Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.01.2012, Page 24

Fréttatíminn - 20.01.2012, Page 24
24 fréttir vikunnar Helgin 20.-22. janúar 2012 Einn lýtalæknir hefur skilað Einn lýtalæknir af tólf sem fengu bréf frá Landlækni hefur skilað upplýsingum um brjóstastækkunaraðgerðir. Læknarnir áttu að skila upplýsingunum fyrir lok siðustu viku. Staðgöngumæðrun samþykkt Tillaga Ragnheiðar Elínar Árnadóttur og 22 annarra þingmanna allra flokka nema Hreyfingarinnar um staðgöngumæðrun var samþykkt á Alþingi með 33 atkvæðum gegn 13, fjórir greiddu ekki atkvæði. Tveir í annan varaformann Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, hefur ákveðið að bjóða sig fram í embætti annars varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Áður hafði Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, lýst yfir framboði Tugmilljóna veðurskemmdir Tjón vegna frostskemmda og asahláku síðustu vikur nema tugum milljóna. Mis- jafnt er þó hversu mikið af tjóninu fellur undir bótarétt hjá tryggingafélögum. Engin riða Ekkert riðutilfelli kom upp hér á landi á síðasta ári. Er þetta í fyrsta sinn í 30 ár sem engin riða greinist í íslensku sauðfé. Slæm vika fyrir Ögmund Jónasson innanríkisráðherra Góð vika fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Framsóknarflokksins 35 ár eru þau sem varnartröllið í handboltanum, Didier Dinart, á að baki og hélt hann uppá afmæli sitt á hóteli franska landsliðsins í Serbíu. Ísland kom óvænt við sögu því Adolf Ingi Erlings- son íþróttafréttamaður gerði sér lítið fyrir og skoraði á Dinart á kappát og stal nánast senunni. 8 milljónir er upphæð sú sem Íslandsbanki hefur ákveðið að veita sem sérlegan nýsköpunarstyrk til sprota- fyrir- tækisins GÍRÓ og mennta- stofnana innan íslenska sjávar- klasans. Bankinn vill með þessum hætti undirstrika mikilvægi þess- ara sviða, það er orkuiðnað og sjávarútveg, sem benda á að hann líti sérstaklega til þessara sviða í starfsemi sinni. 500 eru þeir milljarðar dollara sem Alþjóða gjaldeyris- sjóðurinn telur sig þurfa til viðbótar svo hann megi virka sem lánveitandi til þrau- tavara vegna skulda- vandans á evr- usvæð- inu. Sögunni þeirri fylgir að á næstu árum kunni þörfin á viðbótarfjármagni að vera enn meiri eða allt að 1000 milljarðar. Óþægilegir fylgismenn Vikan reyndi á Ögmund Jónasson innanríkisráðherra, í ýmsum málum en einkum því er varðar afstöðu hans til tillögu Bjarna Benediktssonar um að fallið verði frá því að senda Geir Hilmar Haarde fyrir Landsdóm. Ögmundur er kominn á þá skoðun og hleypti það illu blóði í marga sam- flokksmenn hans, meira að segja gekk Þráinn Bertelsson svo langt að telja að Ögmundur eigi að segja af sér. Ýmsir gefa lítið fyrir röksemdafærslu Ögmundar, um að málið sé pólitískt, en einkum hlýtur það að vera sérkennilegt fyrir Ögmund að finna nú helst stuðningsmenn meðal þeirra sem tjá sig á amx.is – vef gallhörðustu hægrimanna landsins. 655 vikan í tölum Salt í sárin Gríðarleg reiði braust út í samfélaginu, réttlát reiði, þegar í ljós kom að þjóðin hefur óafvitandi gætt sér á ýmsum matvælum bragðbættum með iðnaðarsalti í rúman áratug. Eldar loga enn og reykinn leggur að sjálfsögðu yfir Fés- bókina. Lára Björg Björnsdóttir mig langar í iðnaðarsalt. Hipp- arnir ykkar. Jón Oddur Guðmundsson Var að fá fax frá Grínlögreglu ríkisins: Saltbrandarakvótinn hefur verið fylltur. Hafliði Helgason Eitthvað eru menn súrir yfir salti. Rósa Guðbjartsdóttir auglýsi eftir upplýstri umfjöllun og umræðu um salt! Egill Helgason Það er merkilegt að heyra frá framleiðendum matvæla sem segjast ekkert vita hvaða efni þeir nota í matinn. Frú Sigurveig notar ekki salt í hafrklattana né kökurnar sem hún framleiðir, en ögn af Maldon salti - sem er sjávarsalt - í soyabaunirnar sem selur líka. vigdís Hauks, ekki meir, ekki meir! Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, hefur náð ótrúlegri færni í að skjóta beint á ská og tókst enn að hitta viðkvæmar sálir i hjartastað með þeirri leikaðferð þegar hún lýsti því yfir að saltumræðan væri liður í samsæri gegn íslenskum matvælum. Sigurður G. Tómasson Það hlaut að vera! Kratarnir á bak við þetta. Heimurinn er eitt allsherjarkratasamsæri og þýðir ekki að berja höfðinu við sandinn í þeim efnum! Eiður Svanberg Guðnason Það er ekki að spyrja að okkur helv... krötunum. Eitthvað annað en Framsóknarenglarnir. Þessi þingmaur ætti að fara að ljúka máli sínu. Því virðast engin takmörk sett hve lágt hún leggst. Framsóknarflokknum er nú aldeilis borgið með svona konu í þingliðinu ! Lára Hanna Einarsdóttir Fór inn á Fb-vegg Vigdísar Hauksdóttur, sem er opinn, og mér varð illt í sálinni og líkamlega bumbult. Mér er fyrir- munað að skilja af hverju þessi kona var kosin á þing. verra er þeirra réttlæti Umræðan um landsdómsmál Geirs Haarde fór á tilfinningaþrungna fleygiferð enn á ný í vikunni og það er allt brjálað. Stefán Pálsson bíður eftir að heyra þá kenningu að Landsdómur sé á einhvern hátt tæki Evrópusambandsins. Þá verður dagurinn fullkomn- aður. Þráinn Bertelsson Því miður hefur hinn popúlíski dómsmálaráðherra ekki ennþá tjáð sig um hvaða miskabætur honum finnist að þjóðin eigi að greiða Geir H. Haarde fyrir ástæðulausa ákæru og óþægindi og kostnað sem hann hefur haft af málinu. Pálmi Gunnarsson Veit einhver hvort Ömmi og Guðfríður Lilija eru gengin í Sjálfstæðisflokkinn? Bergsteinn Sigurðsson Sumir eru á þeirri skoðun að það sé ígildi þess að afneita hruninu að fella niður kæruna á hendur Geir H. Haarde. Er það ekki fullmikið í lagt. Hvað ef Landsdómur kemst að þeirri niðurstöðu að Geir sé saklaus? Væri Landsdómur þá að afneita hruninu? HeituStu kolin á Listamaðurinn San- tiago Sierras hélt inn- reið sína í íslenskan veruleika í vikunni. Gjörningur hans NO, Global Tour, hefur vakið athygli fyrir framan Alþingi og á stöðum sem tengjast efnahagshruninu á einhvern hátt. Sýning listamannsins verður opnuð í kvöld, föstudag, í Hafnar- húsinu. Ljósmynd/Hari eru milljónirnar sem sex heppnir þátttakendur fá í sinn hlut en ofur- talan svokölluð kom upp sem varð til þess að potturinn varð feitari. Því miður reyndist enginn Íslendingur meðal þeirra heppnu – þangað leita peningarnir þar sem þeir eru fyrir, segir einhvers staðar, og voru það fimm Norðmenn auk eins Finna sem voru með tölurnar réttar. Eignaðist erfingja Þó svo að líklega hafi farið um Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknar- flokksins, við að heyra þær fréttir að íslenskir matvælaframleiðendur noti iðnaðarsalt ótæpilega, en Sigmundur Davíð hefur einmitt miðað neyslu sína við að borða bara íslenskt, var vikan honum sérlega góð. Sigmundur Davíð, og kona hans Anna Sigurlaug Páls- dóttir, eignuðust sitt fyrsta barn í vikunni, og er þeim hér með óskað til hamingju með það. Skoðið sýnishornin á www.laxdal.is Sparidress - Vetrardragtir - Peysur - Blússur - Bolir Laugavegi 63 • S: 551 4422 stórútsala vetraryfirhafnir í úrvali 40-50% afSláttur

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.