Fréttatíminn - 09.03.2012, Qupperneq 16
Þ
að er vissulega von okk-
ar að íslenskum emb-
ættis- og ráðamönnum
takist betur upp í fyrir-
huguðum samningum
við erlend fyrirtæki um förgun eða
brennslu á bandarískum úrgangi í
Helguvík en að upp komi dæmi í
líkingu við það hlutskipti sem við,
nokkrir einstaklingar, höfum í nær
fjóra áratugi mátt sitja uppi með;
við höfum með fullkomlega óá-
sættanlegum opinberum þvingun-
araðgerðum íslenskra stjórnvalda
og embættismanna verið neyddir
til áframhaldandi geymslu á 10-
20 þúsund tonna stjórnlauss eitur-
efnasafns fyrir ofan vatnsból okkar
í landi Eiðis undir Heiðarfjalli fyrir
ekki neitt.“
Svo segir Sigurður R. Þórðarson,
einn eiganda jarðarinnar Eiðis
á Langanesi, sem í áratugi hafa
barist fyrir hreinsun úrgangs í
haugum efst á Heiðarfjalli þar sem
bandaríski herinn rak ratsjárstöð
á árabilinu 1954 til 1970, auk bóta
vegna skaða á vatnsbólum sem
hann segir að hafi gert að engu
framhald rekstrar seiðaeldisstöðv-
ar þar.
Málið þvældist í kerfinu áratugum
saman, milli embættismanna og
ráðuneyta, en án nokkurrar niður-
stöðu. Eigendur jarðarinnar hafa
þó ekki gefist upp í baráttu sinni
og leituðu á dögunum til Árna Þórs
Sigurðssonar, formanns utanríkis-
málanefndar, um það hvort hann
sæi sér fært að taka málið upp við
nefndina eða með öðrum hætti að
leggja þeim lið.
Sorphaugar hersins efst í
fjallinu
Sigurður og félagar hans keyptu
jörðina Eiði á Langanesi árið 1974.
Þar byggðu þeir seiðaeldisstöð og
stunduðu seiðaeldi um nokkurra
ára skeið og settu um 500 þúsund
seiði árlega í Eiðisvatn. „Við sáum
síðar fram á að mjög áhættusamt
væri að halda eldinu áfram því það
kom smám saman í ljós hvernig
ástandið var,“ segir Sigurður og
vísar þar til mengunar af völdum
sorphauga hersins efst á Heiðar-
fjalli.
„Við skrifuðum fyrsta bréfið árið
1976 og kvörtuðum fyrst og fremst
yfir því sem sást á yfirborði en það
var ekki fyrr en árið 1987 sem
embættismenn fóru norður. Þá
kom fram í viðtölum við menn sem
höfðu unnið á svæðinu að þetta
var mun víðtækara en okkur hafði
grunað. Þarna hafði verið grafinn í
jörð á fjallinu allur úrgangur sem
féll til þau 16 ár sem ratsjárstöðin
var rekin og það var ekkert smá-
ræði. Sem dæmi má nefna að kvik-
myndað var frá ratsjárstöðinni,
miðað við tækni þess tíma, allan
sólarhringinn. Þessar filmur voru
allar framkallaðar þarna. Það var
gífurlegt magn efnum sem þurfti
í framköllunina og það fór beint í
fjallið.
Auk þess voru á fjallinu átta raf-
stöðvar sem keyrðar voru til
skiptis og til viðbótar við þær var
gríðarlegt magn blýrafgeyma því
stöðvarnar máttu aldrei stöðvast.
Ef einhver af þessum átta rafstöðv-
um bilaði var hægt að setja varaafl
inn með rafgeymum. Samkvæmt
reglum hersins þurfti að skipta
geymunum út tvisvar til þrisvar á
ári. Samanlagt fóru einhver hundr-
uð ef ekki þúsundir tonna af blýraf-
geymum í jörðina þarna.
Ókjör eiturefna urðuð í fjallinu
Í þessa hauga fór allt sem til féll
og þar var líka grafið mikið af mat-
vælum. Samkvæmt reglum hersins
þurfti að skipta út og fleygja öllu
úr frysti- og kæligeymslum hers-
ins á einhverra mánaða fresti. Það
var allt urðað þarna og það sem
verra var, það var verið að reyna að
brenna þetta. Til þess var notuð úr-
gangsolía. Svona brunagryfjur, þar
sem verið er að brenna úrgangsefni
Pantaðu
í síma
565 600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
VEISLUBAKKAR
FERSKT & ÞÆGILEGT
Hundruð eða þúsundir tonna blýrafgeyma, PCB-olíufylltra raf-
spenna og gríðarlegt magn framköllunarvökva er meðal þess
sem urðað var á Heiðarfjalli þar sem bandaríski herinn rak
ratsjárstöð um sextán ára skeið. Eigendur hafa á fjórða áratug
beðið um hreinsun og bætur en án árangurs. Nýverið leituðu
þeir til formanns utanríkismálanefndar um liðsinni.
Sorphaugar EigEndur jarðarinnar EiðiS á LanganESi
Sitja uppi bótalausir með
þúsundir tonna eiturefna
Tærðar sellur rafgeyma. Eigendur Eiðis telja að hundruð ef ekki þúsundir tonna blýrafgeyma séu urðuð í fjallinu, ofan vatnsbóla.
Olíutunnur og rusl sem eftir varð þegar herinn hvarf frá Heiðarfjalli.
Við höfum bara verið
þvingaðir til að geyma
þetta.
16 fréttaskýring Helgin 9.-11. mars 2012