Fréttatíminn - 06.09.2013, Side 46
46 langur laugardagur Helgin 6.-8 september 2013
Hátíð Reykjavík Bacon Festival á skólavöRðustíg
Þú nnur okkur á Facebook
undir “Fatabúðin”
Skólavörðustíg 21a 101 Reykjavík S. 551 4050
Barnahandklæði og vöggusett
í miklu úrvali
Laugavegi 178 · Sími 551-3366 · www.misty.is
OPIÐ: Mán. - fös. 10 - 18,
Lokað á laugardögum
GLÆSILEGUR
teg SÚSANNA -
blúnduhaldari í
D,DD,E,F,FF,G skálar
á kr. 11.675,-
Laugavegi 8 S. 552 2412
FALLEGAR
GJAFAVÖRUR
v ið verðum með sirka tvö tonn eða rúmlega það. Ef þörf er á veit
ég að það hafa verið langar
vaktir hjá Ali svo hægt er að
bregðast hratt við,“ segir Árni
Georgsson, einn skipuleggj-
enda Reykjavík Bacon Festival
sem haldið verður á Skóla-
vörðustíg á laugardag. Árni
og félagar kalla sig Íslenska
beikonbræðralagið og hátíðin
ber yfirskriftina Matarhátíð
alþýðunnar. Hún stendur frá
klukkan 14-17.
Beikonhátíðin Reykjavík
Bacon Festival er nú haldin í
þriðja sinn. Hátíðin er syst-
urhátíð Blue Ribbon Bacon
Festival, stærstu beikonhátíðar
í heimi, sem haldin er í Des
Moines í Iowa. Á Skólavörðu-
stígnum verða básar frá átta
veitingastöðum sem bjóða upp
á beikon innblásna rétti. Ali
verður með þrjú tjöld þar sem
boðið verður upp á ókeypis
beikon, einnig tjald fyrir börn
þar sem boðið verður upp á eitt
tonn af beikonpylsum. Vífilfell
skaffar drykki og leiktæki
verða fyrir börnin.
Beikonhátíðin er ekki haldin
í gróðaskyni því allur ágóði af
henni rennur til tækjakaupa
á Hjartadeild Landspítalans.
„Við seljum réttinn á 250 kall
og allt sem við náum að safna
fer beint í tækjakaupin,“ segir
Árni. Tíu þúsund manns komu
á hátíðina í fyrra og segir Árni
að pláss sé fyrir enn fleiri í ár
enda sé svæðið nú stærra og
fleiri básar en í fyrra.
Fulltrúar frá Blue Ribbon
Bacon Festival eru komnir til
landsins rétt eins og í fyrra.
Fréttatíminn náði tali af einum
þeirra, Marshall Porter, sem
gat vart hamið tilhlökkun sína.
„Ég er mjög spenntur fyrir
hátíðinni. Það breytti lífi mínu
að sjá hvernig Íslendingar hafa
tekið beikoninu. Það minnir
mig á hlýlegt faðmlag frá móð-
ur minni,“ segir Porter.
„Íslendingar skilja þessa ást
sem fylgir beikoninu. Beikon
er hjartans mál og það er frá-
bært að geta safnað peningum
fyrir spítalann í leiðinni. Fyrir
nokkrum árum var fólk úti í
Evrópu að kvarta yfir öskuskýi
frá Íslandi. Nú um helgina fær
það ský af beikonlykt og ég
held ekki að nokkur maður
muni kvarta yfir því.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Matarhátíð
alþýðunnar
í þriðja sinn
Það er langur laugardagur í mið-
bænum. Reykjavík Bacon Festival
verður haldinn í þriðja sinn á
laugardag. Tvö tonn af beikoni
verða í boði fyrir áhugasama og
meira til ef þarf. Átta veitingastað-
ir selja mat með beikonívafi og
nóg verður í boði fyrir krakkana.
Um tvö tonn af beikoni verða í boði fyrir svanga Reykvíkinga og nærsveitarmenn á Skólavörðustígnum á laugardag. Reykjavík
Bacon Festival er nú haldin í þriðja sinn.
Fulltrúar
frá Blue
Ribbon
Bacon
Festival eru
komnir til
landsins
rétt eins og
í fyrra.