Fréttatíminn - 09.03.2012, Side 25
Horfðu á björtu hliðarnar
H
in lengsta
ferð byrjar
m
eð einu
skre
Horfðu á björtu hliðarnar
U
pp
s
ka
l
á
kj
öl
k
líf
aReistu í verki viljans merki,
- vilji er allt sem þarf
Iðnþing Samtaka iðnaðarins verður haldið í Íþrótta- og
sýningarhöllinni Laugardal fimmtudaginn 15. mars.
Á þinginu verður fjallað um efnahagsumhverfið,
gjaldmiðlavandann og tækifæri í iðnaði til framtíðar.
Dagskrá hefst kl. 13.00 og lýkur kl. 16.00.
Orri Hauksson
Framkvæmdastjóri SI
stýrir pallborði
Fundarstjóri:
Guðrún Hafsteinsdóttir
Markaðsstjóri Kjöríss
Samtök ið aðarins
Helgi Magnússon
Ávarp formanns SI
Oddný G. Harðardóttir
Ávarp iðnaðarráðherra
Jón Daníelsson
Prófessor við London School
of Economics
Rannveig Rist
Forstjóri Alcan á Íslandi
Sigsteinn P. Grétarsson
Aðstoðarforstjóri Marels
Skráning á www.si.is
Þingið er opið og aðgangur ókeypis.
Vandamál eru til þess að leysa þau
Við stöndum þétt saman, og snúum bökunum saman
maður og Valdimar Halldórsson
viðskiptafræðingur sem er tiltölu-
lega nýtilkominn í herbúðunum
en Steingrímur réði hann sem
aðstoðarmann sinn í byrjun árs.
Valdimar hefur mikla reynslu úr
bankakerfinu og er stóri bróðir hins
öfluga viðskiptablaðamanns Magn-
úsar Halldórssonar. Þessir þrír eru
sagðir sitja oft og löngum fundi með
ráðherranum.
„Huginn Freyr er formlegur ráð-
gjafi Steingríms. Þeir vinna náið
saman og Steingrímur treystir
dómgreind hans algerlega. Hann er
ódeigur í baráttu og hvetur Stein-
grím örugglega oft áfram í erfiðum
málum,“ segir einn heimildarmanna
Fréttatímans.
Svavar Gestsson, fyrrverandi
ráðherra og sendiherra, er einnig
nefndur til sögunnar sem ráðgjafi
Steingríms. Ekki síst fyrir myndun
ríkisstjórnarinnar og framan af
stjórnarsamstarfinu. „Hann er
reynslubolti. Maður sem liggur í
símanum og er liðsforingi í slags-
málum Steingríms við Ögmund Jón-
asson sem eru persónuleg en ekki
pólitísk og tilfinningarnar svo heitar
að það er vandséð að þessir tveir
geti farið saman í framboð aftur.“
Indriði Þorláksson er enn talinn
gefa Steingrími ráð við ýmis
tæknileg úrlausnarefni, ekki síst í
tengslum við skatta og fjárlagagerð.
„Steingrímur ber fullkomið traust til
Indriða og ver hann eins og sást til
dæmis glöggt í Icesave-málinu.“
Kjarninn í kringum Steingrím er
þó stærri en þetta og einn tíðinda-
manna Fréttatímans nefnir tvo
þingmenn sérstaklega: „Árni Þór
Sigurðsson og Katrín Jakobsdóttir
eru þau sem hann verður að hafa
góð í þingliðinu. Hann er greinilega
búinn að velja Katrínu sem arftaka
sinn og það hefur myndað spennu
við Svavar þar sem ljóst er að Stein-
grímur ætlar Svandísi dóttur hans
ekki að komast langt.“
Jóhanna Sigurðardóttir, for-
maður Samfylkingarinnar
Hrannar B. Arnarsson, aðstoðar-
maður Jóhönnu Sigurðardóttur,
Björn Valur Gíslason,þingflokksfor-
maður, er nánasti ráðgjafi Steingríms
í þingflokki VG.
Svavar Gestsson hefur reynst Stein-
grími haukur í horni og er liðsforingi
í stríðinu við Ögmund Jónasson. Þó
er talið að nokkuð hafi kólnað á milli
þeirra félaga.
hefur verið hennar helsti og nánasti
ráðgjafi en þó telja viðmælendur
Fréttatímans sig geta greint þverr-
andi áhrif hans. „Hrannar er
veðurvitinn hennar sem vaktar
fjölmiðlanna og umræðuna en það
er eins og áhrif hans séu minni en
áður.“ Annar viðmælandi bendir á
að hringur Jóhönnu hafi alltaf verið
þröngur og þar sé fólk ýmist inni
eða úti í kuldanum. „Gamlir ráð-
gjafar eins og til dæmis Óskar Guð-
mundsson og Einar Karl Haralds-
son og fleiri virðast vera komnir
út í kuldann. Hún treystir fáum og
gengur illa að koma því á framfæri
að ríkisstjórnin hefur gert margt
gott. Jóhanna getur bara varla talað
við neinn nema þá sem eru sammála
henni. Ef hún væri viss um að allir
fjölmiðlar og allt fólkið heima í stofu
væri á sama máli og hún þá væri
þetta ekkert mál. Hún vantreystir
bara öllum.“
Fleiri taka í sama streng: „Hún
hefur misst öll tengsl við gamla
Þjóðvakaliðið. Meira að segja Óskar
Guðmundsson. Það er fýla í þessu
gamla gengi yfir því að aldrei sé
leitað til þeirra og þetta fólk telur
skýringuna á vandræðum Jóhönnu
liggja í þessari einangrun.“
Annar segir Jóhönnu hafa leitað
mikið til Össurar, sérstaklega í
innanflokksmálum, en nú sé vík
milli vina. „Hún hefur leitað ráða
hjá honum. Sérstaklega þegar þarf
að slökkva elda innan Samfylking-
arinnar. Það er sagt að þegar þau
standi saman ráði þau öllu sem þau
vilja ráða í flokknum. En nú er kalt
á milli eftir orð Össurar í Viðskipta-
blaðinu um að Samfylkingin þurfi
nýja forystu fyrir næstu kosninga.
Það hefur komið skýrt fram að
henni mislíkaði þetta og ætli sér
greinilega að halda áfram“
Viðmælendur Fréttatímans sem
eru áhugasamir um textarýni telja
ljóst að Jóhanna sæki ráð og aðstoð
við ræðuskrif til eiginkonu sinnar,
Jónínu Leósdóttur. „Jónina skrifar
greinilega stundum ræður hennar;
stundum er svo augljóst að þar skrif-
ar einhver sem er natinn með orð.
Jónína er líka mjög skynsöm kona.
Þær eru mjög nánar og hún er ekki
þvæld inn í pólitík og hefur því oft
ferskari sýn en Hrannar til dæmis.“
Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðu-
neytisstjóri í forsætisráðuneytinu, er
einnig nefnd til sögunnar sem ráð-
gjafi Jóhönnu sem hún leitar til með
hugmyndir og ræðuskrif.
Þverrandi áhrif Hrannars B.
Arnarssonar í innsta hring Jóhönnu
eru ekki síst rakin til þess að Jóhann
Hauksson, nýráðinn upplýsinga-
fulltrúi ríkisstjórnarinnar, er strax
farinn að gera sig gildandi sem
ráðgjafi Jóhönnu í samskiptum við
fjölmiðla. „Jóhann er klárlega að
verða einn helsti ráðgjafi hennar og
er sem óðast að taka yfir stefnumót-
unarhlutverkið sem Hrannar hafði
áður. Þetta sést glöggt á því að hún
er allt í einu byrjuð að skrifa greinar
um hitt og þetta í blöðin og koma
meira fram í útvarpi. Jóhann skrifar
mjög mikið fyrir hana og var ekki
fréttaskýring 25 Helgin 9.-11. mars 2012