Fréttatíminn - 09.03.2012, Side 12
Voltaren Dolo
15%
afsláttur
Lyfjaval.is • sími 577 1160
Bílaapótek Hæðasmára
Mjódd Álftamýri
Voltaren Gel
Aumir og
sárir vöðvar?
15%
afsláttur
Öflugir High Tech
rafgeymar fyrir jeppa.
Er bíllinn tilbúinn fyrir ferðalagið?
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Plastkassar!
- sendu bóndann í tiltektina
Gerð 8858 með hjólum 35 lítra
80x39,5x16cm 1.599,- MARC-LEO1 Leo hillueining. 75x30x135cm. 4 hillur
5.290,-
MARC-LEO5 Leo hillueining.
100x30x185cm. 5 hillur
6.990,-
Gerð 003 með hjólum
28 lítra 49x36x28cm 999,-
Gerð B002 með hjólum 46 lítra 55,5x40,5x33cm 1.699,-
Gerð B003 með hjólum 28 lítra 49x36x28cm 1.299,-
Kletthálsi Reykjav.
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
N ýtt aðalskipulag fyrir Reykjavík verður kynnt fyrir borgarbúum í næstu viku, en gildistími þess
verður til ársins 2030. Töluverð tíðindi
eru fólgin í nýja aðalskipulaginu því þar
er horfið frá hugmyndum um byggingu
nýrra úthverfa sem er mikil stefnu-
breyting frá aðalskipulagi Reykjavíkur
síðustu áratugi. Í staðinn er lögð áhersla
á þéttingu byggðar og er gert ráð fyrir að
hægt að sé að fjölga íbúðum að meðaltali
um tíu til tólf prósent innan eldri hverfa
borgarinnar.
Páll Hjaltason arkitekt og formaður
Skipulagsráðs Reykjavíkur bendir á
að þéttari borg bjóði upp á marga kosti
þegar litið er til framtíðar. „Með því að
skapa heildstæðari og þéttofnari borgar-
mynd nýtum við sameiginlegar fjárfest-
ingar í innviðum svo sem lögnum, götum,
skólum, sundlaugum og fleira betur. Þétt-
byggðari borg dregur úr vegalengdum,
minnkar samgöngukostnað og í kjölfarið
mengun. Í skipulaginu er því lögð megin-
áhersla á uppbyggingu miðlægra svæða
innan núverandi byggðar,“ segir Páll.
Auka nálægð heimilis og vinnu
Aðalskipulagið hverju sinni er lykilplagg
við mótun borgarinnar. Þar er að finna
yfirsýn yfir landnotkun og þar eru lagðar
stóru línurnar í borgarmyndinni og
stefnu borgarinnar í mörgum málaflokk-
um, til dæmis um borgarvernd, loftgæði
og samgöngur.
Páll segir að markmið nýja skipulags-
ins sé að skapa þétta borgarbyggð þar
sem atvinnustarfsemi og íbúabyggð
fléttist saman og stuðli þannig að meiri
nálægð heimila og vinnustaða.
„Lögð er áhersla á fjölgun íbúða þar
sem mikið er um störf og reynt er að
fjölga fermetrum fyrir atvinnu í íbúða-
hverfum á móti. Jafnari dreifing starfa
og íbúa dregur úr vegalengdum og jafnar
líka umferð á stofnbrautum,“ segir Páll
og bendir um leið á að ekki sé hægt að
horfa á byggðaþróun án þess að tengja
við samgöngur.
„Efling almennissamgangna, göngu og
hjólreiðar eiga að fá stærri sess í borginni
ásamt því að setja á fram stefnu um bíla-
stæði. Uppbygging miðsvæðis er meðal
annars heppileg vegna þess að auðvelt
er að þjóna henni með almenningssam-
göngum sem er algjört lykilatriði.“
Til lengri tíma er gert ráð fyrir að
Reykjavik haldi áfram að vaxa og dafna á
svipuðum hraða og undanfarin 20 ár. Ís-
lendingum er enn að fjölga og í Reykjavík
SkipulagSmál mikil tíðiNdi í Nýju aðalSkipulagi höfuðborgariNNar
Hætta að byggja úthverfi
Kynning á endurskoðuðu aðalskipulagi Reykjavíkur hefst í næstu viku með fundarröð í hverfum
borgarinnar. Aðalskipulagið gildir til 2030 og þar birtist framtíðarsýn um áætlaða borgarþróun
en gert er ráð fyrir Reykvíkingum fjölgi um 25 þúsund fram til 2030.
165 fermetrar
af malbiki
á hvern
borgarbúa
Páll bendir á að eitt af
því sem gerir Reykjavík
góða borg fyrir íbúana sé
nálægðin við náttúruna
og því er mikilvægt að
tengja íbúðabyggðina
vel við hin fjölbreyttu
útivistarsvæði.
„Markmiðið er að allir
hafi óskert aðgengi að
náttúrunni. Reykjavík
á að vera græn borg í
breiðasta skilningi þess
orðs. Nú fer allt of mikið
land undir umferðar-
mannvirki, bílastæði og
hafnarsvæði, 38 prósent
borgarinnar eru malbikuð
sem er um 165 fermetrar
á hvern borgarbúa.
Tryggja þarf að ákveðið
hlutfall gróðursvæða
verði innan hvers
götureits og á hverju
þéttingarsvæði.
Páll Hjaltason arkitekt og formaður Skipulagsráðs: „Lögð er áhersla á fjölgun íbúða þar sem mikið er um störf og reynt er að
fjölga fermetrum fyrir atvinnu í íbúðahverfum á móti.“ Ljósmynd/Hari
er áætlað að fjölgun íbúa til 2030 verði um
25 þúsund. Að sögn Páls kallar sú aukn-
ing á um 14.500 nýjar íbúðir, sem aftur
þýðir þörf á 15 þúsund nýjum störfum í
borginni.
Þverpólitísk vinna að baki
Aðspurður hvort fulltrúar flokka borgar-
innar séu að baki nýja aðalskipulaginu eða
hvort átöku séu framundan um það segir
Páll að skipulagsvinnan hafi verið byrjuð
fyrir síðustu kosningar og hafi verið unn-
in í átta manna pólitískum stýrihópi.
„Í hópnum er fólk úr öllum borgar-
stjórnarflokkunum, sumir búnir að vera
frá tíð síðasta meirihluta. Ég held að það
sé óhætt að segja að full sátt ríki um allar
megináherslur skipulagsins þó að skiptar
skoðanir geti verið um einstakar útfærslur
eða áherslusvæði.“
Páll bendir líka á að þetta skipulag hafi
verið unnið í miklu samráði við borgar-
búa.
„Í upphafi skipulagsvinnunnar veturinn
2009 voru haldnir samráðsfundir með
íbúum á hverfafundum um alla borg. Það
samtal var mikilvægt innlegg í þróun
skipulagsvinnunar. Auk þess voru margir
vinnufundir um mismunandi efnisþætti
með ýmsum fagstéttum á Kjarvalsstöðum
og regluleg voru haldin málþing í Lista-
safni Reykjavíkur. Vefurinn adalskipulag.
is var opnaður og eins má finna Facebook-
síðu um verkefnið.
Framundan er að kynna drög að vinnu-
tillögu áður en hafist verður handa við
frágang lokatillögunnar. Fyrirhuguð er
fundaröð í öllum hverfum borgarinnar
sem hefst í næstu viku. Páll segir að
þar verði meginmarkmið aðalskipulags-
ins kynnt og síðan verður farið nánar í
áherslur er varða viðkomandi hverfi.
„Fundirnir verða haldnir undir slag-
orðinu Borg fyrir fólk og verða í hinum
ýmsu byggingum borgarinnar; skólum og
menningarhúsum. Ég vil hvetja alla sem
hafa áhuga og eru forvitnir um framtíðar-
sýn fyrir Reykjavík að mæta og kynna sér
málið. Skipulagsvinnan er langt komin en
enn er tækifæri til að hafa áhrif á lokaút-
færslu eða benda á það sem mætti betur
fara. Þetta verða fjölskylduvænir fundir
milli 17 og 18.30 og verða vel auglýstir í
fjölmiðlum. Einnig verður hægt að skoða
þetta nánar á www.reykjavík.is.“
Páll bendir á að mikilvægt sé að sem
flestir mæti því að með þátttöku á fundun-
um felist tækifæri til að taka þátt í að móta
umhverfið og hafa áhrif á ákvarðanatöku
sem varðar lífsgæði borgarbúa. -jk
12 fréttir Helgin 9.-11. mars 2012