Fréttatíminn - 09.03.2012, Síða 46
Föstudaginn 16. mars gefur Fréttatíminn út
vandað blað um viðhald húsa í samvinnu við
Húseigendafélagið og Samtök iðnaðarins.
Í blaðinu verður fjallað um viðhald, rekstur
húsfélaga og allt það sem lýtur að rekstri hús-
eigna almennt. Sambærileg samvinna gafst vel
á síðasta ári og litu þá dagsins ljós vönduð blöð
um þetta efni sem vöktu athygli og skiluðu
þeim sem voru með auglýsingar og kynningar
þar marktækum árangri. Næsta sérblað helgað
viðhaldi mun koma út 27. apríl.
Leitaðu upplýsinga og tilboða hjá auglýsinga-
deild Fréttatímans í síma 531 3310 eða
auglysingar@frettatiminn.is.
Viðhald
húsa
Sérblað með Fréttatímanum
42 fermingar Helgin 9.-11. mars 2012
Herraleg tíska í ár
Jakki: 32.990 kr
Slaufa: 2.990 kr
Klútur: 790 kr
Skyrta: 7.990 kr
Í ár eru fermingar-
strákarnir mjög
spenntir fyrir
slaufum í allskonar
litum. Mjóa bindið,
sem hefur verið svo
vinsælt undan-
farin ár heldur þó
vinsældum sínum
og hika strákarnir
ekkert við að velja
sér áberandi og skæran lit. Strák-
arnir sækja svo talsvert í að fá
vasaklút í stíl við slaufuna eða
bindið sem er skemmtileg ný-
breytni. Fáir strákanna kjósa að
klæðast gallabuxum á fermingar-
daginn í ár og virðast frekar vilja
vera fínir og herralegir. Þeir
velja sér frekar jakkaföt, sem
eru með aðsniðnum jakka
og niðurþröngum buxum.
Vesti í stíl, undir jakkafötin,
í anda Boardwalk Empire,
eru mjög vinsæl og sumir
kjósa jafnvel að sleppa
jakkanum og velja sér að-
eins vestið í stíl við buxurnar,“
segir Sindri Snær verslunarstjóri
Gallerí Sautján Kringlunni.
Klútur: 790 kr
Bindi: 2.990 kr
Skyrta: 7.990 kr
Jakki: 22.990 kr
Skór:
14.990 kr
Sindri Snær
verslunar-
stjóri Gallerí
Sautján
Kringlunni.
Einföld og fáguð fermingartíska í ár
Fermingarstelpurnar í ár eru að sækja mest í kjóla
fyrir fermingardaginn, bæði einlita og með blúndu
eða blómamynstri. En þær sem ekki vilja vera í
kjólum taka jafnvel stuttbuxur úr siffon-efni, bæði
uppháar og lágar, sem passar vel við fínar skyrtur
eða toppa. Skartið við fermingarfötin eru vinsæl
bæði í silfruðu og gylltu og eru krossarnir alltaf
vinsælastir á þessum degi. Sokkabuxur eru vinsæll
og nauðsynlegur fylgihlutur, með fallegu mynstri
eða einlitar. Í ár virðist vera eftir-
sóttara að klæðast skóm með
hæl fremur en lágbotna.
Litill hæll eða fylltir hælar
eru mest áberandi en litlu
sætu ballerínu skórnir á
eru einnig mjög vinsælir
fyrir þær sem ekki vilja vera
á hælum,“ segir Hildur
Ragnarsdóttir
verslunarstjóri
Gallerí Sautján í
Kringlunni.
„Við erum aðallega með kjóla fyrir fermingar-
stelpurnar í ár. Þetta eru mest stelpulegir
kjólar með rómantísku yfirbragði og setja
blúndur, siffon og pífur punktinn yfir i-ið.
Kjólarnir eru allir teknir saman í mittið, sem
virðist vera það eina sem fermingarstelpurnar
vilja í ár. Stelpurnar kjósa helst hælaskó fyrir ferm-
ingardaginn og er einkum litið til Jeffrey Campbell-
skónna, sem seljast lang mest. Við erum með þá í
allskonar litum, bæði glimmer og ekki. Fyllti hæll-
inn er líka alltaf vinsæll þar sem hann er þægilegri
og stöðugri heldur en hefðbundari hælaskór. Ætli
stelpurnar séu ekki
öruggari á kirkju-
gólfinu í þannig
skóm,“ segir Edda
Sif Sigurðardóttir,
verslunarstjóri
Dúkkuhússins.
Kjóll: 7.990 kr
Kjólar teknir saman í mittið vinsælastir
Svartur kjóll:
7.990 kr
Stuttbuxur: 5.990 kr
Hvítur kjóll:
6.990 kr
Hvítur bolur:
6.995 kr
Skór: 11.990 kr
Bleikur kjóll: 6.990 kr
Fölbleikur kjóll: 8.990 kr
Hildur Rag-
narsdóttir
verslunar-
stjóri Gallerí
Sautján
Kringlunni.