Fréttatíminn - 20.01.2012, Síða 25
Bráðfyndinn sjóntónleikur
Íslandssagan á hundavaði
í tali og tónum
Miðasala | 568 - 8000 | borgarleikhus.is
Saga þjóðar er samstarfsverkefni Hunds í óskilum,
Leikfélags Akureyrar og Borgarleikhússins
Fös. 27/1 kl. 20
Lau. 28/1 kl. 20
Fim. 2/2 kl. 20
Fös 3/2 kl. 20
Fim 9/2 kl. 20
Fös 10/2 kl. 20
Sýningadagar
Fært til bókar
Í góðsemi vegur þar hver annan
Það hefur verið fjör í bæjarstjórnarpólitík-
inni í Kópavogi undanfarna daga og meiri-
hlutinn féll eftir að brottrekstur Guðrúnar
Pálsdóttur bæjarstjóra var kunngerður.
En það var fjör á bæjarráðsfundi áður en
þessir stóratburðir urðu. Um það vitnar
fundargerð bæjarráðs frá liðinni viku.
Óskað hafði verið eftir umsögn um erindi
Catco Vatns ehf en bæjarráðið samþykkti
drög að samkomulagi um vatnslögn fyrir
átöppunarverksmiðju í Ögurhvarfi með
fjórum samhljóða atkvæðum en einn
bæjarfulltrúi sat hjá. Ómar Stefánsson,
bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, lagði
fram svohljóðandi bókun: „Ég tel að
bæjarráð hafi gert stór mistök með því að
leyfa þessa einkavatnsveitu í Kópavogi.“
Fulltrúar Samfylkingarinnar Sjálfstæðis-
flokksins og Næstbestaflokksins, það er
að segja fulltrúar meiri- og minnihluta,
lögðu í framhaldi þessa fram eftirfarandi
bókun: „Hér er ekki um að ræða vatns-
veitu heldur einungis átöppun. Vatnsveita
Kópavogs er með einkaleyfi fyrir rekstur
vatnsveitu og hefur samkomulagið engin
áhrif á það.“ Undir bókunina rituðu Guð-
ríður Arnardóttir, Ármann Kr. Ólafsson,
Hjálmar Hjálmarsson og Gunnar Ingi
Birgisson. Ómar svarað um hæl með nýrri
bókun: „Mistökin eru engu að síður aug-
ljós.“ Gunnar Ingi Birgisson lét þá bóka
um fyrrum samherja sinn í meirihluta
Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins, sem stýrði bænum samfleytt
í tuttugu ár, fram til ársins 2010: „Fram-
sóknarflokkurinn hefur alltaf verið á móti
framförum.“ Undir þessu gat Ómar ekki
setið og því lauk bókunarhrinu bæjar-
ráðsins undir þessum lið með bókun hans:
„Samanber óperuhús í Kópavogi.“ Þarna
gildir því hið fornkveðna:
Á Glæsivöllum aldrei með ítum er fátt.
Allt er kátt og dátt.
En bróðernið er flátt mjög og gamanið
er grátt.
Í góðsemi vegur þar hver annan.
Eldri rætur nýyrðis
Nýyrðið féflettir, sem kom til umræðu í
þessum dálki Fréttatímans nýverið, á sér
eldri rætur en þar kom fram. Þar sagði
frá því þegar Ragnar Önundarson, við-
skiptafræðingur og fyrrum bankamaður,
velti fyrir sér örlögum Húsasmiðjunnar
í Morgunblaðsgrein síðsumars í fyrra.
Hann taldi fyrirtækið hafa orðið fyrir
barðinu á svokölluðu sjálftökuliði. Kaup-
endur þess hefðu ekki verið raunveru-
legir fjárfestar heldur „féflettar“. Vegna
þessa var Ragnari stefnt fyrir meiðyrði.
Ábending hefur hins vegar borist um það
að orðið féflettir í þessari merkingu hafi
komið fram í Pétrísk íslenskri orðabók,
30. útgáfu frá nóvember 2009. Pétrísk ís-
lensk orðabók er merkilegt fyrirbrigði en
höfundar hennar er geistlegi spaugfugl-
inn Pétur Þorsteinsson, prestur Óháða
safnaðarins í Reykjavík. Fleiri orð sem
tengjast hruninu finnast í pétrísku hans,
til dæmis Kriminal Bankinn, sem stendur
fyrir K. B. banki. „Gordon frá Brún, hinn
breski, setti þess vegna hryðjuverkalögin
á Íslendinga vegna þess að hann kann
dulítið í ensku eflaust, og nafnið gaf sterk-
lega til kynna, hvers konar menn stjór-
nuðu bankanum,“ segir í þeirri ábendingu
sem blaðinu barst.
Vikan sem Var
Þú þarft þá að fara að bretta upp
ermar!
„...það er óþolandi þegar
hlutirnir eru ekki í lagi.“
Steingrímur
J. Sigfússon,
atvinnuvegaráðherra,
er óhress með stóra
saltmálið og veit hvar
ábyrgðin liggur.
Já, en var ekki McCarthy í
Sjálfstæðisflokknum?
„Þetta minnir mig á ógeðfelldari hluti
frá fyrri tíð í öðrum löndum.“
Geir H. Haarde ræddi pólitískar
ofsóknir á hendur sér við
Washington Post og útskýrði
Landsdómsmálið fyrir hinum
enskumælandi heimi.
Bingi kysstur bless
„Að baki þessari ákvörðun er
enginn ágreiningur eða átök, engin
pólitík og engin dramatík.“
Karl Th. Birgisson er hættur að ritstýra
Eyjunni sem er hluti af vefmiðlaveldi
Björns Inga Hrafnssonar. Heldur hefur
kvarnast úr hópnum í kringum Binga
undanfarið en þessir tveir skilja þó sáttir.
Enda toppvara
„En allar þessar konur fengu kvittun og
ég veitti aldrei neinn afslátt.“
Jens Kjartansson, lýtalæknir, varði
stöðu sína í hinu dapurlega PIP-
brjóstapúðamáli í Kastljósi.
Mætti vera oftar
„Það er ekki oft sem ég verð
orðlaus.“
Birgitta Jónsdóttir þingkona
Hreyfingarinnar varð
kjaftstopp þegar Ögmundur
Jónasson lýsti vilja sínum til
þess að skera Geir H. Haarde
er úr landsdómssnörunni.
við erum 25 Helgin 20.-22. janúar 2012