Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.01.2012, Side 48

Fréttatíminn - 20.01.2012, Side 48
Helgin 20.-22. janúar 201248 tíska Að læra að sauma Ég hef alltaf viljað kunna að sauma: Framleiða mín eigin föt og klæðast einstökum flíkum sem engin annar á – getað frjáls sankað að mér inn- blæstri og framkvæmt allar þær hugmyndir sem ég fæ. Þetta hefur verið mitt helsta markmið síðustu ár. Seint á nýliðnu ári eignaðist ég svo loksins mína fyrstu saumavél. Ömmur mínar tvær gerðu þennan saumadraum minn að veruleika þegar þær gáfu mér saumavélina í afmælisgjöf. Ég hef þó ekki verið nógu dugleg að taka hana fram og er ég enn að reyna að læra á þessa flóknu vél sem er með of mörgum tökkum og aðgerðum fyrir byrjendur eins og mig. Ég hef þó verið dugleg að heimsækja bókasafnið upp á síðkastið þar sem ég kem mér oftast vel fyrir í sófanum. Þar sit ég tímunum saman í handavinnuhorninu og les saumabækur fyrir komandi átök við saumavélina. Saumabækurnar eru gagnlegar vel og með mörgum þeirra fylgja einföld snið, hentug fyrir byrj- endur eins og mig. Nýjustu tískublöðin hef ég innan seilingar þar sem hugmyndir streyma af hverri blaðsíðunni. En ég get kannski ekki farið að vinda mér strax í að sauma þessi flóknu snið sem ég ræð engan veginn við. Ætli ég þurfi ekki að vera þolinmóð og byrja á að sauma einfalda þvottapoka til að venjast nýju vélinni. Sá tími mun koma þegar ég verð farin að framleiða flíkur mínar í stórum stíl og klæðist þá engu nema minni eigin hönnun. tíska Kolbrún Pálsdóttir skrifar 5 dagar dress Söngkonan Katy Perry, sem stendur nú í skilnaði við leikarann Russel Brand, hefur nóg á sinni könnu þessa daganna. Nú vinnur hún hörðum höndum að nýrri gerviaugnaháralínu í samstarfi við fyrir- tækið Eylure en Perry hefur verið tals- maður fyrirtækisins síðustu mánuði. Katy er óaðfinnanleg þegar kemur að förðun og gera gerviaugnhárin gæfumunin að mati þeirra hjá fyrirtækinu Eylure. Línan, sem nú er í framleiðslu, mun saman- standa af fjórum ólíkum augnhárum sem öll eru sérvalin af Katy, í allskonar litum og gerðum. Í byrjun febrúar mun þessi augnháralína svo verða sett á sölu í Bandaríkjunum en kemur seinna á árinu á markaði í Evrópu. Katy Perry hannar augnhár Söngkonan Lady GaGa viðurkenndi fyrr í vikunni að hún væri ekkert öðruvísi en venjulegt fólk að því leytinu til að hún kaupir mikið af fölsuðum tískuvörum og/eða eftir- líkingum. Í byrjun árs var söngkonan stödd í Tokyo þar sem hún missti sig í kaupum á fölsuðum Chanel-töskum, Versace-jökkum og Gucci-veskjum. „Þetta eru vandaðar tískuvörur sem enginn getur séð að eru eftirlíkingar. Þó að ég eigi nóg að peningum til þess að fjárfesta í alvöru merkjum, finnst mér þetta gáfulegri eyðsla á peningum mínum,” sagði söngkonan í viðtali við Vogue. Kaupir falsaðar snyrtivörur Föstudagur Skór: skór.is Leggings: Topshop Kjóll: Júník Peysa: H&M Þriðjudagur Skór: Samedelma Sokkabuxur: Topshop Stuttbuxur: Zara Bolur: H&M Vesti: H&M Þægindin í fyrirrúmi Fimmtudagur: Skór: Skór.is Buxur: Diesel Skyrta: Vero Moda Vesti: H&M Miðvikudagur Skór: Samedelma Buxur: Vero Moda Bolur: Topshop Eyrnalokkar: Topshop Hildur Erna Sigur- jónsdóttir er 19 ára nemi í Fjölbrautskól- anum í Breiðholti og vinnur samhliða námi í Hörpunni. „Ég elska stóra hluti; stórt skart og stór Mánudagur: Skór: Vila Buxur: Cheap Monday Peysa: Spúútnik Skyrta: H&M föt. Yfirleitt geng ég í víðum fötum að ofan og þröngum að neðan. Sækist ég mikið í þæg- indin. Upp á síðkastið hef ég verslað mest í H&M en yfirleitt kaupi ég fötin mín út um allt. Alexander Wang er uppáhalds hönnuðurinn minn enda vinnur hann vinnuna sína vel og gerir rosalega flott og þægileg föt. Fyrirmynd mín í tísku er Mary Kate Olsen. Ég ólst á þessu tímabili þegar þær systur voru algjörar barnastjörnur og hef alltaf litið upp til hennar. Fötin eru töff, einstök og hún gengur alltaf skrefinu lengra.“ Fatahönn- unarkeppni H&M Í fyrsta sinn í ár mun fatakeðjan H&M halda sérstaka fatahönnunarkeppni í leit sinni að næsta hæfileikamanni og stjörnu á því sviði. Fjórtan tískuháskólar í Evrópu munu senda einn fulltrúa til keppni og verður þetta hörð barátta ef af líkum lætur. Sigurvegarinn mun verða kynntur á glæsilegu lokakvöldi sem haldið verður þann 1. febrúar og fær sá í verðlaun háa peningaupphæð ásamt því sem hönnunin verður auglýst hressilega og seld í verslunum H&M um heim allan. Er því til mikils að vinna. Ferlið allt mun vera tekið upp á myndband sem verður svo sýnt á tískuviku í Svíþjóð seinna í vor. Til stendur að efna árlega til keppni af þessu tagi en samkvæmt talsmanni fyrirtækisins er gert ráð fyrir því að hún marki nýtt upphaf hjá H&M.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.