Fréttatíminn - 09.03.2012, Page 60
Helgin 9.-11. mars 201256 tíska
Gestapistla-
höfundur
vikunnar er
Kristján
Aage
hárgreiðslumeistari
5
dagar
dress
Sækir í þægilegar flíkur
Eygló Rut Guðlaugs-
dóttir er 20 ára og
vinnur eins og er í
World Class og Austur.
Næsta haust stefnir hún
á tannlæknisnám.
„Ég klæði mig eins
og mér líður hvern
daginn,“ segir Eygló um
fatastíl sinn. „Klæðavalið
fer mikið eftir því hvernig
ég er stemmd hverju
sinni og eru það yfirleitt
þægilegar flíkur sem ég
sæki í. Ég á mér rosalega
mörg tímabil og ef ég verð
skotin í einhverju „trendi“
þá nota ég það mikið.
Þessa daganna er ég mikið
fyrir skyrtur, er algjör
leðurperri og finnst gaman
að rokka aðeins upp á
heildarlúkkið. Ég er mikið
í svörtu þrátt fyrir að ég
elski að klæðast litríkum
flíkum. En, lituðu flíkurnar
vilja gleymast, einhverra
hluta vegna, inni í skáp
hjá mér.“
Fimmtudagur
Skór: Gs skór
Buxur: Berska
Peysa: H&M
Hálsmen: Gina Tricot
Miðvikudagur
Skór: Converse
Leggings: Urban
Outfitters
Skyrta: Cubus
Heilbrigt hár er
kynþokkafullt hár
Það er mikið af skemmtilegum hlutum að gerast í
hártískunni í dag, bæði hjá stelpum og strákum.
Dömurnar eru mikið í að þora að klippa sig í dag,
eru eflaust að gera sér grein fyrir að langir slitnir
endar eru ekki það sama og sítt hár og heilbrigt
hár er kynþokkafullt hár. Axlarsítt er að slá í
gegn og þá sérstaklega sterkar, harðar útlínur
með smá „attitude“.
Aflitaða skinku-lúkkið er í útrýmingarhættu.
Stelpur eru að færa sig mikið í ljósa náttúrulega
stemningu, með gott jafnvægi milli kaldra og
hlýrra tóna. Pönkað hár hefur líka mikið sótt í
sig veðrið og eru sífellt fleiri að detta í regnboga-
neonlitað hár hvort sem það er heillitun eða
nokkrir lokkar.
Það sem er helst að frétta hjá herrunum þessa
dagana er að “Fabio-lúkkið” svokallaða er smám
saman að deyja út og eru að myndast ýmsar ýktar
útgáfur af stuttum hliðum og sítt að ofan kokteil.
Klassískar línur, sem eðalspaðar á borð við Steve
McQueen og James Dean gerðu frægar á gömlu
svarthvítu tímunum, eru í aðalhlutverki í dag
nema jafnvel í ýktari nútímabúningi. Rakvélin í
hliðarnar og svoleiðis hasar.
Kaldir litir hafa oftast verið eina vitið þegar
kemur að herratísku og eru menn að fagna gráu
hárunum í dag. Öskutónað hár er málið og sumir
ganga jafnvel svo langt að henda sér í djúpu
laugina og splæsa í silfurtónað hár, en það er bara
fyrir lengra komna.
Nýjasti fjölskyldu-
meðlimur Gucci
Ítalska lúxusmerkið Gucci hefur fengið
mónakósku prinsessuna Charlotte Cas-
iraghi í lið með sér, en henni er ætlað að
vera alþjóðlegur talsmaður tískuhússins.
Prinsessan er engin nýgræðingur þegar
kemur að samstarfi með tískuhúsinu en
hún var meðal annars gestahönnuður
fyrir nýja reiðfatalínu sem Gucci setti á
markað seint á síðasta ári.
Charlotte mun sitja fyrir í auglýsinga-
herferðum Gucci í sumar en hún á ekki
langt að sækja fegurðina; móðuramma
hennar var Hollywoodstjarnan og
fegurðardísin Grace Kelly.
Ný lína frá Barton-mæðgum
Þriðjudagur
Skór: Gs skór
Buxur: Zara
Bolur: H&M
Skyrta: Urban
Jakki: París
Mánudagur
Skór: Gs skór
Buxur: Cubus
Peysa: frá Drífu Skúla
Bolur: H&M
Föstudagur
Skór: Scorett
Sollabuxur: Oriblu
Pils: Stradivarius
Peysa: Zara
Svo virðist sem O.C stjarnan
Mischa Barton hafi lagt leiklistina
til hliðar tímabundið og ætli að
einbeita sér að fatafyrirtækinu
sínu Mischa’s Collections. Hingað
til hefur hún haldið sig við fram-
leiðslu og það að hanna töskur
sem hún selur í verslun sinni í
London, en ætlar nú að bæta við
nýrri fatalínu og fylgihlutum sem
mun koma í verslanir seinna á
árinu. Móðir leikkonunnar, Nuala
Barton, hefur ákveðið að ganga í
lið með dóttur sinni og mun hjálpa
til við að hanna fylgihlutalínuna.
Vörurnar koma á Englandsmarkað
í vor og til Bandaríkjanna þegar
líða fer á haustið.
Fyrirtækið OPI
kynnti nýtt nagla-
lakk til sögunnar
á dögunum og er
innblásturinn við
hönnunina sóttur
til Köngulóar-
mannsins. Línan
er væntanleg
í maí næst-
komandi, bæði
á Banda-
ríkjamarkaði og
hér heima, en
ný kvikmynd um
Köngulóarmann-
inn er einmitt
væntanleg í júlí.
Línan saman-
stendur af sex
ólíkum tegundum
naglalakks sem
allar bera heiti
sem tengist
myndinni og
koma í litum eins
og appelsínu-
gulum, eitur-
grænum, bleikum
og hvítum.
Charlotte hefur alltaf verið dugleg að
klæðast nýjustu hönnuninni frá Gucci.
Spider Man-naglalakk væntanlegt