Fréttatíminn - 09.03.2012, Page 52
Þ
vottakarfan mín, sem er
af stærri gerðinni, fylltist
um daginn en í stað þess
að þvo fötin keypti ég
bara nýja þvottakörfu.
Ég er nefnilega slúbert.
Þegar sú fylltist líka og
þvotturinn eins og vel þjapp-
aður heybaggi þar ofan í var
ekki hægt að horfa í hina
áttina lengur, það þurfti
þvottadag eða þvottaviku
öllu heldur, því mín föt eru
því miður ekki það eina sem
þarf að þvo á fjögurra manna
heimilinu. Vikuþrælkun með þvott
upp um alla veggi, krakkana hopp-
andi á skyrtunum mínum og hlaup-
andi um með nærbuxur á hausn-
um... ekki alveg málið í mínum huga
og ákvað ég því að leita til atvinnu-
manna. Ég hringdi í þvottahús og
komst að því að það er hægt að
láta þvo af sér larfana fyrir um
300 kall kílóið. Þetta fannst
mér vera flottur díll. Þetta
gæti ekki verið þyngra en
sem nemur nokkrum mjólk-
urpottum. Svona til öryggis
þá steig ég með herlegheit-
in á baðviktina og hún upp-
lýsti mig um að í þvottakörf-
unni lágu ígildi 27 mjólkurpotta.
Æ, ansans það var svolítið mikið.
Þá kviknaði á perunni! Laundro-
mat kaffið hans Frikka Wæs! Þar
hljóta að vera þvottavélar, svona
miðað við nafnið. Símtali síðar er ég
á leiðinni með góð 20 kílógrömm af
óþvegnum klæðnaði; allt vand-
lega bundið í tvær gamlar
joggingpeysur. Hvíta
þvottinum og naríunum
fórnaði ég í heimavélina.
Laundromat er
að niðri í bæ og að sjálf-
sögðu er ekki alltaf gott
að finna stæði beint fyrir
framan en ég var þó svo
heppinn að þurfa ekki að rogast
með þvottasprengjurnar mínar
lengra en frá Ingólfstorgi, sem er
um tvö hundruð metra leið.
Þvottasprengur er það
sem ég kalla það þegar
búið er að troða óhreinu
taui inn í aðra flík. Helst
gamla joggingpeysu
sem binda má
saman með erm-
unum. Þá er líka
komið sniðugt
handfang. Muna
bara að tæma
sprengjuna í þvotta-
vélina en ekki setja
hana þangað í umbúð-
unum.
ÞvottavéL-
arnar eru þrjár
sem er kostur mið-
að við fjöldann á
flestum heimilum.
Þær eru þó ekki
nema fyrir 6.5 kíló
af þvotti hver og
sama hvað ég tróð
kom ég þvottinum
ekki fyrir í þremur
vélum. Þannig að ég þurfti fjórar
vélar sem aftur þýddi tvo umganga
sem þýddi enn frekar að ég yrði
þarna allan daginn.
svo er Það þurrkurinn. Það
er náttúrulega enginn að fara að
hengja neitt upp þarna á Laundro-
mat þannig að þurrkar-
inn er manns eina
von. Þar sem ég
hengi yfirleitt
þvottinn minn
upp var ég
skeptískur á
að setja flan-
nel-skyrturnar
mínar í þurrkar-
ann. Þannig að
ég valdi köldustu
stillinguna. Fjörutíu og
fimm mínútum síðar var þvotturinn
blautari en hann hafði verið þegar
hann fór inn. Þannig að hitinn var
hækkaður í næsthæsta og fleiri
hundraðkallar sóttir.
Þegar Þvottur er þveginn
almannafæri gefst líka góður
tími til að haga sér eins
og í útlöndum. Þú ert
hvort eð ekkert að
fara neitt fyrr en
þvottur-
inn er
hreinn
og þurr.
Þá er um að
gera að setjast
niður með tímarit
og bollaköku eða jafn vel
skella sér í einn sveittan.
Nú eða væflast um Austur-
strætið og nærgötur í svo-
litla stund. Kíkja kannski í
Thorvaldsen Bazar og splæsa í eins
og eitt par af lopasokkum.
Það kom mér skemmtilega á
óvart að ég var ekki einn um að nýta
mér þessa aðstöðu heldur voru einn
eða tveir útlendingar á stjákli þarna
í kringum þvottavélarnar. Einn
þeirra fann meira að segja sokk af
mér þegar hann var að fara að setja
í vél. Alveg magnað hvernig þessir
sokkar þvælast út um allt og eins
gott að gæta þess að ekki leynist
einn eldrauður innan um þegar þvo
á hvíta þvottinn.
Þegar Þurrkarinn klárast
þarf að ganga vandlega frá herleg-
heitunum. Ekki stoðar að henda
öllu á stofusófann og vona að frúin
klári að brjóta saman því hún ásamt
sófanum eru í nokkurra kílómetra
fjarlægð frá Laundromatinu. Þá er
bara að taka til óspilltra málanna
og brjóta saman. Þar sem ég er
græjufíkill splæsti ég í Fluff ‘n’ fold
samanbrjótarann. Þetta plastdót,
sem margir kannast við úr sjón-
varpsþáttunum Big Bang
Theory, er alger
snilld og
það eru
búðagæði
á þvottinum
þegar hann fer
upp í skáp eftir að
hann hefur farið í græjuna.
Annað sem er gott við það að þvo
bara þvott á tveggja til þriggja
mánuða fresti er að ég mundi ekki
eftir helmingnum af þessum fötum.
Þannig að það var beinlínis eins og
ég hafi verið að kaupa nánast allt
nýtt. Enda vel saman brotið.
ég veit ekki hvort ég klúðra
þvottamálum mínum aftur svona
rækilega – en mig grunar það nú
einhvernveginn. Þá er gott til þess
að hugsa að þvottakaffið hans
Frikka Wæs sé á sínum stað. Þá er
líka eins gott að eiga nóg af hundr-
aðköllum.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
48 þvottur Helgin 9.-11. mars 2012
Heimilisþvotturinn – reynslusaga
Demeter vottun tryggir bestu fáanlegu gæði í lífrænni ræktun; bæði hvað varðar bragð og næringargildi.
Beutelsbacher safarnir fást í öllum helstu matvöruverslunum landsins.
Lj
ós
m
yn
di
r/
H
ar
i