Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.09.2013, Blaðsíða 49

Fréttatíminn - 06.09.2013, Blaðsíða 49
Sölufólk óskast Skemmtileg aukavinna! Hringdu núna og fáðu upplýsingar í síma 691-0808 Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími 568 2870, friendtex.is og 568 2878, praxis.is Opið mán.-fös. kl. 11.00-17.00, lokað laugardaga Ný verslun l Næg Bílastæði l Engir stöðumælar Opnunartími: Virka daga kl. 11-18 Laugard. kl. 11-16 “Kryddaðu” fataskápinn með fatnaði frá Laugavegi 178 ( Bolholtsmegin ) l S. 555 1516 l Kíktu á síðuna okkar Full búð af buxum ! 2 litir: svart og munstrað/svart Stærð 34 - 48 Verð 15.900 kr. 2 litir: svart og hraunrautt Stærð 34 - 46 Verð 13.900 kr. Frábært úrval Haust 2013 Garðatorgi - Garðabæarðatorgi - arðab tíska 49Helgin 6.-8. september 2013  Tíska FrændsysTkini léTu drauminn ræTasT og opnuðu FylgihluTaverslun Ungir sérleyfishafar v ið erum örugglega með yngstu sérleyfishyöfunum á Íslandi. Þess vegna gerðum við okkur ekki miklar vonir um að fá þetta í upphafi,“ segir Þorsteinn Máni Bessason, 25 ára, sem var að opna fylgihlutaverslunina MOA í Smáralind ásamt frænku sinni Önnu Bryndísi Gunnlaugsdóttir sem einnig er 25 ára. Frændsystkinin eiga meira sameiginlegt því þau voru saman í rekstrarverkfræði í Háskól- anum í Reykjavík, unnu öll verkefni saman, útskrifuðust vorið 2011 en fóru hvort í sína áttina eftir útskrift þrátt fyrir að eiga bæði þann draum um að opna eigin verslun. Þorsteinn Máni var fjármálastjóri hjá Tiger og Anna Bryndís var að vinna hjá Avon en alltaf voru þau með augun opin fyrir nýjum tækifærum. Þegar þeim var bent á frönsku fylgihlutakeðjuna MOA ákváðu þau að hoppa út í djúpu laugina. „Við höfðum heyrt að þetta væri flott merki og byrjuðum að kynna okkur það í gegn um netið. Þetta eru flottar vörur á góðu verði og okkur fannst vanta merki sem er með vörur fyrir alla aldurshópa. Hingað koma stelpur allt niður í 10 ára og ein áttræð var að kaupa hjá mér í gær. Við erum með alla fylgihluti fyrir konur: slæður, skó, skart og töskur,“ segir Þorsteinn. Þau höfðu fyrst samband við forsvarsmenn MOA í janúar á þessu ári og fóru til Frakklands á fund með þeim. „Við kynntum fyrir þeim hvað við vildum gera og hvað íslenski markaðurinn hefði upp á að bjóða. Við skrifuðum síðan undir samninginn í lok mars og búðin opnaði núna 22. ágúst. Þetta var því næstum jafn langt og ein meðganga hjá okkur.“ Hann viðurkennir að það sé heldur dýrt að fá sérleyfissamning en telur þau hafa náð nokkuð góðum samningum. „Við vorum að opna fyrstu verslunina á Norðurlöndunum og þau hafa verið mjög hliðholl okkur. Í rauninni hafa þau hjálpað okkur að láta drauminn rætast.“ Þorsteinn Máni og Anna Bryndís afgreiða bæði í versluninni, stefn- an er að alltaf sé minnst annað þeirra í búðinni en þau eru einnig með fleira starfsfólk. „Við bjóðum komum á öllum aldri flotta fylgihluti á góðu verði. Það dýrasta í búðinni eru skór á 11.990 krónur. Hér er hægt að fá alla fylgihluti í einni ferð. Eitt sem hefur komið okkur á óvart er hversu vinsæl hárböndin eru. Þau eru eitt af því sem selst best hjá MOA úti en við höfðum ákveðnar efasemdir um þau. Síðan hefur komið í ljós að nánast önnur hver kona kaupir hárband sem er auðvitað bara flott.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Þremenningarnir Þorsteinn Máni Bessason og Anna Bryndís Gunnlaugsdóttir eru með yngstu sérleyfishöfum á Íslandi en þau opnuðu nýverið fylgihlutaverslunina MOA í Smáralind. Þau eru bæði 25 ára gömul, menntaðir rekstrarverkfræðingar og hættu í fyrri störfum til að opna eigin verslun. Frændsystkinin Þorsteinn Máni Bessason og Anna Bryndís Gunnlaugsdóttir voru að opna fylgihlutaverslunina MOA í Smáralind. Myndir/Hari Þrátt fyrir efasemdir eigenda um hárböndin í upphafi eru þau sú vara sem selst best.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.