingólfur Halldórsson Hafstað, til vinstri, er eigandi brugghússins Gæðings og Micro Bars í Austurstræti. Með honum er Steinn Stefánsson sem sér um að boða út fagnaðarerindið á barnum þar sem hægt er að velja úr 150 tegundum af bjór. Hvað er vinsælast? „Á krana held ég að það sé Tumi humall. Við reynum að hafa hann alltaf á krana. Í hillunum er Mikkeller senni- lega vinsælastur. Við erum með um 30 tegundir af Mikk- eller núna. Svo erum við með átta tegundir af To Øl og nokkuð margar tegundir af Brewdog frá Skotlandi.“ Hvaða bjórar eru í upp- áhaldi hjá þér? „Ég drekk helst India Pale Ale bjóra. Gallinn við þá er að maður verður fullur af þeim. Maður verður að byrja seint og hætta snemma. Mér finnst India Pale Ale-arnir frá To Øl mjög óðir og sömuleið- is Green Gold frá Mikkeller. Svo er Rogue Yellow Snow IPA líka góður.“ Þetta hljómar eins og þú gætir hafa opnað bar til að sitja að sumbli sjálfur... „Ég sá alveg að ég gæti nýtt mér þetta. En svo eru til hér bjórar sem ég nánast fussa og sveia yfir. Bjórar sem eru svipaðir og vökvinn sem slátur liggur í.“ Árni segir að Micro Bar hafi gengið mjög vel fyrsta starfsárið. Hann er sífellt að leita leiða til að brydda upp á nýjungum og á næstu dögum verður farið að selja íslenskt viskí á barnum. Viskíið verður selt af eikar- tunnu. Þú hefur ekki hugsað þér að færa út kvíarnar og opna fleiri bari? „Það hefur aðeins verið að hrærast í kollinum á mér, jú. En ég veit ekki hvað verður. Ég er búinn að bjóða í ákveðna eign og ef ég fær hana þá held ég að ég verði að fylgja þessari hugmynd áfram. Ég get sagt þér að hún er ekki í Reykjavík. Og ekki á Manhattan en ein- hvern tímann var ég að spá í að opna bar þar.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Á Micro Bar eru jafnan átta bjórtegundir fáanlegar á krana en góðan tíma tekur að renna í gegnum listann yfir flöskubjóra sem í boði eru. Lj ós m yn d/ H ar i

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.