Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.01.2012, Síða 35

Fréttatíminn - 20.01.2012, Síða 35
Helgin 20.-22. janúar 2012 fjármál 35 Haltu áfram Vaxtasproti Óverðtryggður innlánsreikningur islandsbanki@islandsbanki.is www.islandsbanki.is Sími 440 4900 Sparileið Verðtryggður innlánsreikningur Eignasafn Sjóður sem fjárfestir í skuldabréfum, hluta- bréfum og innlánum Eignasafn – Ríki og sjóðir Sjóður sem fjárfestir í skuldabréfum og innlánum Fjárfestingu í sjóðum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta. Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð. Hafa ber í huga að eign í verðbréfasjóði eða fjárfestingarsjóði getur bæði hækkað eða lækkað, allt eftir þróun á markaðsverði þeirra. Eignasafn og Eignasafn – Ríki og sjóðir eru verðbréfasjóðir skv. lögum nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Íslandssjóðir hf. er rekstrarfélag Eignasafns og Eignasafns – Ríki og sjóðir. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu Íslandssjóða hf., www.islandssjodir.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðanna og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti, fjárfestingarstefnu og vikmörk. Lífeyrissparnaður getur verið verðmætasta eign einstaklinga við starfslok. Breytingar á séreignarsparnaði um síðustu áramót hafa þær afleiðingar að þú þarft að grípa til aðgerða til að ná settum markmiðum í sparnaði. Íslandsbanki og VÍB, eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, bjóða upp á marga góða kosti í reglubundnum sparnaði. Hringdu strax í lífeyrisráðgjafa okkar í síma 440 4900 eða fáðu nánari upplýsingar á www.islandsbanki.is/einstaklingar/sparnadur KYNNING L ífeyrissparnaður er ennþá einn besti kosturinn sem menn geta valið í sparnaði. Það er þrátt fyrir þær breytingar sem tóku gildi nú um ára- mótin. Einn helsti kosturinn er auðvitað mótframlag vinnuveitanda sem er bundið í flestum kjarasamningum og það mun ekki breytast við þessar aðgerðir ríkis- stjórnarinnar. Ennþá verður boðið upp á ákveðin skattafríðindi, til dæmis er ekki borgaður fjármagnstekjuskattur af ávöxt- uninni og núna í dag er þessi skattur 20 prósent. Í ljósi þess að séreignarsparnað- ur er yfirleitt til fjölda ára er ávöxtun alla jafna stór hluti af lokaúttektinni og getur það skipt talsverðu máli hvort borgaður er fjármagnstekjuskattur eða ekki. Ann- að sem er kannski farið að skipta meira máli núna en áður er að þessi sparnaður er lögvarinn. Það þýðir að lánadrottnar geta ekki gengið að þessum sparnaði við gjaldþrot. Að teknu tilliti til þessara kosta þá teljum við það ekki vera nokkur spurning að allir launamenn sem á annað borð geta lagt eitt- hvað fyrir eiga að hefja viðbótarlífeyris- sparnað og halda ótrauðir áfram þrátt fyrir þessar breytingar af hálfu ríkisstjórnar- innar. Hver er þá besti kosturinn? Lífeyrisþjónusta Íslandsbanka býður fjölmargar fjárfestingarleiðir þar sem við- skiptavinurinn getur valið úr verðtryggðum bankareikningi upp í fjárfestingarleið með ríkisskuldabréfum og hlutabréfum. Mikil- vægt er að viðskiptavinir komi til okkar og fari í einstaklingsbundið mat á viðhorfi til áhættu til þess að finna út hvað það er sem hentar hverjum og einum. Sumar fjárfest- ingarleiðir geta sveiflast mikið í ávöxtun og aðrar eins og Lífeyrisbókin sveiflast mjög lítið nema í takt við verðbólgu. Einnig er hægt að blanda fjárfestingarleiðum saman og setja þann hluta inn á Lífeyrisbók, sem maður vill ekki að sveiflist og sett svo ein- hvern hluta í fjárfestingarleiðir sem sveiflast meira. Hvað á að gera þar sem skattafrá- drátturinn var lækkaður úr 4 í 2 prósent? Eins og áður sagði er mikilvægt að halda áfram að spara þrátt fyrir þessar breytingar. Samkvæmt lögunum eru það launagreið- endur sem bera ábyrgð á því að lækka greiðslurnar einhliða og hækka þær svo aftur í byrjun árs 2015 þegar lögunum verður aflétt. Varðandi sparnaðinn er mikil- vægt að hafa í huga að þó lækkunin nemi einungis 2 prósent þá þarf að leggja til hliðar hærra hlutfall af launum til þess að ná sama árangri í lok sparnaðartíma. Það er vegna mismunandi skattareglna á sparnaðarform- unum. Sem dæmi þá lækkar mánaðarlegur sparnaður 20 ára einstaklings sem er með 300.000 kr. í laun fyrir tekjuskatt um 6.000 kr. mánaðarlega við þessar breytingar. Til þess að ná sama árangri við 67 ára aldur þá þarf að leggja 7.300 krónur fyrir tekjuskatt, sem er um 4.400 kr. eftir skatt, til hliðar. Við ráðleggjum fólki því að leggja að lágmarki sambærilega fjárhæð inn í vel dreifðan sparnað ef það vill ná sama árangri og fyrir þessar breytingar. Hvers vegna ætti maður að leggja í viðbótarlífeyrissparnað? Annað sem er kannski farið að skipta meira máli núna en áður er að þessi sparnaður er lögvarinn. Það þýðir að lánadrottnar geta ekki gengið að þessum sparnaði við gjaldþrot. Lárus Páll Pálsson.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.